Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 9
HEIMI LISBLAÐIÐ 9 Sólh vörf. Áramótavísur 1868. Eftir PqI Ólafsson. A þessum vegamótum mér mál er við að standa, umhverfis því augað sér ekkert nema vanda. Yfir liðna æfi menn augum litið geta, þó út í myrkrið allir senn áfram hljóti að feta. Þó er mesti munur á myrkum lífsins vegi, hvert menn stefna’ og lwar meunná höfn að liðnum degi. Ég get sagt um sjálfan mig — suma daga' og alla reikaði ég af réttum stig raunarlaust að kalla. Eg hefi fyrir stríðum straum stundum flœkst til baka, og eins og gengið oft í draum þái átti ég helzt að vaka. Mér hefir áfram miðað skamt, í mörgu’ er ég orðinn breyttur; við áraskiftin er ég samt ótrúlega þreyttur. Nökkva lífs á nýjan vog nú skal hrinda úr sandi; en engin veit, hve áratog eru mörg að landi. Að því landi er engir fái aftur frá að snúa heim, til þess að hugsá’ um þá, sem hérna megin búa. Ekki er lífsins gata greið, það gerir oftast þetta, að enginn greiðir öðrum leið eða spor vill létta. Hver vill annars eignum ná; um einskilding og dalinn, menn eru að þrœta og ýtast á, unz þeir hnígá’ í valinn. Kýs ég mér að komast hjá kappi slíku og erjum; nógum strandað ég get á öðrum villiskerjum. Ég skal forðast mest sem má mig og aðra flœkja í vandamál, og vondum hjá vegfarendum krœkja. Þá, sem trúá og treysta mér og til mín ráða leita liðsemd míá, er lítil er langar mig að veita. En það er lítið lið að mér og langt um minni gleði, þegar ég svona þreyttur er og þungur líká í geði. Ég hefi reynt að róa fast og reyni það ekki lengur, œ því meir hvert öldukast yfir bátinn gengur. Hugsá ég góðri liöfn að ná, ef liugurinn bilar ekki, láti ég skipið skríða lijá skerjunum, sem ég þekki. Fast ég treysti forsjón hans, sem föðurlegá alt metur; góðan vilja og máttinn manns margfaldað hann getur. (Skuld, 31. des. 1877).

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.