Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1917, Síða 13

Heimilisblaðið - 01.09.1917, Síða 13
HEIMILISBLAÐIÐ 107 Legar þeir komu til sjálfs sins aftur og höfðu þerrað svitann úr augunum, sáu þeir að þeir voru meðal þúsunda af liði þeirra á liárri hæð og voru hlíðarnar þaktar þurru grasi og kjarri, sem búið var að kveikja i. „Krossinn! Krossínn! Söfnumst um kross- inn!“ heyrðu þeir einhvern hrópa, og þegar þeir lituðust um, sáu þeir hið gimsteinum prýdda brot af hinum sanna krossi á hárri klettasnös, og biskupinn frá Akre við hlið hans. En reykurinn af hinu brennandi grasi huldi það brátt sjónum þeirra. Síðan sló í æðisgengna orustu, eina þá ægi- legustu, sem sagan getur um. Aftur og aftur róðust Serkir á þá þúsundum saman, og aft- ur og aftur voru þeir hraktir til baka, þvi Prankar börðust og vörðust sem særð ljón. Bræðurnir sáu nú svartskeggjaðan mann koma til sín og þektu þeir þar foringja musteris- riddaranna. „Fyrir Krists sakir gefið mér að drekka“, sagði hann um leið og hann þekti, að það ^oru sömu riddararnir, sem hann bafði spott- að fyrir vatnsburðinn. Þeir gáfu honum af þvi litla sem þeir áttu eftir, en gáfu hestnnum og drukku sjálfir það sem eftir var. Þegar þeir litu við, sáu þeir musterisriddarann hlaupa niður fjallið, og sveifla hiim blóðuga sverði sínu, hréssari í bragði. Svo varð þögn, og þeir beyrðu bisk- upinn frá Nazaret segja eins og við sjálfan sig: „Ó, það var hérna að frelsarinn prédikaði orð friðarins, á þessum sama stað hélt hann fjallræðu sína. Ó, það er ómögulegt að hann yfirgefi oss, eg get ekki, né vil trúa þvi. Meðan Serkir höfðu annað fyrir stafni, reistu hermennirnir tjald konungs og önnur fleiri umhverfis klettinn, er krossinn stóð á. „Ætla þeir að reisa hér herbúðir? spurði Wulf gramur í geði. „Þeir vona, að þeir geti slegið skjaldborg umhverfis krossinn, en það er árangurslaust, því þetta er staðurinn er eg sá í draum mín- nm“, ansaði Godvin. „Við skulum að minsta kosti deyja sem hraustum mönnum sæmir“, sagði Wulf. Síðan byrjaði siðasta atlagan. Keykjar- bólstrarnir ultu upp fjallshlíðarnar, og Serkir með þeim. Þrisvar voru þeir hraktir til baka, og þris- var komu þeir aftur í Ijós. I fjórðu atlögunm gátu aðeins stöku Frankar barist, því þorst- inn hafði yfirunnið fjölda þeirra á fjallinu, þar sem engan vatnsdropa var að fá. Þeir hnigu niður í grasið og voru slegnir í hel eða handteknir án þess að veita nokk- urt viðnám. Stór deild serkneskra riddara ruddist gegnum skjaldborgina, og róðust á skarlatstjaldið. Það riðaði til, fjell síðan sam- an og fjötraði konunginn í fellingum sínum. „Yið krossins fót barðist Rufinus biskup frá Akre, enn þá hraustlega. Alt 1 einu hitti hann ör í hálsinn og hann fell til jarðar. Síðan réðust Serkir á krossinn, tóku hann ofan og báru hann með hæðnisópum og óhljóð- um til sinna eigin herbúða, en hinir kristnu, er enn voru á lifl, störðu til kimins, eins og þeir væntu þaðan teiknis. En enginjp engill birtist, og þar eð þeir héldu að Gjð hefði yfirgefið þá, kveinuðu þeir hástöfum. „Komdu“, sagði Godvin við Wulf með rólegri rödd. „Yið höfum séð nóg. Það er kominn tími fyrir oss að deyja. Sjáðu! hérna fyrir neðan okkur koma mamelúkar, okkar gömlu félagar, og meðal þeirra ér Saladín, eg sé merki hans. Þar sem við erum nýbún- ir að drekka, erum við og hestar okkar enn- þá óþreyttir og sterkir. Látum æfilok vor verða svo að þau spyrjist til Essex. Reynum að ná merki Saladíns.11 Wulf laut höfði og þeir riðu samsiða nið- ur hlíðina. Bogsrerðiu blikuðu á móti þeim og örvarnar skullu á herhlæðum þeirra og skjöldum, en bræðurna sakaði ekki. Og í augsýn hins serkneska hers, snéru þeir hest- um sínum gegn hinu konunglega merki Sala- díns. Þeir ruddu sér braut gegn um lið óvin- anna og feldu þá með sverðum sínum eða Yiðu þá ofan. Áfram, sífelt áfram, þó Eldur og Reykur hefðu fengið fjölda mörg sár. Nú voru þeir meðal mamelúkanna, en fylking þeirra var orðin veik. Þeir voru

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.