Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1939, Qupperneq 38

Heimilisblaðið - 01.06.1939, Qupperneq 38
130 HEíMILISBLAÐIÐ Jarðyrkjumaður. Hann k'vedwr í lýsingu kóngsríkið sitt, því krafan um dagsverk er hörð. Við þann, sem að grœðslunni gaf sig á vald, er gjöful hin stórláta jörð; hann finnur þar .eðlis síns orsakarök í eidskírn liins daglega strits, og veit það, að sigurinn síðasti býr í samstilling handar og vits. 1 heilögu samstarfi moldar og manns býr máttur hins risandi dags. 1 fögnuði stritsins býr frjóvgunarmagn til frelsandi kynslóðahags. Þau geymast til eilifðar átökin hans, er erjaði grænkandi svörð, og starfsemdalaunin að lolcum, hann fœr þó lóng væri brýnan og hörð. í trúnaði lífsins harm treystir sitt þrek og telur ei dagsverhin sín, Jroi starfið er sjálfsþörf og sælan þá mest, er sól yfir ákurirm skín. Hann veit að hver iðja af einlægni gerð, er unnin i þjónmstu hans, sem málaði kvöldroðamyndir á fjöll og morgun til sjávar og lands. — í konungsgarð þreyttur hann kominn er við kveðjur frá lækkandi sól. [heim Og öryggissœlan í sálu hans vex að sjá þetta friðaða ból! Úr dásemdum lifsins sinn dýrasta þráð liver dis inn í æfi hans spcmn,--- Nú bíða þau óhult sínis upprisudags í armlögum moklin og liann. »Lögberg'«. Einar P. Jónsson. hefi þjónað Kristi í 80 ár, hann hef- ir aldrei gert mér annað en gott. Hvers vegna ætti ég þá að afneita honum? Polyccurpus. Hann fyrirleit arfinn. Fyrir nokkrum árum voru menn önnum kafnir í að rökræða alveg einstakt fyrir- brigði. Maður nokkur, sem hafði aflað sér óhemju a.uðæfa meði vínsölu var dáinn. Nánustu vinir han-s og kunningjar höfðu alls enga hugmynd um, hve ríkur harin var orðinn. Þegar arfleiðsluskráin var opnuð, kom það í ljós, að milljónamæringur þessi hafði arfleitt frænda sinn, ungan réttarritara á lágum launum, að 25 milljónum króna, sem hann gat fengið í lófann, nær sem hann vildi. Erfinginn mætti hjá málafærslumannin- um, sem fór með arfleiðsliugerðina, og neit- aðíi að taka við arfinum. Allir, sem á heyrðu, urðu, sem þrumu lostnir af undrun. Málafærslumaðurinn hélt fund með frændum og vinum, erfingjans, af því að hann óttaðist., að hann væri ekki með réttu ráði, og spurði þá, hvort herra Charries — en svo hét erfinginn — myndi í raun og veru vera. með öllum mjalla, Allir báru þeir hinum heiðkirða unga frfingja hinn bezta vitnisburð og fullyrtu, að hann væri frábærlega heilbrigður á sál og líkama. Málafærslumaðurinn krafðist þess þá, að erfinginn, skyldi gefa. yfirlýs- ingu um, hvers vegna hann ekki vildi taka á móti arfinum. Eftir nokkra umhugsun sagði erfinginn eftirfarandi sögu: Hann stóð einu sinni, fyrir nokkrum ár- um, að kveldi til, fyrir framan dyrnar á veitingahúsi frændans, sem nú var dáinn. Skyndilega kom vel búinn maður, sem virt- ist vera. af heldra fólki, þjótandi út um dyrnar á veitingahúsinu. Hann rauk rak- leiðis til fagurrar, fölleitrar og fátæklega klæddrar, ungrar konu, sem stóð titrandi og grátandi við dyrnar. Þessi ölvaði maður sneri sér að eigin- konu sinni — þetta var hún ■— á hinn ruddalegasta og ósvífnasta hátt fyrirbauð henni með fúkyrðum, blóti og formæling-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.