Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Page 8

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Page 8
38 HEIMILISBLAÐIÐ 'Ég legst nú aldrei svo til hvíldar, að mér komi ekki í hug, að um sólarupprás næsta morgun sé ég ekki lengur til. Þó getur eng- inn um mig sagt, sem þekkir mig, að ég sé önuglyndur eða óánægður með hlut- skifti mitt.« Mozart er oft líkt við önnur mikilmenni, svo sem Shakespeare, Goehte, Beethoven o. fl. En sannasta samlíkingin mun þó vera sú, að líkja honum við Raphael. I verkum þeirra beggja dáumst vér að hinu sama, — hinni tignu fegurð og fínleika, hinu sanna samræmi og ókvikandi sannleiks- þrá. Hjá báðum þessum mönnum finnum vér hina áköfu. starfsgleði, — gleði yfir því, að skapa ný verk, — svo að hvert ný- hafið verk er þeim sem heilagt starf, sem þeir lofa skapara sinn fyrir að mega fram- kvæma. Og eins og málaralistin á aðeins einn Raphael, svo á og hljómlistin aðeins einn Mozart. Pú Jesús. Þú Jesús, lífs mins Ijúfa sól, mér lýs af elsku þvnni, og ver mín hjáip og vörn og skjól á vegferð allri minni. Ó, Jesús, leið mig lifs á braut og lát mig viMast eigi; þín hönd mig styðji’ i hverri þraut, og hcettu, á nótt sem degi. Ó, Jesíts, lcekna meinin mín og mæðu vama’ og grandi, og sál min leiti sífelt þín, þú sólin alskínandi. Ó, Jesús, synd mér forða frá og frelsa úr greipum nauða. Og vertu Herra helzt mér hjá, þá halla fer að dauða. Ó, Jesús, ieið mig lieilan Irieim í himinsaU þína, þar við þitt heilagt hjarta geym. þú liólpna sáiu vtúna. S. Halldórsson. Opnið kirkjuna. Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins. (Sálm. 122, 1.). Þannig byrjar einn af sálmum skáldsins hebreska, og ótal sinnum hafa trúaðir menn tekið undir þessi orð um aldirnar mörgu, sem liðnar eru, síðan ljóðið varð til, Ötal menn á öllum öldum hafa meó fögnuði og tilhlökkun gengið að dyrum Drottins húss, til að taka þátt í guðsþjón- ustu með sanntrúuðum bræðrum og systr- um og fögnuðurinn hefir verið hinn sajni, hvort sem guðshúsið hefir verið glæsilegi musteri, tjaldbúð, eða torfkofi, aðeins að það ha,fi verið »vígt« honum til þjónustu, sem öll hné skulu beygja sig fyrir, Drotni himnanna. Og allir, sem með slíkri hugs- un, með fagnaðarljóð í huga, nálgast húsið, munu þaðan aftur snúa, búnir nýjum krafti og fögnuði, sem enginn getur frá þeim tekið. Þegar maður hugleiðir þessi orð, og ber innihald þeirra saman við þann hugsunar- hátt, sem nú virðist almennast ríkjandi með þjóð vorri, þá fyllist hugurinn sökn- uði og kvíða, söknuði út af síminkandi kirkjurækni, síminkandi virðingu fyrir húsi Drottins og boðskapnum, sem þar er fluttur og kvíða, ekki vegna kirkjunnar i heild, því »Guðs bygging stendur stöðug«, heldur vegna þeirra mörgu einstaklinga, sem villast frá uppsprettu hjáípræðisins, út á eyðimörk efnishyggju og virðingar- leysis fyrir öllu því, sem viðkemur kirkju og kristindómi. Kirkjurnar — guðshús -— standa. þög- ular ein eða fleiri í hverri sveit. Þær eru

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.