Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1939, Page 14

Heimilisblaðið - 01.08.1939, Page 14
146 HEIMILISBLAÐIÐ ið sem við stúdentar átum í okkar eigin húsakynnum á Mensa academica nú fyrir rúmum fimtán, sextán árum a. m. k. Og ekki aðeins vegna þess, heldur líka vegna hins að eg sé í hendi minni að á þessu sviði eiga Islendingar að geta aflað sér góðs og fremur fljóttekins markaðar um Ameríkn þvera og endilanga, eða að m. k. í stórborgunum, Því framleiðsla Svía og Norðmanna á þessum sviðum er þekt hér og vel metin, virðist því engin ástæða til þess að samskonar íslensk vara selj- ist ekki, ef hún annars er samkeppnisfær. Mér er meir en lítil forvitni á að smakka þessa spánnýju íslands síld, eg fer því til upplýsingar-stúlkunnar og fæ að vita hver hefur umboðssölu á henni. Og nú þegar eg skrifa þetta hef eg fengið slatta af síldinní og get borið um að mér þótti hún góður matur. Óska eg hinu unga fyrirtæki allra heilla og happa. En ef eg mætti biðja þá einhvers fyrir sjálfan mig, þá væri það flakaður reyktur rauðmagi í olíu. F.g veit ekki hvort nokkrir fram- leiða þá vöru, en þunnu laxflökurnar sem Japanir selja mikið af hér í Ameríku minna mig dálítið á rauðmagann. Upplýsingar um fiskinn fann eg á síðustu síðu smáritsins lceland, sem af- greiðslustúlkurnar í Islendingaskálanum gefa hverjum sem hafa vill. Er það snot- urt kver með fallegum myndum af Geysi, Þorfinni karlsefni, Reykjavík, Mývatni, Laugarvatni o. fl. Eru þar í stuttar og laggóðar*) upplýsingar um land og þjóð, og auk þess auglýsingar frá ýmsum merkum fyrirtækjum og verslunum á íslandi. Er lítill vafi á því að kver þetta fái meiri útbreiðslu en flest önnur rit, sem um Is- land hafa verið skráð; því aðsóknin að skálanum mun skifta hundruðum þúsunda ef ekki miljónum áður en lýkur. Eru allir fúsir að fá sér kverið, þótt fæstir vilji leggja meir í kostnað, nema helst frímerkjasafnarar, sem altaf kaupa meira og minna af frímerkjum. Það er mjög ánægjulegt að renna huganum í anda til íslensku sýningarinn- ar og íslensku hátíðahaldanna 17. júní. Maður gleðst ekki aðeins yfir því hve mynd- arlega hefur tekist að auglýsa landið og þjóðina, hve margt fallegt er að sjá á sýn- ingarskálanum. Miklu fremur gleðst maður yfir þeirri atorku og þeirri djörfu framsóknar-þrá, sem liggur bak við sýninguna og sem er einkenni Islendinga nútímans. Mér er að vísu vel kunnugt um það, að ekki er alt sem sýnist á sýningu þessari; eg skal rétt aðeins minna á hinn innantóma skrokk þjóðleikhússins, sem hér sést aðeins að utan. Mér dylst ekki, að rnargt fer meir en aflaga í voru góða landi, íslandi. Og þegar mér hefur orðið liugsað til skuldabyrði landsins og til- rauna landsmanna til að draga sig upp úr því feni, hefur mér oftar en einu sinni hvarflað í hug Munchausen gamli, sem dró sjálfan sig ásamt hesti og her- klæðum upp úr dýi á sínu eigin hári! En síst ferst mér, sem stend utan leiksins að lá þeim sem stríða í ströngu. Og á hinn bóginn er það ótvíræður sögulegur sannleikur, að ytri aðstæður, heimspólitík og óhagstæð utanríkisverslun hefur skap- að mikið af örðugleikum vorum, þótt margt því miður, sé sjálfskaparvíti. En — þrátt fyrir alt brask og braml eru íslendingar framsóknarmenn. Sjálf- stæðistrúin hefur beint þeim hátt, svo hátt að til mannrauna horfir. Þessar mann- *) Því miður hefur þjóðernisástin á tveim stöðum hlaupið með heiðraða höfunda í gönur, sem þeir mega illa leyfa sér, ef þeir vilja sitja að Leifi heppna *em íslendingi. Fyrst telja þeir Eirík rauða íslenskan, en hann var fasddnr í Noregi. Þar næst telja þeir að hvorki Hamlet né Nieblungenlied hefðu orðið til án íslendinga, en þetta »proud »tatcment« er rangt, þó góðir menn »é fyrir bornir.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.