Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Blaðsíða 33

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Blaðsíða 33
HEIMILISBLAÐIÐ 63 undir. Maðurinn, sem lá í götonni, var Alec McGregor, og það var þessi kattliðugi, ungi maður, sem stóð á fætur. Frh. Skuggsjá. Lærdómsrlk saga. Sa-nski erkibiskupinn Söderblom var vanur í húsvitjunarferðum sínum að segja eftirfarandi, lærdómsríka sögu: Negrinn Sam haföi snúist til trúar, og nú vildi hann ganga í söfnuð. Hann fór til prestsins i fínasta hluta borgarinnar og bar upp erindi sitt. Presturinn hugsaði með skelfingu til þess, hvao hinir göfugu safnaðarmeðlimir hans myndu segja við slíkum nýjum bróður, og 1 þessum vandræð- um bað hann Sam að hugsa málið betur og ráð- færa sig við Guð. Nokkrum dögum seinna mætti presturinn Sam á götu. Prestinum fanst hann ekki geta gengið fram hjá hinum lítilsvirta, veslings Sam, án þess að segja eitthvað; þess vegna nam hann staðar og sagði: »Jæja, Sam, hefir þú talað við Guð um safn- aðarvalið?« »Já, herra prestur.« »Og hver er svo útkoman?« »Jö, Guð sagði við mig: Pað er ekki ómaksin.s vert fyrir þig, Sam, að reyna að komast inn í þennan söfnuð, því ég hefi sjálfur reynt í tutr- U8'V ár að komast þar inn — en mér hefir ekki tekist það!« Itafmagusleiðsla strengd yfir 2200 íneitra breið- an fjörð. Það er ieiðslan, sem flytur bæjunum, Hisöy og Sör-Ankra við Miöyfjord I Noregi raf- magn. Leiðslan er strengd niilli fjallanna Skár- eggen og Dryna. Skáreggen er 530 metra hátt, en Dryna 200. Pessi þráðspotti er 7000 tonn að þyngd. Lengd hans er, frá stauri til staurs, 3680 rnetrar. Þar sem þráðurinn er lægstur, liggur hann" 60 metra hátt yfir firðinum. Leiðslan er að- eins einn þráður, sem leiðir rafmagnið að, en sem bakaleiðara á að nota sjóinn. Þetta er svo að segja ný aðferð. Hún hefir lítilsháttar verið notuð i Frakklandi, og þá jörðin notuð sem baka- leiðari, sem þó er ekki talið eins heppilegt af sérfræðingum. Þessi rafmagns-leiðsla (3680 m. löng) og allur útbúnaður við hana kostaði 14500 Lrónur, en hefði hún verið lögð á sjávarbotni yfir fjörðinn, er álitið að hún mundi hafa kostað 111,000 krónur. Gaf sína eigin þyngd í gulli til fátiekra. Hinn indverski fursti Aga Khan hélt afmæli sitt hátíð- legt mánudaginn 20 janúar s. 1. Þar voru saman komnir um 30000 veizlugestir. Aga Khan var skrýddur ljómandi purpura og hafði grænan vefjarhött á höfði. Honum var fagnað með óvið- jafnanlegum fagnaðarlátum. Þá tók hann til máls og tilkynti, að öll hátíðahöld mundu falla nið- ur vegna andláts brezka konungsins, Georgs V. - Því næst steig hans hátign upp í stóra vogar- skál, en í hina skálina var sett skírt gull, jafn mikið og þyngd furstans, og átti að gefa það fá- tækurn þegnum hans. Þessi gull-skamtur var 300 þúsund króna virði. Úlfar við bíldyrnar. Bílstjóri einn, er var á ferð norðarlega 1 Noregi 4. febrúar s. 1., ók 1 stóra snjófönn og setti bílinn fastan. Þegar hann fór út til að moka frá bílnum, heyrði hann úlfa- ýlfur og sá nokkra i birtunni af bíl-ljósunum læðast í kring. Bilstjórinn flýtti sér inn í bíl- inn, og sat þar alla nóttina, þar til birta tók. Vargarnir héldu óskemtilegan samsöng kringum bílinn alla nóttina, og við og við ráku þeir trýn- in í bílrúðurnar. Er birta tók, læddust þeir burt, og þá gat bílstjórinn rutt sér braut gegnum fönnina og haldið ferðinni áfram eftir þessa óskemtilegu vökunótt. Verftmætiir demants-fundur. Fallegasti gim- steinn, sem fundist hefur i Brasiliu siðustu þrjá- tíu árin fanst um síðustu áramót í gryfju einni i nánd við Boavista. Hann fanst í leirleðju, af dreng, er var að leika sér að gimsteina-hreins- unaráhaldi. Ginisteinninn, sem vegur 50 karöt, er um 150,000 króna virði. Hrers vegna gt’isjtum við.' Geispi er einskonar vöðvateygingar, sem þreyttur líkami kemur af stað, til þess að fá meira súrefni inn i lungun til að upplifga þau. Hvers vegna inega stúlkur biðla, þcgar hluup- ár er? Þessi siður á rót sína að rekja til Skot- lands, þar sem parlamentið gaf kvenfólkinu þessi réttindi árið 1228. Þá var sá maður neyddur til að svara játandi, ef stúlka bað hans, nema því aðeins, að hann gæti sannað, að hann væri heit- bundinn.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.