Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1939, Qupperneq 14

Heimilisblaðið - 01.06.1939, Qupperneq 14
106 HEIMILISBLAÐIÐ Hringur drottningarinnar af Saba Skáldsaga eftir H. Rider Haggard 1. kapítuli. HRINGURINN. Ég' hygg, a3 flestir hafi lesið það sérrit, þar sem góðvinur minn prófessor Ptolo- meus Higgs, lýsir hinu svonefnda Murs- hálendi í Mið-Afríku norðanverðri, hinn fornu neðianjarðárborg, ásamt fjöllunum, sem umkringja hana og hinum einkenni- lega stofni Abessiníu-Gyðinganna, eða rétt- ara sagt hinna. blönduðu niðja þeirra, sem bjug'gu þar. En það er helzt, útlit fyrir. að prófessor Higgs hafi fengiö heilan her keppinauta og' óvina, annaolhvort af þvi, að þeir öfunda hann af frægðarverkum hans eða, af því, að hann er svo hvassorður. Og þessir andstæðingar hafa risið öndverð- ir í gegn honum í ritum sínum. Það er ekki lengra síðan en í morgun, að einhver þeirra sendi blöðunum bréf, sem lýtur að einhverjum ferðalang, sem hélt fyrirlest- ur í Brezka félag'inu fyrir nokkrum árum. Um hvað var sá fyrirlestur? Hann var um það, hvort prófessor Iliggs hafi í raun og veru riðið yfir eyðimörkina, á úlfalda., eins og’ hann sjálfur segir frá, eða hvort, það hafi ekki miklu frernur veriði óvenjulega stór landskjaldbaka. Prófessorinn stórreiddist árásinni í þess- um pistli. Því að eins og ég hefi þegar drep- ið á, þá er hann allt annað en hogvær. Ilann er þegar farinn að heiman úr húsi sínu í Lundúnum og' tók með sér svipu úr flóðhests-skinni, þá sem Egiptar kalla kórbasj og' ætlar með henni aö lumbra á þessum vargi, sem meiddi mannorð hans. Þegar ég' heyrði þetta, þá gerði ég mig svo djarfan að síma til sökudólgsins, að hann skyldi hafa sig á burt sem fljótast. Og þó að sá herra láti mikið yfir sér á prenti, þá er hann mesta væskilmenni í sjón og par að auki heigull að eðlisfari. Og af þvi hve skyndilega hann sleit við mig símtalinu, bá keinur mér í hug, að hann hafi látið sér bendingu mína að kenningu verða. Að minnsta kosti hefi ég gert þá varúðarráð- stöfun aukreitis, að bera þetta mál ur.dir lögmann vinar míns. Lesarinn skilur það vonandi, að ég' skrifa ekki þessa, bók til að trana sjálfum mér eða öðrum fram. Ekki geri ég það heldur til að græða, fé, enda er mér engin þörf á því, sem stendur. Ég geri það ekki af nokk- urri annari ástæðu en þeirri, að ég vil að sannleikurinn komi í ljós. Það hafa svo margar kviksögur gengið um það, hvar vér höfum verið, og um það, hvað oss hefir að höndum borið, að það varð bráðnauðsyn- legt, að segja hið sanna, Öðara en ég hafði lagt frá mér hinn ó- geðslega ])laðadálk, allan sjúkþræddan með| hæðilegum orðum og dylgjuim, eins og ég drap á áðan, þá varð mér það ljóst, að ég' varð eitthvað að gera. Eg sendi óðara símskeyti til höfuðsmanns, Oliver Orme. Þessi maður er nefnilega hetjan í sögu minni, ef annars er þar um nokkra sögu- hetju að ræða; hann er nú sem stendur á mjög geðífelldri för kringum jörðina. Ég bað hann leyfis að mega, skrifa. Og' fyrir tíu mínútum kom svolátandi svar frá hon- um austan úr Tokio: »Ger sem þér sýnist og' þér finnst nauð- syn til bera. En hafðu skipti á öllum nöfn- um o. s. frv. Ætla nefnilega að koma til baka yfir Ameríku, og hefi beyg af frétta- snötunum. Japan er kvikt. land og kátt«. Þar á eftir fóru nokkur einkamál, sem ég þarf ekki að taka með. Oliver er alitaf rausnarlegur, þeg'ar hann símar. Lesarans vegna held ég að ég verði að gefa stutta lýsingu af sjálfum mér, áður en ég' byrja á sjálfri frásögninni. Ég heiti Richard Adams og' er sonur garðyrkjubónda í Cumberland, kvæntur konu frá Wales. Það er því keltneskt blóð

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.