Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1918, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.03.1918, Qupperneq 2
34 HEIMILISBLAÐIÐ. stökum gulltöflum, en það voru fáorðar og gagn- orðar setningar og að því skapi spaklegar. Þessar setningar eru einu nafni kallaðar málshættir. Þeir eru nokkurs konar al- þýðu-heimspeki, bygðir á reynslunni, helst trúarlegs, siðfræðilegs eða hagfræði- legs efnis. Þessar setningar urðu fræðimönnum tiitækar í ræðu og riti, og margar samskonar setningar lifðu á vörum alþýðunnar. Allur þorri málshátta er reynslu-sann- mæli, sem eigi merkja annað en það, sem mælt er, t. d. ,það er spáð, sem spakir mæla; eða ,spá er spaks geta'. Aðrir eru likingar, sem merkja annað en það, sem mælt er, og eru þá kallaðir orðskviðir, t. d. ,þá eik skal fága, sem undir skal búa‘ eða ,befir eik það, er af annari skefur'. Ólafur hvítaskáld, bróðursonur Snorra Sturlu- sonar, minnist á þessa líkingarmálshætti í Mál- skrúðsfræði sinni á þessa leið: „Allegoría (liking) er trópr (viðkenningar- háttur) sá, er annað merkir en mælt er, sem Sveinn kvað: „Þar lcemr á — — — ti! sævar“. Þat er úeiginleg líking milli árinnar og kvæðis- ins. Þat er at skilja: hann lyktir svá því efni, er hann vildi í kvæðinu hafa, sem áin kemr til sævar. — — — Þessar líkingar eru mjök settar í skáldskap ok í spakmæli þau, er vitrir menn hafa forðum saman sett; greindu spek- ingar með því orð sín frá alþýðlegu orðtaki“. Málshættirnir eru, eins og uú var sagt, þjóðlegar gulltöflur, sem geymst hafa innan bókmentanna og utan þeirra, á vörum alþýðu, alt frá því er Norðurlönd voru bygð og síðan gengið að erfðum frá kyni til kyns og aukist eftir því sem aldir liðu. Fornsögur vorar eru margar auðugar af málsháttum, einkum Gretla og Njála. Þeir eru og mjög fléttaðir inn í fornar vísur, þó að Teigi sé það af áseltu ráði gert, eins og í Forn- yrðadrápu eða Orðskviðahætti (í Hátta- tali). Hávamál er að mestu Ieyti fornt máls- háttasafn í ljóðum. í fornum lögum má og finná stutt og spakleg orðtæki, t. d. ,með lög- urn skal land byggjah Það hefir jafnan verið venju, að menn hafa haft málshætti í ræðu og riti til styrkingar máli sínu, samkvæmt því, að ,opt er gott þat, er gamlir kveða‘ og ,flest eru fornmælin sönn-. Á 17. og 18. öld tóku fræðimenn að tína saman þá málshætti, er þeir fundu í fornum ritum og auka þau söfn svo með málsháttum, sem lifðu á vörum rnanna eða fundust í ritum seinni tíðar manna. Þessi söfn gaf Bókmentafálagið út í einni heild: Safn af íslenzkum orðskviðum o. s. frv. Kmh. 1830. Hallgrímur Scheving, kennari við Bessastaðaskóla, samdi viðauka og leiðréttingar við það safn* og var það gefið út í Boðsriti skólans 1843 og 1847. Ekki koma öll kurl til grafar í þessum söfnum. Margt er ótínt enn, einkum úr hinum nýrri bókmentum. En hins vegar eru þar líka tíndur fjöldinn allur af ómerkilegum orðtökum, sem mættu detta úr sögunni. En hvað er nú frumlegt, þ. e. norrænt eða íslenzkt af þessum málshátlum? Því er ekki auðsvarað. Sumir latnesldr málshættir eru orðnir svo samgrónir tungu vorri, að þeir verða eigi greindir frá alíslenzkum málsháttum, t. d. ,hver er sinnar hamingju smiður'. Latínan er auðug af stuttum og spaklegum setningum og lærðir menn hafa snemma haft þeer að orð- taki í íslenzkri þýðingu. Hugsvinnsmál eru latneskt spakmælasafn. Hér verður ekki lengra farið út i það mál. En það er annað, sem rétt er að vekja máls á í fám orðum og það er: íslenzkir máls- hættir í dönskum málsháttasöfnum. Danir eiga ágætt málsháttasafn, er nefnist: „Dansk Ordsprogs skat“ (Kmh. 1879). I þessu safni má finna málshætti, svo hundruðum sklftir, sem vér vitum eigi annað en að sé islensklr, þar á meðal eru margir hinna allra algengustu, og sumir standa í forn- sögum vorum. Manni getur ekki annað til hugar komið, en að hér sé um forna sameign tveggja þjóða að ræða eða fornporræna málshætli í dönskum búningi. Elsta málsháttasafn Dana er frá síðari hluta 14. aldar. Það er kent við Iítt kunnan höfund,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.