Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1918, Qupperneq 6

Heimilisblaðið - 01.03.1918, Qupperneq 6
HEIMILISBL AÐlfe 38 hann kannske neðan í því, að honum fanst, og honum hætti þá við að vera nokkuð hranaleg- ur og önugur við krakkagreyin á milli og móðir þeirra var líka altaf að jagast i þeim, skamma þau og slá í þau á víxl, en alt kom fyrir ekki. Maddama Sörensen áleit sjálfa sig mjög ógæfusama konu, sem eiginlega færi alls góðs á mis. — henni fanst vera of lílið gert úr sér í alla staði, — hún væri þó sannarlega mesta myndarkona, og i ergu síðri en þessi maddama Flink með sápuna sina, vatnið og alt hreinlæt- istalið, — en svona væri það nú í þessum rangláta heimi, sumir væru fæddir til gæfu, aðrir til ógæfu. Hitt datt henni aldrei í hug, að hún ætti máske sjálf sök á einhverju af þessari armæðu sinni og basli, Þegar hún svo var komin heim til sín, héldu þessar hugleiðingar áfram. Henni fanst það hreint og beint móðgun af maddömu Flink að vera að tala við sig um hreint loft. vatn og sápu ogástundun, og ætla að byrla sér inn, að hægt væri að færa nokkuð í lag með þessu og þvíliku. En þrátt fyrir alt komu þó þessi orð ósjálfrátt fram í huga hennar aftur og aftur og stöðugt var hún að stagast á þeim. Loks fór hún að hálta og enn komu orðin henni í huga og svo sofnaði hún út úr hugleið- ingum um mismuninn á sér og nábýliskonunni sinni. Ekki vissi hún, hve lengi hún hefði sofið, þegar hún alt í einu þóttist heyra undarlegt hljóð frammi í uppganginum. Hún heyrði hvern hlunkinn á fætur öðrum, já, svo greini- lega! Það var eins og eitthvert ferlíki væri að brölta upp stigann og eins og gúlp og skvettir innan um dynkina. Hún settist nú upp í rúmi sfnu til að hlusta, en þá veit hún ekki fyrri til en hrundið er upp hurðinni alt í einu og inn kemur stóreflis fata, lleyti-rennandi full af vatni. Hún gekk á hækj- um. Öðru megin hafði hún stóreflis stanga- sápustykki og ryksóp til að styðja sig við, en hinumegin gólfsóp og hékk stór svampur á öðrum kilpinum. Fatan sýndist alveg uppgefin af þessu bjástri og varð nú að staðnæmast til þess að draga andann, áður en hún gæti feng- ið svigrúm til þess að litast um, „Ja, hérna!" sagði vatnið loksins, „aldrei á minni lífsfæddri æfi hefi eg nú séð slikt og annað eins!“ og svo gúlpaðist það fram og aftur um fötuna af óþolinmæði. „Ja, og eg segi sama og alteins11, sagði gólf- sópurinn, og svampurinn tók í sama strenginn. „Hér hefir víst enginn okkar komið nokkru sinni, síðan þelta hús var bygt“. „Ja, segið þið mér eitt“, sagði ryksópurinn, „segið þér mér bara eitt, er hún með öljum mjalla hún maddama Flink að senda okkur inn í svona íbúð? Hvar á að byrja og hvar á að enda? Nú, það var nú lika sannast að segja, að það var von, að þeim blöskraði. Gólfið var svart af óhreinindum; kringum ofninn var fult af ösku og smáspýtum, sumum hálfbrunnum; á borðinu var svona sitt af hverju: kartöfluhýði í hrúgum hingað og þang- að og fiskmauk, hálfjetnar brauðsineiðar, ost- skorpa, hálfur exportstuðull, mötugur hnífur, tveir eða þrír handarhaldslausir bollar, gróms- ugir, og innan um þetta nokkrir sokkagarmar götóttir, sem maddama Sörensen hafði auðsjá- anlega ætlað sér að stoppa í, og svo rifrildi af dagblaði og tóm brennivínstlaska. Þar var kommóða á þremur fótum og á henni gamall ljósastjaki með dálitlu kertisskari, og hafði helmingur af því runnið niður, og niður eftir öllum stjakanum, og enn til prýðis nokkrar handarhaldslausar krúsir, sem voru hafðar til að geyma húsbúseðla* i. Glugginn var stór og vissi út að stórri grasflöt, en hann var full- ur af allskonar óþverra og kóngulóuvefur í hverju horni og rúðurnar svo óhreinar að ekki sást út um þær. Loftið í stofunni var þungt og óþverralegt og fúlt og var auðfundið að glugg- *) í öðrum löndum eru víða til eins konar lánsstofnanir, þar sem fá má bráðabirgðarlán út á ýmsa lausafjármuni, íveruföt, sængurföt, húsgögn o. fl. sem handveð, og er þá ætlasttil að slík veð sjeu innleyst innan skamms. — I Kaupmannahöfn þekkja margir landar af afspurn eða eigin reynd Assistentz-húsið, stofnað 1688, sbr. kvæði Jóns Thóroddsens: „I Babýlon við Eyrarsund" o. s. frv. „Loksins í húsið hjástoðar hengdum vér sparibrækurnar“ etc.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.