Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1939, Síða 5

Heimilisblaðið - 01.06.1939, Síða 5
HEIMI LÍSBLAÐIÐ 97 4. Barátta Morse fyrir símalagn- ingunni. Hann fór þá enn austur um haf (1838), til Englands og' Frakklands, til að fá þar einkarétt á fyrirhuguðum síma, en kom aftur bónleiður til búða sinna vestan hafs. Nú liðu svo fjögur ár, aði hann barðist fyrir þessu máli eftir mætti, og leitaði stöðugt ásjár hjá þinginu. í Washington. Einkarétt á uppfundningunni veitti þó þingið' honum 1840; en sá réttur kom að engu haldi, þar se.m hann vantaði aflið þeirra hluta, sem gera skal. Á síðasta fundi þingsins 1842—3, lá hon- um við að örvænta; var sá fundur haldinn að kveldi hins 3. marz 1843. Hann gekk þá hnugginn burtu, áður en fundi væri slitið. En morguninn eftir skein honum sól úr skýjum. Honum varð litið upp og' sá þá, að auglýst var, að þingiði hefði á síðustu stundu veitt honum fjárstyrkinn, sem hann hafði svo lengi sótt um, en það voru 30,000 dalir (dollars), ætlaðir til ad gera próflagningu á síma milli áðurnefndra borga. Aldrei hafði Morse lifað glaðari stund. 5. Fyrsti sími lagður. Morse hlýtur heiður og viðurkenningu. Nú var þegar tekið til verka og á næsta ári (1844) var símalagningunni lokið. Fyrsta skeytið, sem Morse sendi með sím- anum milli Washington og Baltimore, var svo látandi: »Sjáið, hverju Guð hefir til vegar kom- ið!« Lýsir það skeyti hugarfari hans og trúarlífi betur en nokkuð annað. Blööin báru nú óðara þessa furðufregn út um heiminn og hrósuðu því mjog, hve ritsími Moi’se væri haganlegur og nyt- samur. Morse átti nú fyrst framan af í nokkr- um lagadeilum við ýmsa. keppinauta, út af því, að þeir brutu einkaleyfi hans og réttindi til símalagninga; en þau mál féllu öll honium í vil, og hann hlaut makleg’ laun Louis Jacques Mandé Daguerre. fyrir uppgötvun sína. Er vafamál hvort nokkur Ameríkumaður hafi hlotið fleiri heiðursmerki í lifanda lífi en hann. . Yale-háskóli veitti honum æðstu nafnbót fyrir vísindamennsku. Tyrkjasoldán sendi honum demantskingu (Nisan Iftikar) í heiðurskyni, konungur Prússa og konung- urinn í Wurtemberg og Austurríkiskeisari, sendu honum sinn verðlaunapeninginn hver fyrir vísindalega starfsemi hans. Þjóðhöfð- ingjarnir á Frakklandi, Spáni, Italíu, Port- úgal og konungur Dana, sendu honum sín æðstu heiðursmerki. Símafélögin í London og París héldu honum fagnaðarsamsæti. I Bandaríkjunum var honum haldið eitt slíkt samsæti og voru, þar saman komnir 100 fulltrúar frá nálega hverju ríki í sam- bandinu. Allt þetta gerðist á árunum 1846—1858. Að tilhlutun Napóleons III. komu sam- an í París fulltrúar frá Frakklandi, Rúss- landi, Svíþjóð, Belgíu, Hollandi, Austur- riki, Sardiníu, Toskana, páfanum og' Tyrkj-

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.