Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1939, Page 22

Heimilisblaðið - 01.06.1939, Page 22
114 HEIMILISBLAÐIÐ hvað hálfum mánuði og' bað þá bíða aft- urkomu minnar. Til Englands kom ég i morgun. Og' jafn&kjótt sem ég varð þess vís, að þú varst á lífi og' gat spurt uppi heimiljsfang' þitt -— ég fann það í bók, sem heitir: »Hver er hver?« — þá kom ég hingað«. »Hvers vegna komstu nú eiginlega til mín? Hvað vilt þú, aðl ég skuli gera?« spurði prófessorinn. »Eg kem til þín, Hig'gs, af því ég' veit hvílíkan hug þú hefir á öllum fornmenjum. Og og ég kom af því, að mig fýsti að gefa þér fyrsitum og' fremstum tækifæri til að vercla auðugur maður, og' ekki einungis það heldur líka stórfrægur af því að finna nin- ar undursamlegustu fornmenjar«. »Og' þá fórstu ekki í geitarhús að biðja þér ullar«, drundi í Iiiggs. »Og það sem ég vil fá þig til að gera«, sagðS ég ennfremur, »það er að þú bendir mér á einhvern, sem kann að fara með sprengiefni og vill takast. á hendur að sprengja Fung-guðinn í loft: upp. »Já, hægur vandi er nú það, aðl minnsta kos:ti«, sagði prófessorinn og benti á Orme höfuðsmann með pípumunnstykkinu. »Hann er útlærður mannvirkjameistari, hann er hermaðúr og ágætis efnafræðing- ur. Par að auki kann hann arabisku, þvi að hann er alinn upp í Egiptalandi — aí þessu sérðu, að hann er einmitt rétti maó- urinn til aðl inna þetta viðvik af hendi fyr- ir þig«. Ég hugsaði mig nú um litla stund, og þá fann ég það á mér, að ég þorði að treysta honum og spurði: »Viljið þér, Orme höfuðsmaður, takast þetta á hendur, ef okkur semur um skil- málana«. Orme svaraði og roðnaðli lítið eitt vio: »1 gær hefði ég áreiðanlega sagt nei. I dag svara ég því til að minnsta kosti, að ég vilji hugsa um það — það er að skilja, ef Higgs verður með og þér getið frætt ;nig um, ýmislegt. En ég vil vekja athygli á því, að ég er ekki annað en viðvaningur í þessum þremur greinum, sem prófessorinn nefndi, nema hvaðl ég hefi nokkra reynslu í einni þeirra«. »Væri það óviðeigandi, Orme, að spyrja, hvernig horfur yðar og fyrirætlanir hafa getað breyzt svona gagnstaðlega á einum sólarhring? « »Nei, alls eigi ótilhlýðilegt; en það er dálítið sárt að svara spurningunni«, svar- aði Orme aftur og roðnaði að nýju, og nú heldur meira en áðúr. »Annars er bezt að vera hreinskilinn, svo að ég segi eins og er, þrátt fyrir allt. I gær hélt ég, að ég myndi erfa auð mikinn eftir frænda minn; hann varð hættulgea veikur og þess, vegna kom ég fyrr heim frá Suður-Afríku, en ég hafði annars hugsaðl mér. Ég hefi sem só verið alinn upp í þeirri trú, að ég vairi erfingi hans. En í dag barst mér sú fregn, að hann hefði kvænst með leynd konu, sem var langt fyrir neðlan hann. að mannvirð- ingu og að þau hefðu átt barn. saman, sem erfir auðvitað allt saman, þar sem hann hafði enga erfðaskrá gert fyrir dauða. sinn. En þetta er nú ekki allt. og sumt. I gær hélt ég að ég væri harðtrúlofaður; en í dag hafa mér líka brugðist vonir í því efni. Sú stúlka, sem vildi gefast erfingja Ant- hony Ormes«, sagoi hann, beiskum rómi, »vill nú ekki lengur giftast Oliver Orrne, því að allar eigur hans ná ekki 100,Cn0 krónum að upphæð. Jæja, það er nú, ef til vill, ekki vert að ámæla henni né ætt- ingjum hennar fyrir þetta, þar s.em þeir munu hafa augastað á öðtum betri ráða- hag. Að minnsta kosti hefir þessi ákvörð- un hennar gert mér hægra fyrir að ákvarða. sjálfan mig um þetta«. Að svo mæltu reis hann, á fætur og gekk inn í hinn enda stofunnar. »Hrakleg saga er þetta«, sagði Higgs i hljóði, »viðbjóðsleg framkoma.«. Síðan rausaðti hann lengi um þessa nefndu stúlku, um ættingja hennar og Ant- hony Orme, hinn látna útgerðarstjóra, og það allt með því orðalagi, að ekki væri hlustandi á þá sögu sem heimilislestur. Ber-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.