Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Side 28

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Side 28
58 HEIMILISBLAÐIÐ sagði hún djarflega. »Heldur ekki ég, mein- ið þér. Það er þess veg'na, að þér. þykizt vera óhiultur.« Með skyndilegri hreyfingu sneri hann hastinum við, svo að hann kom út úr myrkrinu undir trjánum. I sama vetfangi hafði maðurinn rifið barðastóra hattinn af höfði sér. Máninn hafði brugðið upp hinu fölleita ljósi sínu skarnt yfir fjallshrygg- inn, og í glætunni sá hún andlit Skuggans. Hann lyfti upp hendinni og benti. »Þarna inni í skóginum er rjóður. Annað kvöld um, miðnætti bíð ég yðar þar. Ætlið þér að koma?« Hún hvarflaði augunum undan augna- ráði hans, hrædd uro að láta bugast. »Viljið þér koma?« »Já.« Hún hafði sagt þetta orð áður en hún vissi af því, en alt í einu fanst henni hún verða rólegri. »Nú verð ég að fara heiro. Það er orðið framorðið.« Hann gerði sig líklegan til að fylgja henni áleiðis, en hún lyfti hendinni synj- andi. »Nei, nei,« sagði hún og leit til húss- ins, sem lá með u]>plýsta glugga bak við skógarjaðarinn. »Ef einhver sæi vður!« Hann hló lágt og borginmannlega. »Mér lízt alls ekki á, að þér ríðið þenna vegspotta einsömul,« sagði hann, og áður en hún gæti áttað sig hafði hann lyft b,end- inni, og skammbyssuskot rauf kvöldkyrð- ina. »Hvað eruð þér að gera!« sagði hún skelkuð. »Að útvega yður fylgdarmenn,« sagði hann. »Ekki satt?« Dyrunuro á húsinu var hrundið upp, og þrír karlmenn komu þjótandi út. Eitt augnablik stóðu þeir kyrrir, þá stukku þeir á bak h-estunum, sem stóðu reiðtygjaðir við húsvegginn. »Flýið!« hvíslaði hún æst og keyrði hest sinn úr sporum. Hinn lági, borginmannlegi hlátur Skugg- ans hljómaði enn þá í eyrum hennar, þeg- ar hún mætti hinum þrem reiðmönnum á auða svæðinu fyrir framan húsið. »Ert það þú, Sylvía?« var hrópið, sem tekið var á móti henni með. »Hver var það, sem skaut?« »Það var ég,« svaraði unga stúlkan. »Mér sýnd,ist ég sjá ref í myrkrinu.« Hún stökk af hesti sínum og gekk inn í anddyrið, þar sem hún hengdi hatt sinn og leðurbelti á snaga. Fóstuifaðir hennar, Pluromer, kom út um dymar á stóru, setu- stofunni. Sylvía bauð gott kvöld og flýtti sér upp stigann til herbergis síns. Henni fannst, að hún yrði að vera ein um hugs- anir sínar, áður en hún gæti talað við nokkurn mann. Þegar hinir þrír ungu menn komu inn, stóð Plummer með skammbyssu uppeldis- dóttur sinnar í hendinni. Skamrobyssan var köld — og öll skothylkin voru ónotuð. II. Svikinn í trygðmn —? Plummer hafði heyrt skotið og hverju Sylvía svaraði ungu mönnunum. Þegar upp- eldisdóttirin gekk inn í anddyrið, las hann geðshræringuna í andlitssvip hennar, og han,n var ekki lengi að komast að ákveð- inni niðurstöðu. Maður, sem mestan hluta æfi sinnar hef- ur dvalið á stöðum, þar sem hin óskráðu lög ríkja og rétturinn er fólginn í skamm- byssuhylkinu, venst oftast á að íhuga smá- munina. Hann þekti uppeldisdóttur sína nægjanlega vel til þess að gera sér grein fyrir, að þetta. kyöld hefði eitthvað óvenju- legra *en refur orðið á vegi hennar. Naísta hugsun hans var sú, að hún hefði mælt sér mót með einhvex'jum. Húm var fegursta stúlkan í héraðinu og átti mai'ga aðdá- endur, sem hún umgekst með meira eða minna yfirlætisleg'ri lagsroensku, án þess að gera einum hærra undir höfði en öðrum.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.