Heimilisblaðið - 01.01.1939, Qupperneq 5
28.
ar<í.
Janúar 1939
1. blað
BJARNI JÓNSSON:
„Það, sem mikilmennið leitar eftir, finnur
hann hjó sjólfum sér." — Kungfutse.
I. Ætt og uppvöxtur Stephensons.
Georg Steplienson var kominn af fátækvi
verkamannaætt. Faðir hans, Robert Step-
henson, var kyndari við gufuvél í kola-
námu hjá Wylam, nálægt Newcastle on
Tyne. Þar var Georg fæddur 9. júní 1781.
I bernsku var Georg kúahirðir. Varði hann
þá tómstundum sínum til að gera sér véla-
líki úr leir og annað því um líkt, sér til
dægrastyttingar, þegar hann sat, hjá kún-
um. Sannaðist þar, að snemrna beygist
krókurinn til þess sem verða vill. En er
hann var orðinn stálpaður, fór hann aó
vinna í kolanámunni með föður sínum; varð
það þá hlutverk hans að keyfa hest, er
hefja skyldi lyftivél í námunni. Þegar hann
var 14 ára, varð hann aðstoðarmaður föð-
ur síns, kyndari við gufuvél. Fyrir kynd-
arastarfið fékk hann 1 skilding (shilling)
á, dag. Gafst honum þá hið bezta tækifæri
á að kynna sér byggingu vélarinnar. Auga
hans var glöggt og leiknin mikil, og var
hann brátt fenginn til að gera við gufu-
vélar annai'sstaðar. Allt nam hann þetta
af sjálfum sér, og af því hann lagði allt
kapp á að framast í þessari iðn, og búa
sig undir hærri skyldustörf, þá varð hann
brátt öðrum fremri í öllu, sem laut að að-
gerð og smíði á gufuvélum og 17 ára var
hann skipaður vélmeistari. Ekki kunn;
hann, þá að lesa, en á næsta ári gekk hann
í kvöldskóla til að læra þar að lesa og'
Georg Stephenson.
skrifa og tók hann þar merkilega skjótum
framförum. Um þessar mundir brann hann
af þrá eftir að fá fyllri þekkingu á hinni
dásamlegu uppfundningu Watts og Boult-
ons.
Georg kvæntist, er hann var 21 árs að
aldri og átti þá örðugt, uppdráttar, því að
þótt hann kæmist að arðvænlegri stöðu í
öðrum kolanámum, þá nægði honum ekki
kaupið sér og sínum til uppeldis; hafði
hann þá skóviðgerðir að aukastarfi og
seinna aðgerðir á klukkum. Allt þetta narn
hann af sjálfum sér.
Árið 1812 var hann skipaður umsjónar-
•'Tlw Rochet’.