Heimilisblaðið - 01.08.1939, Side 23
HEIMILISBLAÐIÐ
155
hópaðist kringum þær, þrátt fyrir aðvar-
anir, svo að slys hlutust af all-oft. Eina
nýtízku áhaldið þarna, þar borinn, sem
dínamít-holurnar voru grafnar með, hitt
allt. voru einfdld verkfæri með tvd þúsund
ára gömlu lagi mörg hver.
Höfuðsmenn allra þorpa, þar sem dvelja
ýmiskonar kynflokkar og ekki eru af kín-
verskum stofni og búa í átta göngudaga
fjarlægð frá vegagerðinni, voru, skyldaðir
til að senda vissa tölu, og þeir, sem kosnir
voru, til þessa urðu að fara, nema þeir
væri nógu efnaðir tij að borga staðgöngu-
mönnum. Engum var borgað fyrir vinnuna,
og mótmæli voru ekki tekin til greina, þvi
vegagerðin var talip stríðsnauðsyn. Braut,-
argerð þessi er ein af heimsins mestu fram-
kvæmdum í verkiega átt. Viðgerða- og
lækningastöðvar eru stofnsettar á vissu
milliþiii með fram brautunum og til ferða-
laga og flutnings, notuð hin ólíkustu áhöld,
svo sem hreyfivagnar og uxakerrur, en
undir þær er reynt að fá gömul bifreiðar-
hjól, allt verður að nota. — Fyrsti mað-
urinn til að aka um brautipa frá Chung-
king til Rangoon, var Nelson T. Johnson,
sendiherra Bandaríkjanna.
Til þesiS nú að spilla fyrir árangri af
samgöngubótum þessum, reyna Japanir að
æsa Burma-fólkið
tij mótmæla og að
hrópa: »Burma
fyrir Burmverja!<<,
sem leiddi jafnvel
til blóðsúthellinga.
Einnig eru Japan-
ir að reyna að
vopna kynflokkana
í Yunnan og æsa
þá til að eyðileggja
lestaferðiy og brýr.
Kínverska stjórn-
in leggur allt kapp
á að auka matar-
forðann fyrir hin-
a,r aðkomandi milj.
Bankarnir leggja
fram milljónir dollara til bændalána, fyr-
ir endurbætt útsæðiskorn, áburð og ávei.tu-
fyrirtæki. Land, sem áður hefir verið not-
að til að framleiða svefngras (poppy) og
vi,ssa teg. hrísgrjóna til víngerðar, verður
framvegis sáð korni og öðrum jarðargróða
til manneldis og dýraræktar.
Á þessum stöðvum er, auk mikilla jarð-
ræktar-möguleika, um stórkostlegan náma-
auð að ræða, og hafa rannsóknarsveitir
fundið þar olíulindir meðal annars. Járn
er nú unnið þar úr jörðu, sem ajlt. til þessa,
var flutt að á dýru, verði. Og tinlögin í Yun-
nan eru sögð meðal heimsins mestu tiniaga
í jörðu. Efri hluti Yangtze-fljótsins hefir
um margar ajdir verið nefndur »Gullsands-
áin«. Og á mörgum stöðum þar um kring
kvað vera gnægð gulls í jörðu.
Á milLi. Szechwan og Yunnan er hið ný-
myndaða Sikong-fylki, og var hin fyrsta
stjórn þess sett á laggir 1. janúar 1939.
Þótt þetta sé aðallega fjallaland, eru þar
þó afar víðfeðmar graslendur, eins og til
dæmis í Kanada, Gull og aðrir málmar eru
þar víða, í jörðu og timburlendur miklar.
Járnbraut frá Burma myndi veita auðvelda
leið að auðsuppsprettum þessum í jörðu og
á; en slík braut yrði að leggjast um tor-
færur á borð við KLettafjöllin í Kanada.
Japanir nota hunda í áhlaupum sínum.