Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1939, Page 9

Heimilisblaðið - 01.01.1939, Page 9
HEIMILISBLAÐIÐ 7 stæðinu, að kolin. brunnu svo afar fljótt og fjörugt. Þessa uppfundningu sína reyndi hann í fyrsta sinn á Rocket. Sigur Stephensons var þá pípukatlinurn og útblásturspípunni að þakka. Eftir þetta var litið allt öðrum augum á Liverpool-Manchester-brautina en áður. Áður var áformað að láta flytja vörur ein- ar, en nú var fastákveðið að flytja far- þega líka. Var farin reynsluför með 30—40 manns, og allir gerðu góðan róm að þessu nýja flutningstæki. Brautin var opnuð til umferðar 1830. Urðu þá mikil umskifti frá, því sem áður var. Áður fóru daglega 30 vöruvagnar millí borganna til að halda uppi viðskiftasam- bandinu. En innan skamms tíma þurfti ekki nema einn til að fullnægja flutnings- þörfinni, því að hann gat farið þeim mun fleiri ferðirnar. Áður fóru að meðaltali 500 manna á dag milli borganna en nú þegar í stað 1500. Vöruflutningurinn óx ekki að sarna skapi sem farþegafjöldinn, því að félögin, sem áður voru nefnd, settu nú niður flutnings- gjöldin og gerðu sér nú allt far um að flutn- ingarnir geng'i sem greiðast, Skurðurinn hafði þann kost fram yfir járnbrautina, að báta mátti ferma og afferma hjá vöru- geymslum kaupmanna, sem stóðu á, bakk- anuni, en hitt éyddi miklum tíma og fé að ferma og afferma járnbrautarvagnana. Fyrstu árin voru þó flutt um milljón punda af vörum tvisvar á dag eftir brautinni. Hluthafar í járnbrautarfélaginu fengu 10% f arð. VI. Nýjar endurbætur á eimreiðum. Áfskifti Stephensons af jórnbrautalagningu heima og erlendis. Verksmiðja Stephensons smíðaði allar eimreiðar á þessa braut. Næstu breytingar Stephensons á vélinni voru það, að hann lengdi ketilinn og gerði vélina þyngri. Brautarteinarnir, sem fyrst voru lagðir, unðu þá of veikir; voru þeir þá teknir upp og aðrir 'sterkari lagðir í staðinn. Stephenson var forsmiður að öllum þeim brautum, sem nú voru nefndar. En frá þessum tíma og til 1845 fer saman saga Stephensons og saga járnbrautanna á Eng- landi, því að bann tók beinlínis eða óbein- línis þátt í lagningu þeirra allra. Hann var og iðulega hafður að ráðunaut við járn- brautarlagningar erlendis og fór í þeim erindum til Belgíu og Spánar (1845). Mjög lagðist Stephenson alvarlega á móti því járnbrautar-æði, sem greip landa hans og sagði það fyrir, að af því myndi’ illt eitt hljótast, ef farið væri að stofna til járnbrauta af gróðahyggju eirni. S.tephenson átti í höggi við ýmsa út af lögun og fyrirkomulagi sporbrautanna; er alIstaSar varð skoðun hans ofan á og enn í dag bera járnbrautirnar á sér merki hans. Ýmsar smávægilegar endurbætur hafa verið geröar síðan á eimreiðunum, einkum að því að auka dráttarkraft þeirra svo, að auka ekki þyngd vélarinnar óhæfilega. En; að öllu verulegu er innri bygging eim- reiða enn í dag eins og hún var í Rocket frá hendi þeirra feðga, Stephensons og Ró- berts. Fyrsta eimreið Stephensons fór 21 km. á klukkustund. Þá þótti öllum sá hraði vera »vonum framar«. En nú fara hröð- ustu lestir 150 km. á sama tíma. VII. Æfilok Stephensons. Starf hans og einkenni. SíðUstu ár æfi sinnar lét Stephenson af störfum og lifði bjart og fagurt æfikvöld og naut virðingar og þakklátssemi þjóðar sinnar í ríkum mæli. Hann bjó síðast í Tupton-Kouse í Chesterfield og hafði þá einkum búskap og garðyrkjustörf sér til skemmtunar. Hann dó 12. ágúst. 1848. 1 viðurkenningarskyni fyrir þá »dýr- mætu þjónustu, sem Stephenson hefði veitt mannkyninu«, var leitað samskota handa honum eftir það er Liverpool-Manchester- brautin var opnuð til umferðar, Samskoj-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.