Heimilisblaðið - 01.08.1939, Side 22
154
HEIMILISBLAÐIÐ
»n.ýja Iandnámi«. Að þessu vinna auk
hinna ýmsu stjórnardeilda, mörg líknar-
og mannúðarfclög, svo sem Kristilegt fé-
lag ungra manna og kvenna, sem safna
fólkinu í deifdir og flokka., til að kenna því
að lesa og útvega því atvinnu. Hið sama
gera og hinar útlendu trúboðsstöðvar.
Flóttafólkinu er jafnað niður á hinar ýmsu
sveitir, og voru til dæmis héruðin í Hupeh-
fylki.nu, 48 að tölu, beðin að taka að sér
5000 aðkomufólks hvert um sig.
Stjórnarsetrið Chungking er 1400 mílur
vestur frá hafi, að baki hárra fjallgarða
og vestan við gljúfragöng þau, sem
Yangtze-fljótið fellur um; þangað ná því
ekki Japansmenn með hersnekkjur sínar,
er þangað talin of mikij fjarlægð til þess
að mjög hættuleg aðsókn úr lofti geti átt
sér stað. Umhverfis þetta nýja höfuðbói
hyggjasc Kínverjar nú að geta hreiðrað
sig til frambúðar. Er þarna afar mikið
landflæmi,, og strjálbyggt. Eitt fylkið,
Szechwan, er um 155 þús. ferhyrningsmíl-
ur að stærð. Þar er mjög frjósamt akur-
lendi, sem all.t til þessa hefir lítt orðið að
notum, vegna ráðríkis herskárra jarla og
yfirgangsseggja. Á síðustu fimm árum hef
ir þó þarna verið komið upp margskoner
verksmiðjum og' mikið unnið að vegabðt-
um. Fyrir stríðið va,r fólksfjöldinn í Chung-
king liðug hálf milljón að tölu, en hefir nú
stórum aukist.
Þar eð höfnunum á austurströnd lands-
ins er nú lokað af Japansmönnum, vinna
Kínverjar að því dag og nótt að grei,ða sér
veg »út um bakdyrnar«, eins, og þeir nefna
það, í áttina til Evrópu, gegnum hafnar-
staðina við Indlandshafið- Og á síðastliðn-
um sex mánuðum hafa verið ruddir vegir,
er að lengd jafnast. á við Vs slíks verks
tíu árin næstu á undan. I tvær áttir sér-
staklega, hefir kappsamlega verið unnið að
vegagerði.nni, þeirra er »10.000 li-vegir«
eru nefndii. Stefnir annar þeirra suðvest-
ur til Burma við Indlandshaf, en hinn norð-
vestur til rússnesku Turkestan. Þá er og
lögð stund á a.ð ná með járnbrautar-sam-
bandi að landamærum Indo-Kína, en þang-
að er búist við að Bretar leggi, braut frá
Burma. Til dæmis um dugnaðinn við aám-
göngubæturnar, þarf ekki annað en nefna
það, að vegabótin frá Chungking til Rang-
oon, í tvc þúsuncl mílna fjarlægð, var gei'ð
á minna en tólf mánuðum, og það með mjög
gamaldags áhöldum. Þetta er leiðin, sem
hinn frægi Marco Polo fór forðum daga.
Að þessu unnu, karlar, konur og ja.fnvel.
börn., í flokkum, sem hver um sig sá um
að draga að efni til
ákveðins brautar-
hluta, sem bar svo
nafn mannflokks-
ins, sem verkið
framkvæmdp
Margt af fólk-
inu, sem að þessu
vann, kom frá af-
skektum lands-
hlutum og hafði
aldrei séð »gas-
vagn« og dínamít
var því áður ó-
þekkt. Það hafði
gaman af hávaðan-
um, er sprenging-
unum fylgdu, og