Heimilisblaðið - 01.09.1917, Qupperneq 14
108
HEIMILISBLAÐIÐ
komnir gegnum hana og stefndufmóti soldáni,
er sat á hinum hvita hesti sínum, með son
sinn óg Hassan fursta við hlið sér.
„Yel þér Saladín, en eg vel Hassan“, hróp-
aði Wulf.
í sama bili mættust þeir, og allur her
Serkja rak upp angistaróp, er þeir sáu drotn-
ara hinna trúuðu hníga til jarðar fyrirþessari
síðustu atlögu hinna æðisgengnu, kristnu
riddara. Soldán reis þó brátt á fætur aftur
og fjöldi bogsverða skullu á herklæðum God-
vins í senn, og hestur hans fjell dauður til
jarðar, en sjálfur hljóp hann úr söðlinum og
brá sverði sínu.
í sama bili þekti Saladín merkið á skildi
hans og hrópaði:
„Gefist upp, Sir Godvin! Þér hafið barist
hraustlega. Gefist upp!
En Godvin, sem ekki vildi gefast upp,
svaraði:
„Þegar eg er dauður, en fyr ekki!“
Soldán talaði eitthvað, og meðan nokkrir
af mamelúkum hans rjeðst á móti honum
en gættu þess þó að sverð hans næðu þeim
ekki, réðust aðrir að baki hans, og gripu um
handleggi hans og feldu hann til jarðar og
bundu hann.
'Wulf hafði einnig barist. Hestur hans
var dauðrekinn í gegn, þegar hann hleypi
af stað móti Hassan fursta.
Wulf var lítið sár, og reis strax á fætur
og hrópaði:
„Þannig, Hassan, gamli fjandmaður og
vinur, hittust við loks. Komið og borgið
þá skuld, sem þér skuldið mér fyrir vínið
forðum. Nú er maður móti manni, sverð
móti sverði.“
Hættan eykur hugprýðina.
Af brauði og salti fá kinnar fagran roðai
Það, sem lífgar, það er andinn.
Eriður nærir.^Ófriður tærir.
Raflýsing.
Nú er komin rafiýsing allvíða í kaupstöð-
um og kauptúnum hér á landi. Ætti að koma
allstaðar, þar sem því verður viðkomið. Bezt
er að búa að sínu, það reyna menn nú á þess-
um styrjaldartímum. Reykjavíkurbær ætlar að
kom á hjá sér rafhitun og raflýsingu að styrj-
öldinni afstaðinni. Bærinn hefir með það fyrir
augum keypt vatnsafl í Soginu af Guðmundi
Þorvaldssyni bónda á Bíldsfelli og goldið
honum 30 þús. krónur fyrir þau réttindi.
Skrítlnr.
Faðirinn: Áttu marga vini í skólanum
Friðrik litli'?
Friðrik: Nei, eg á engan vin þar.
Faðirinn: Hvernig stendur á því?
Friðrik: Þegar strákarnir berja mig, þá
þoli eg þeim það ekki, og hinir strákarnir, sem
eg þori að berja, þeir reiðast mér.
Frúin: Þú skalt fá leyfi til að heimsækja
unnustann þinn, Sína min, en þó því aðeins
að honum sé full alvara með að giftast þér.
Sína (gremjufull): Já, það hafa þeir nú
allir fullyrt unnustarnir mínir, að sér værifull
alvara. Það er nú ekkert að byggja á karl-
mönnunum svoleiðis.
Prentvilla hefir slæðst inn í fyrirsögnina á
Draumnum frá Eyrarbakka í 7. tbl. þ. á. b!s.
82, þar stendur: Guðlnug Aradóttir, en á að
vera Guðlaug Aronsdóttir.
Sunnanfari I. ár. nr. 3 og IV. ár
nr. 2 óskast keypt á afgr. Heimilisblaðsins.
Biöðin verða að vera ógölluð. Hátt verð!
TJtgefandi og ábyrgðarmaður : Jón Helgason prenlari
Félagsprentsmiðjan, Laugaveg 4.