Heimilisblaðið - 01.08.1939, Blaðsíða 21
HEIMI LISBLAÐIÐ
því er sagt var, og telja Japanir það aðal
orsök til hernaðar síns á hendur Kínverj-
um, að það hefði verið óhjákvæmileg skylda
sín, að »frelsa« kínversku þjcðina frá kom-
múnista-yfirganginum og friða landið og
sameina undir sinni yfirumsjón. Um að-
ferð Japana við það »líknarstarf« er öllurn
kunnugt, og »frelsið« hafa þeir fært millj-
ónunum með líkum hætti, og óaldarflokk-
arnir áður, með því að deyða alla þá, sam
þeir hafa náð til með vítisvélum sínum úr
lofti og á láði. En um sameiningar-áhrif
þeirra fór á annan veg, en þeir höfðu til
ætlast, því fólkið tekur nú á undanhald-
i,nu æ meir og meir höndum saman til varn-
ar og nýrra framkvæmda í menningarátt,
undir aðalleiðsögn hinna frægu hjóna, her-
foringjans Chiang Kai Shek og konu hans,
ásamt. annara ágætra þjóðræknisvina og
stjórnarinnar, sem nú hefir aðsetur sitt í
borginni Chung-king, vestan fjalla, þar
sem hún hyggst að geta varist og komið
sér fyrir til frambúðar.
Af eftirfarandi útdrætti úr nýlegri rit-
gerð um þessa miklu fólksflutninga í Kína
og samtök miljónanna, sem áöur voru all-
mjög sundurleitai, sannast v:ssulega máls-
hátturinn »neyðia kt'mir naktri konu að
spinna«.
Með öllum þeim
glundroða, sem
hinum miklu fólks-
flutningum og
fiótta að sjálfsögðu
er samfara, færast
vesturlandinu
margvisleg vanda-
mál til úrlausnar,
en einnig starfs-
þróttur og andleg
úrlausnarhyggja
til framsóknar og
úrræða í hvívetna.
Þegar Kínverjar
sáu, að þeir yrði,
að yfirgefa fyrr-
verandi höfuðborg
eða stjórnarsetur sitt, Nanking, fór brott-
förin fram samkv. fyrirhuguðum herstjórn-
arreglum. Allt var flutt, skólar jafnt sem
verksmiðjur, að byggingum auðvitað undan
Sikildum. Háskólinn þarna, til dænn's, flutti
sig vestur með fljótinu, ellefu hundruð
stúdenta, kennara og kennslutæki, og sett-
ist að í Chungking; þar voru þá engar
byggingar fáanlegar fyrir skólann, en á
40 dögum komu þeir sér upp 24 bráða-
birgðaskýlum, sem sýnir, að nú var ekki
setið auðum höndum. Slíka sögu er að segja
frá öðrum borgum og bæjum á flóttasvæð
unum, er fólk sá, hvað verða vildi. Nankai-
háskólinn í Tientsin fór jafnvel fyrir
þremur árum að koma sér upp húsum vest-
ur í Chungking og Yunnanfu til undirbún-
ings þess. sem nú er komið á daginn. Þeg-
ar Japansmenn tóku að skjóta sprengjum
á háskólann til þess að eyðileggja hann,
var allt þar komið þúsundir mílna vestur
í land. Bráðabirgðaskólarnir, sem stofnað-
ir voru í Sian, eru að smáfæra sig, og
halda uppi stöðugri kennslu á »gönguför«
sinni, og eru enda sumir komnir vestur að
landamærum við Tibet.
Unnið er að því sleitulaust að koma. á
skipulagi. meðal miljónanna, sem að austan
koma, og útvega þeim verustaði í hinu
KínversJiir hermenn.