Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1918, Síða 12

Heimilisblaðið - 01.03.1918, Síða 12
4^ HEIMILISBLAÐIÐ Fiskimennirnir komu snemma a‘S þennan dag, því sjógangur var mikill; Nelly fór líka inn í kofa sinn þegar rökkva tók, og myrkriö grúföi yfir sjónum. Þegar hún var nýkomin inn í kof- ann, skall á hiö mesta óveður meö stormi og steypiregni, og hver þruman rak aöra. Nelly var hrædd, og hún fór aö gráta; móð'ir hennar reyndi aö hugga hana. En veðriö fór síversnandi; regnið var eins og helt væri úr fötu; hver þruman drundi á fætur annari, svo aö undir tók í klettunum, og varð af því hin mesta háreysti; allur sjórinn var í einu brim- löðri og rauk særokið eins og rigning yfir vita- turninn. Þá eirði Nelly ekki lengur inni í kof- anum. Hún gekk til dyranna, og sagöi við móður sína: „Eg verö aö fara út í vitaturninn og spyrja Ríkarð gamla, hvort hann hafi ekki séð til skonnortunnar hans Edvards, áöur en fór aö dimma.“ Móöir hennar ætlaöi aö banna henni að fara út í þetta veður, en óðar en hana varði, var Nelly farin út og horfin út í myrkrið. Stígurinn ofan eftir hálsinum var brattur og torfær, en hún var honum vel kunnug; hún gekk álút á móti veðrinu og lét hvorki storminn né regniö hamla för sinni. Hún vissi, að Hrólfur var ekki heima, en hún rendi ekki grun í, aö faðir hans væri sér reiður út af því, aö hún ekki heföi viljað ljá eyra ástar- tölum hans. Flefði hún vitað það, eins og það var, mundi hún naumast hafa farið til Ríkarðar til þess að spyrja sig fyrir um Edvard. Þegar hún var komin að dyrunum á vita- turninum, var hún oröin gagndrepa af rigning- unni og særokinu. Hún barði aö dyrum; Rík- arður opnaði huröina í hálfa gátt, og hélt á lukt í hendinni, en svo var andlit hans ógurlegt, að Nelly lá við að hlaupa burtu í ofboði; slíkur ótti kom að henni, er hún sá Ríkarð; hún sá líka, að inni í herberginu stóð flaska á börð- inu; Nelly þóttist sjá, að Ríkarður hefði eitt- íivað ilt í hyggju; og er hún leit flöskuna, datt henni i hug, að hann mundi hafa drukkið vín, til þess að gera sjálfan sig örari til aö fremja einhvern glæp, Hún spurði hann, hvort hann hefði séð skonn- Örtuna. Hann játti því og dæsti við. Síðan tók í hönd hennar, leiddi hana inn í turninn, og læsti huröinni á eftir þeim. „Þaö er hér um bil hálf klukkustund síðan eg sá skonnortuna; hún var þá örstutt frá yzta skerinu.“ „Var hún komin svo nálægt!“ sagöi Nelly. „Edvard er þá í lífshættu! — En það er þó hugsandi, að hann komist inn í höfnina, er það ekki, Ríkarður ?“ Áður en hann fékk tóm til að svara henni, reið af ógurleg þruma, svo aö vitatuminn nötr- aði; Nelly fanst þetta vera svar upp á spurn- ingu sína, og hún sagði við sjálfan sig: „Því miður, í svona veöri er honum ekki lífs von.“ „Hvers erindis kemur þú til mín?“ spurði Rík- arður. „Heldur þú að eg geti frelsað hann- Held- ur þú, að eg hafi líf hans í hendi minni? Edvard þykist vera góður sjómaöur; sýni hann það nú! Það er hugsandi, að hann hitti innsiglinguna, en ef þ ú vilt þaö, þá skal hann ná höfninni heill á hófi.“ „Efast þú um að eg vilji þaö? Eg skil ekki, hvað þú átt við.— Þú ert þó ekki að gera gis að mér, vænti eg! Það væri illa gertN „Eg segi það enn — það er á þínu valdi, hvort Edvard fær bjargað lífi sínu, eða ekki.“ „Eg skil þig ekki! Eg veit ekki hvernig .eg á að ráða orð þín,“ sagði Nelly og skalf af hræðslu. „Líttu út um gluggann, og segðu mér, hvaö þú sérð.“ Hún gerði sem hann bauð henni, en hún sá ekkert, því úti var þreifandi myrkur. „Þú sérð ekki annað en freyðandi sjóinn; er ekki svo? Sérðu ekki ljós þarna langtH burtu? — Nú séröu það. — Þetta ljós er úti á skipi Edvards, og hann siglir í opinn dauðann.“ „Nei,“ svaraði Nelly, „vitinn hér uppi í tumj inum varar hann við skerinu.“ Ríkarður hló kuldahlátur og mælti: „Séröil þá nokkurs staðar ljósgeislann, sem á að falla frá vitahum út yfir sjóinn til þess að leiðbeina honum? Nei, þú sérð hann ekki, því eg hefi ekl£i kveikt vitann í kvöld.“ Nelly rak upp hljóð, og henni lá við að hníga i

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.