Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Qupperneq 7

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Qupperneq 7
HEIMILISBLAÐIÐ 37 hvei’ju stefi í tonsmíðum hans. Tökum t. d. þau verk hians, sem flestir kannast við hér, — píanósónöturnar. Þær virðast flestar vera undur aðgengilegar, fljótt á litið. En sannleikurinn er sá, að það er aðeins fáum 8'efið að fara svo með þær, að vel sé, og eins er .um fiðlusónöturnar. Það eru ekki nema. einstaka snillingar, sem túlkað geta. til hlítar alla þá tign, töfrandi fegurð og viðkvæmni, sem í þær er spunnið. En það er þá líka svo, að ekkert getur verið dá- samlegra heldui’ en það, að hlýða. á vel túlk- aðar tónsmíðar eftir Mozart. Og þá verða þær líka svo einfaldar og aðgengilegar, þeim sem á hlýða, að þeir menn hljóta að vera úr skrítnum steini, sem ekki verða varir hrifningar. Mozart varð, eins og áður er getið, ekki nema 36 ára, en það er talið að hann hafi sarnið, að minsta kosti nokkuð á sjöunda hundrað tónsmíða og margt af því mikil verk, svo sem söngleikarnir, symfoniurnar. sónöturnar og messurnar. Af söngleikjun- um vil ég nefna þrjá sem jafnan er sýndur jafn mikill sómi, þegar þeir eru leiknir á söngleikahúsum hins roentaða heims. Er þá fyrst að nefna. »Brúðkaúp Fig- aros«, sem talinn er lang merkasti gaman- söngleikur, sem nokkurn tíma hefir verio saminn. Hann var leikinn í fyrsta. sinn í Vín, fyrsta maí 1786. — Þá er »Don Juan«, sem Mozart lauk við í október 1786. Og loks »Töfraflautan«, sem hann lauk vio f jórum árum síðar, eða tæpum sex mánuð- um áður en hann lézt. En um þann söng- leik hafa ýmsir merkir menn, — þar á meðal Beethoven og Goethe — sagt, að hann væri lang merkasta tónsmíð Mozarts, því að þar glampaði á allar hliðar leikm hans og snilli, Það er ekki til nema einn Mozart. Og hann er Mozart í krafti hinnar frábæru viðkvæmni og blíðu og töfrandi fegurðar, sem var aðalseðli hans og birtist manni svo að segja í hverjum hljómi og hverjum takti í tónsmíðum hans, Og sárt. er til þess að vita að slíkur maður skyldi eiga við svo ömurleg kjör að búa, sem raun varð á. Mozart er svo lýzt, að hann hafi verið maður frerour lágvaxinn og væskilslegur, einkum á yngri árum, og hafi þá sérstak- lega borið á því, hvað hann var nefstór. Hann var höfuðstór og mjög hárprúður og er sagt, að hann hafi hirt hár sitt og greitt með slíkri nákvæmni, að nærri lá hégómaskap. Hann var fölur í andliti og fríður sínum, en þó var svipurinn ekki til- komumikill. Fag'ureygur var hann og stór- eygður, en venjulega var augnaráðið frem- ur dauflegt og flögtandi, og var oft sem hann væri annars hugar. Hann var mjög vandlátur um klæðabúnað sinn og barst talsvert á, hvað það snerti að bera knipl- ingalín og demantadjásn. Fremur mun hann hafa verið lítill fyrir mann að sjá, enda var honum ekki um 'það gefið, að hann væri á það mintur, að hann væri ekki hár í loftinu. En straks þegar hann settist við hljóðíærið, varð hann sem alt annar maðnr, — tignari og æðri vera. Augnaráðið var skýrt og bjart, og hver vöðvahreyfing skýrði hugsanir þær, sem hann vildi túlka mönnum með því, sem hann lék. Á mannfundum var hann gam- ansamur og skemtinn, og roátti þá oft ekki þekkja, að þar væri sami rnaður og tón- snillingurinn mikli. Um trúarskoðanir hans, og það, hvernig dauðinn kom honum fyrir sjónir, veiður nokkuð ráðið af því, sem hann skrifar í bréfi til föður síns, nokkru, áður en hann lézt. Þar segir svo: »Þar sem dauðinn er í raun og veru lokaáfangi og þrautatak- mark þessa lífs, hefi ég tamið mér það tvö síðustu árin, að kynnast þessum sanna og bezta vini mannkynsins, Og svo vel hefir mér tekist það, að nú hefi ég ekki lengur neinn beig af honurn, heldur veitir hann mér miklu fremur huggun og frið. Og fyr- ir það lofa ég Guð, að hann hefir veitt mér það, að geta skoðað dauðann sem lyk- ilinn að hliðum hinnar fullkomnu sælu.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.