Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1939, Blaðsíða 30

Heimilisblaðið - 01.06.1939, Blaðsíða 30
122 HEÍMILISBLAÐIÐ byrja fyrir alvöru — og svo þögnuðu þau og fóru að leika. Svo aneri ég þaðan og settist á legubekkinn hjá Emmu. Við hlið- ina á Emrnu sat Gamli og var að lesa í Nýja testamentinu sínu -— líklega um heimsendi. En alvara, hans yfir lestrinum var ekki meiri en það, að strax og ég braut upp á einhverju umræðuefni við Emmu, þá þurfti hann endilega að leggja orð í belg. Og óðar en okkur varði, leið tíminn. Allt í einu bar Andrea, Margrét fingur- inn upp að vörunum og þaggaði niður í okkur. Við þögðum ÖU og hlustuðum: níu — tíu — ellefu — tólf! »Gleðilegt ár«, sagði Andrea, Margrét; »nú er nýja árið komið! Gleðilegt ár! Gleðilegt ár! Gleðilegt ár! — ykkur öllum saman!« Og við svöruðum gleðiávarpi hennar einum munni: »Gleði- legt ár!« Nú vorum viðl búin að heilsa upp á nýja árið, eins og skyldan bauð okkur, og var nú kominn tími til að ganga til hvílu. Við óskuðum því enn að nýju hvert öðru gleði- legs nýjárs; og svo fór hver til síns her- bergis. — Já, það var dásamlegt að vera á Hnetubúsprestssetri! Allt var svo skemmti- legt hérna, og allt var hægt að gera — hvað sem hugurinn girntist — nei — eitt var þaðl þó, sem ég ekki gat gert — ég gat ekki sofið. Þassir dagar, sem ég var búinn ao vera hérna, voru svo viðburðaríkir, að mér veitti ekki af: nokkrum hluta næturinnar líka, til þess að hugsa. um þá. Þannig var því einnig varið þessa, nótt. Um, morguninn hafði ég farið á fætur með þeim fasta á- setningi að trúlofasit Andreu Margréti, en nú fór ég að hátta með þeim fasta ásetn- ingi, að trúlofast Emmu. Já, svona var það; það var ekki um að villast. Ég hafði þá um daginn orðið var svo mikillar fegurðar og yndisblíðu hjá henni, að ég í einu orði sagt ■— elskaði hana,. Og' þegar ég fór ao hugsa um það, sem ég hafði lesið í bókinni daginn áður, og sem hafði fullvissað mig um, að ég ætti að trúlofast Andreu Mar- gréti, þá gat það engu síður átt við Emmu. Þar liafði staðið: »Sérhvert samband á milli manns og konu, á, ef það á að full- nægja tilgangi sínum, að byggjast á til- hneigingu og skynsemi«. Tilhneiginguna ■ r ekki um að villast, því að ég elskaðj Emtnu, og að því er snerti skynsemina, þá var ég alveg viss um, að Emma myndi verða fyrir- taks prestkona; um það hafðli ég að fullu sannfærst á göngu okkar um þorpið. Þeg- ar um aldurinn var að ræða — það verður líka að taka. tillit til hans, — þá var eg átján en Emma. tuttugu. Það var allt í lagi og það va,r ekkert þvi til hindrunar, að óg trúlofaðist, Emmu næsta dag. En, sá hæng- ur var þó á, að ég gat ekki gleymt Andreu Margréti, því hún var bæði f jörug og glaö- leg og skemmtileg; og allt þetta átti svo mætavel við mig. Og í hvert, skipti, sem mynd Emrnu birtist í hugskoti mínu, þá kom myndin af Andreu Margréti strax á hæla henni. Og hvernig átti ég svo að kom- ast út úr þessu öngþveiti. Áður fyrr, þegar ég var í einhverjum vandræðum, var ég vanur að snúa mér til Gamla. Hann hélt þá venjulega einhverja áiminningarræðuna yfir m.ér, en ætíð fékk ég þó að lokum ráð- leggingar, sem mér var óhætt að fara eftir. En í sambandi við þessi kvennamál mín, var mér ómögulegt, að leita, ráða hans. Ekki gat hann sagt mér, hvora. þeirra syst- urina ég elskaðti meir. Og þá fengi ég að- eins ræðuna, en engar ráðleggingarnar. Ekki var til neins, að snúa mér að Korpus Júris — hann myndi bara hlæja að mér, og kalla allt, síkt. barnaskap.---- — En hvað þeir hrjóta lystilega, Gamli og Korpus Júris — hvor í kapp við annan - sinn til hvorrar handar við mig! Ö, þið gæfusömu menn! Þið getið sofið svefni hinna réttlátu! Þið þekkið hvorki ástar- kvíða. né ástarvansæld. En ég, þar á móti! Ég sem hafði hugsað að hérna á Hnetu- búi yrði lokið allri minni eymd — hérna byrjaði hún einmitt fyrir alvöru! I Kaup- mannahöfn, þar, sem ég var ástfanginn í þeim öllum saman — þar gerði það ekkert til; en hérna, þar sem ég var astfanginn

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.