Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Qupperneq 31

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Qupperneq 31
HEIMILISBLAÐIÐ 61 III. Ökunnur maður. Fyrri hluta dags eins tveim áru.m siðar sat Algernon Thomas sheriffi á svölunum á húsi sínu og virti fyrir sér götulífið í litlu borg'inni Silver To.p. Hann var ekkert töfrandi að útliti, lítið og skinhorað gamal- menni, mjög' skjálfhentur. En engu að síð- ur var Alige Thomas sá maður, sem einn g'at haldið uppivöðsluseggjunum í náma- borginni í skefjum. Sagt var, að hann gæti gert hina ótrúlegustu hluti með Jjessum skjálfandi höndnm, Jjegar á riði. Hann eyddi ekki tímanum með kjaftæði, heldur tók til starfa. Og, hann var ekki seinn ; snúningunum. Skammbyssan hans misti aldrei marks. Fyrir framan veggsvalirnar var bund- inn reiðtýgjaður hestm-. I heimsókn hjá Algie Thomas var einn af starfsbræðrum hans, Joe Shriner, sem var sheriffi í borg- hmi Carlton, Gestur hans stóð við og við upp af stóln- um og- gekk ó]x>linmóðlega fram og aftur um veggsvalirnar, og settist að því loknu aftur við hliðina á hinum sí-rólega Algie. »Nú skal ég segja þér, hvað það er, sem kom mér til að fara hingað,« sagði sher- iffinn frá Carlton í einni af Jxignunum eftir hið eirðarlausa ráp hans, »Ég hef uýlega frétt af Skugganum.« Um leið og hann sagði Jxitta. laut hann skyndilega fram og leit á Algie eins og niaður, sem lítur á skotspón til þess að vita, hvort skotið hefur hæft. En Algie hreyfði sig ekki. Hann skotraði aðeins gömlu augunum sínum á starfsbróðurinn, og hann kinkaði kolli varla sjáanlega, »Ersá náungi nú kominn aftur á kreik?« spurði hann með sinni allra ljúfustu röddu. Joe settist aftur á stólinn og andvarpaði. »Enginn getur botnað í Itór, Algie,« sagði hann eftir drykklanga stund. »Annars hefði ég haldiö, að J>etta væri frétt, sem k'æti lífgað þig dálítið við.« »Eg er sæmileg;a vel lifandi,« sagði gamli sheriffinn. »En hvernig getur þú verið full- viss um, að það sé Skugginn, sem er á kreiki?« »Það er vegna hestsins hans,« sagði Joe Shriner. »Dökkbrúnn hestur með svörtum rákum. Ég var einu sinni að elta hann á Rauðku Ijarna,« hann benti með höfðinu i áttina til hestsins síns. »En hann lék sér að því að komast undan á þeim svartdröfn- ótta.« Það ikti í gamla sheriffanum, Jtegar hann heyrði þetta, »Hann er þá víst aítur orðinn heilbrigð- ur. Ég hélt nú annars, að það mundi líða á löngu, þangað til við heyrðum eitthvað af honum aftur. En ég hef nú reyndar heyrt ávæning af því, að hann sé enn þú tekinn að myrða,« »Aftur orðinn heilbrigður!« sagði Joe Shriner. »Það eru. Jx> liðin heil tvö ár, mað- ur, síðan hann fekk þessar þrjár kúlur í kroppinn.« »Tvö ár!« endurtók Algie. »Segir þú tvö ár! Mér finst eins og það hafi gerzt í síðast liðinni viku. Tvö ár!« Hann virtist undrast mikið, að svo lang- ur tími skyldi vera liðinn, að hann gleymói algerlega, hvað þeir voru að tala um. Joe Shriner glápti undrandi á hann, svo hristi hann bara höfuðið. »Svei mér þá, ef hann er ekki farinn aó ganga í barndóm,« tautaði hann með sjálf- um sér. Það var einasta skýringin, sem hann gat fundið á skeytingarleysi Algies. »Hann er ekki lengur sami maðurinn og' hann var einu sinni,« hugsaði hann. Og hátt bætti hann við með illgirnislegri röddu; »Ég get séð, að þetta kemur ekki neitt sérstaklega við þig. Þú ert ánægður, ef þú getur haldjð uppi reglu á J^essari hundaþúfu hérna. Þú skiftir þér ekkert af því, sem gerist hér í nágrenninu.« Hin gömlu, a,ugu Algies stöldruðu andai'- tak við fjarlægan, bláan tindinn á Samson- fjallinu. Svo sagði hann og kinkaði kolli: »Hvað mundir þú segja, Joe, ef bál sæ-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.