Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Síða 22

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Síða 22
22 HEIMILISBLAÐIÐ Uí-inn inn í hina heillandi framtíð. — En að endingu náði hún takmarkinu. Það var nvög líl.ið. hús, með ofurlitlum trjá- garði í kring. Eiginlega var það ekki við neða,n það. Inga varð glöð yfir að sjá húsið, þó lítið væri. Og enn þá glaðari varð hún, þó lítið væri. Og enn þá glaðari varð hún þegar hún sá gömlu kcnuna sitja á bekk 1‘yrir utan húsið, því að sú gamla leit ein- mitt út fyrir að geta spáð. Inga opnaði raiðmálaoa hliðið og gekk til gðmlu konunnar. Hún gleymdi að heilsa áður en hún sagði til erindis síns. Líklega hefir það verið af áhuga fyrir að vita for- lög- sín. Gamla konan leit á Ingu og las í and- litsdrætti hennar. Hin hyggnu augu henn- ar höfðu skygnst inn í misjöfn kjör mann- anna og lesið í mörg ólí.k andlit. Á þann hátt hafdi þroskast, hjá henni meðfæddur hæfileiki til að sjá og skilja margt, sem fer fram hjá í'ólki yfirleitt. —■ Iivers vegna vilt, þú vita, íbiipg þín? - Hvers vegna? Bara af því ég vil vita þau. Það er svo margt, sem ég vil vita. -— Setstu, hérna við hljðina á mér. Svo getum við talað dálítið saman um forlögin. Inga settist. — En spilin? sagði hún spyrjandi. — Ég spái ekki í spil, heldur í andlits- drætti. — Verður það líka rétt? — Miklu réttara. Sittu svoleiðis, að ég sjái framan í þig. Inga settist þannig, en henni leið illa undir hinu rannsakandi augnaráði gömlu konunnar; hennar eigin augu reikuðu. Af einhverjum ástæðum hafði hún ekki góða samvizku frammi fyrir þessu hyggna og sjáandi augnaráði. Hún skildi þó ekkert í því, þar sem að hún gat ekki ásakað sig fyrir neitt. Því allt, sem var öðru vísi en það átti að vera, var kringumstæðunum að kenna, en ekki henni. Þar að auki var það framtíðin og ekkert annað, sem spá- konan átti að sjá. — Hm, hm, sagði gamla konan, eins og hún uppgötvaði nokkuð og Inga fylltist eftirvæntingu. — Þú ert óánægð með tilveruna, sagð sú gamla. Það fanst Ingu hún hafa vitað áður — ekki hafði hún komið til að heyra það. — En þú hefir enga ástæðu til að vera óánægð, bætti gamla konan við. Þ a ð var nýtt fyrir Ingu. Hver hafði ástæðu til að vera óánægður, ef ekki hún? Gamla konan tók hina hvítu og mjúku hönd Ingu litlu í sína grófu hönd og horfði á hana. — Þessi litla hönd þarf ekki að vinna mikið, sé ég. Einhver vinnur fyrir þér og gefur þér allt, sem þú þarft með. — Það gerir fóstri minn, sagði Inga, óþolinmóð eftir að fá lokið þessu tali um það, sem hún þegár vissi. Segðu mér eitt- hvað um framtíðina. — Við komum að því smám saman. — Heldur þú að framtíðin komi fljúgandi til okkar, án nokkurs samhengis við það yfirstandandi. Þá hefir þú ekki enn þá lært stafróf framtíðarinnar, enda þótt þú hafir að líkindum lifað í seytján ár. — Ég er seytján og hálfs árs. Gamla konan kinkaði kolli. — Seytján ára. Það er vorið. Það er mikið líf í vorinu, og þú skalt ekki halda að sumarið komi á annan hátt en úr vor- inu. Blómhnappar vorsins verða blóm sumarsins og ávöxtur haustsins. Eigi ég að geta sagt nokkuð um sumar framtíð- ar þinnar, verð ég að þekkja eitthvað af því, sem falið er í blómhnöppunum fyrir framan mig. Inga fór nú að skilja, hvað vakti fyrir gömlu konunni og ásetti sér að sætta sig við þessa seinlátu og undarlegu aðferð hennar við að spá. Spákonan hélt áfram, þar sem hún hafði hætt: — Jæja, svo fóstri þinn vinnur fyrir þér og gefur þér það, sem þú þarft með. En fóstra þín, kennir hún þér ekki ein- hverja gagnlega hluti?

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.