Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Qupperneq 23

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Qupperneq 23
HEIMILISBLAÐIÐ 23 — Hiín kennir mér að sauma og líta eftir börnum og þess háttar. Það er alt svo leiðinlegt. — Færð þú ekki að læra fleira? Geng- ur þú ekki í skóla? — Til allrar hamingju var ég nú laus við hann í vor. Mér finst leiðinlegt að læra. — Hvað finst þér þá skemtilegt? — Svo margt annað, en það fæ ég ekki. En heyrið þér, það eruð þér, sem spyrjið, en ég sem svara. Á það ekki að vera gagn- stætt ? — Nú er það mitt að spyrja, en bráð- um getum við haft verkaskifti á því. — Jæja, spyrjið þér þá! sagði Inga, sem enn þá einu sinni lagði bönd á óþol- inmæði sína. Gamla konan leit niður eftir óþroskuð- um líkama Ingu litlu, og athugul augu hennar uppgötvuðu sitt af hverju. Hún sá ljósbláa silkibandið um hálsinn, hnýtt í slaufu undir öðru eyranu, sá beltið vera hert allt of mikið að mittinu og hún sá mjóu, þunnu skóna klemma litlu fæturna. I einu orði sagt, hún sá margt, sem bar vott um barnalegan hégómaskap. — Þér þykir gaman að vera í falleg- um fötum? — Já, þykir ekki öllum það? — Þér þykir meira varið í að fötin klæði þig vel, heldur en að þau séu sterk °g hlý? — Já, auðvitað. Það versta, sem ég veit, eru ljót föt, og ef þau endast lengi, þá fæ ég svo sjaldan ný. Gömlu konunni fanst nú hún hafa spurt nóg. Hún horfði á Ingu með ‘íhugunarsvip, en augu hennar lýstu jafnframt með- aumkun. — Svo þig dreymir um framtíðina. — Hvað viltu vita um hana? Það færist líf í Ingu. Loksins fékk hún að spyrja. Það var bara svo mikið, sem hún vildi vita. Á endanum gat hún kom- ^ því saman í eina spurningu: — Verð ég hamingjusöm? — Hvað kallar þú hamingju? Inga varð aftur að íhuga, hvað hún átti að segja. Það var nokkuð, sem hana lang- aði til að spyrja um, en hún kom sér ekki að því að gera það beinlínis, heldur fór í kringum það. — Fæ ég það, sem ég óska mér? — Það getur vel verið að þú fáir það, sem þú óskar eftir. En þú verður tæplega hamingjusöm fyrir það. — Hvers vegna ekki? — Vegna þess að þú kant ekki enn þá að óska. — Kann ég ekki að óska? Jú, það kann ég sannarlega. Ef það væri nóg að bara óska, þá yrði ég áreiðanlega ham- ingjusöm. — Þú kant ekki að óska, hélt sú gamla áfram, vegna þess að þú veist ekki, hvers þú þarfnast. Þú óskar ekki hins rétta. — Hvers á ég þá að óska? — Ekki að fá það, sem þú óskar þér, heldur að óska eftir því, sem þú færð. Því það er það bezta. Með undrun í bláu augunum sínum leit Inga á gömiu konuna. En hún svaraði þessu undarlega ráði engu orði. — Giftist ég bráðum? Nú bar hún djarflega upp þá spurningu, er hún rétt áður var of feimin til að koma fram með. — Viljir þú endilega giftast fljótlega, þá getur það sjálfsagt orðið, því þú hefir ýmislegt til að bera, sem karlmönnum geðjast að. Inga roðnaði af ánægju yfir hólinu og varð nú djarfari að spyrja. — Verður það af mikilli ást? — Það er mjög vafasamt, held ég, ef þú giftir þig fljótt. — Ekki? hrópaði Inga sneypt og ekki ánægð. — Sú, sem álítur það vera sjálfsagt að aðrir vinni fyrir henni og gefi henni alt, sem hún þarfnast, og sem ekki þakkar fyrir það, hefir vanþakklátt hjarta, og í slíku hjarta rúmast ekki mikil ást.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.