Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 25

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 25
HEIMILISBLAÐIÐ 25 — Ég hef ekki gabbað þig, en sú sem þú ætlar að fara til mun gabba þig. Það, sem ég hef sagt er satt, en það, sem hún segir þér er ekki satt. En því miður, þú munt heldur vilja hlusta á ósannan spá- dóm, sem lofar þér gulli og grænum skóg- um, er þú aldrei færð, heldur en á sann- an spádóm, sem vísar þér innri veginn til hamingjunnar. En mundu að minnsta kosti það, sem ég hef sagt og hugsaðu öðru hvoru um það. Rödd gömlu konunnar var svo mild og vingjarnleg að Inga viknaði. Þegar hún rétti henni höndina til kveðju. bað hún hana að fyrirgefa sér fljótfærnis orðin. —- Ég skil, að þér meintuð það vel, sagði hún. Inga gekk frá býlinu upp eftir fjallinu. Hún hitti réttu konuna, og nú var spáð þannig fyrir Ingu, að augu hennar ljóm- uðu og kinnarnar brunnu. Þar voru margir herrar ástfangnir og afbrýðissamir. Þar voru peningar og skemmtilegir viðburðir, stór arfur, langar ferðir, gjafir og sam- kvæmi. Mest var þó af ást. Svörtu ,,döm- urnar“ þýddu auðvitað afbrýðisamar og öfundsjúkar konur, sem með öllum brögð- um sínum gátu þó ekki kastað skugga á hina miklu hamingju Ingu litlu. Auðvitað kom svo sá útvaldi með trúlofun og gift- ingu og mikla hamingju. Þessi spádómur var Ingu að skapi. Þeg- ar hún hélt af stað heimleiðis, var hún alveg frá sér numin af ánægju, eins og hún hefði fengið alt, sem henni var spáð. Á heimleiðinn’ fór hún aftur fram hjá býlinu. Gamla konan var enn þá úti í garð- inum og dútlaði við biomin sín. Víst var hann fallegur garðurinn gömlu konunnar, þó lítill væri, og ljómandi vel hirtur var hann. Inga leit alla tilveruna velvildaraug- um vegna hinnar m;klu hamingju, er hún hugði sig eiga í vændum. Hún nam staðar fyrir utan garðinn og studdist fram á rauðmálaða grindverkið. -— Blómin dafna vel hér, sagði hún. —- Já, þau kunna því vel, að dundað sé við þau, enda get ég nú orðið lítið annað, en þess vegna fer þeim líka vel fram, svar- aði gamla konan. Hún stóð fyrir framan rósatró, er bar tvær gular rósir. Önnur var útsprungin, en hin var enn þá knapp- ur. Hún sleit hina síðar nefndu af og gaf Ingu hana. — Kærar þakkir. En er það ekki synd, að slíta knappinn af? — Blómin eru til þess að gleðja, og þar sem þú sjálf enn þá ert knappur, fanst mér það eiga svo vel við, að gefa þér þenna knapp. Hann sprigur út og visnar síðan. En hvað gerir það til, ef hann getur vakið gleði með hinu stutta lífi sínu. Það lá eitthvað sérstakt í orðum gömlu konnunnar og Inga skildi það. En hún gerði aðra kröfu til lífsins. — Maður lifir þó líklega til að njóta gleðinn?ir líka, sagði hún. — Það er til tvenns konar gleði: hin forgengilega og hin óforgengilega, sagði gamla konan. Inga reigði höfuðið þrjóskulega, því hún skildi það vel, að sú von er spádómurinn lét rætast, var einmitt vonin um forgengi- lega gleði. Hin óforgengilega gleði hafði ekkert aðdráttarafl fyrir hana. Gamla konan stóð þarna meðal blóm- anna sinna og horfði á Ingu með hinu glað- lega og blíða augnaráði sínu. — Þegar þú hefir komist að raun um að sú gleði, sem þú nú sækist svo mjög eftir er forgengileg, þá mundu það, að til er óforgengileg gleði og leitaðu hennar. Inga flýtti sér að kveðja, því henni var ekki mikið gefið um áminningar. Hún þakkaði aftur fyrir rósina og hélt svo af stað heimleiðis gegnum skóginn. Það var komið kvöld og farið að skyggja. Inga gekk sem í draumi, hugsandi um spádóm- inn, sem þó hafði þegar misst mikið af ljóma sínum. En seinna, löngu eftir að hún hafði gleymt honum, komu henni í hug síðustu orð gömlu konunnar, um hina ófor- gengilegu gleði. Því sannleiksorð eru var- anleg, þó innantóm orð verði að engu. O. K.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.