Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1939, Page 27

Heimilisblaðið - 01.08.1939, Page 27
HEIMILISBLAÐIÐ 159 er! — að hugsa svona dfíMialaust vel um mig!« »Nei, það er nú ekki beinlínis því aö heilsa. Ég fann þá af tilvjljun í vasa mín- um. Pað er víst langt síðan ég hefi, stungið þeim þar«, svaraði hann. Hanzkarnir voru nýir og féllu svo vel að fingrunum, — alveg eins og þéir hefðu ver- ið saumaðir handa mér. »A11 right!« sagði ég við sjálfan mig. Nú gat ég byrjað bar- dagann, þegar hver vildi. ★ Síðan fórum við inn. í dagstofuna. Par voru prestshjónin og dætur þeirra, og biðu gestanna. Emma og Andrea Margrét voru hvítklæddar, og hafði Emma hvítt perlu- band fléttað í sitt svarta hár, en Andrea Margrét hafði rósasveig um höfuðið. Prest- urinn stóð á miðju gólfi„ kjólklæddur, meö hvítt hálslín og hvítt handlín. Andrea Mar- grét var að laga hálsbindið á honum; hafði hann auðsjáanlega hnýtt það eins ram- byggilega eins og Gamli. »Hana.' nú — hana nú; þetta er nú orðið ágætt! Ég er orðinn nógu fallegur! Sjáið þið bara. hvað hann Nikolaj glápir á.mig! Ég held, að hann þekki mig varla«. Já, það var sa.tt, að allur þessi hátíða- skrúði átti tæplega við hversdaglega og al- úðlega framkomu haps. »Já, hvað gera menn ekki fyrir konu og börn«, sagði presturinn, um leið og ha.nn togaði i handlínin; »mér finnst nú, satt að segja, að gestirnir ættu að fara að koma«. »Þú mátt ekki vera svona óþolinmóður«, sagði Andrea Margrét; »klukkan er ekki nema hálf fimm; en gestirnir áttu að koma klukkan fimm«. »Jæja«, sagði presturinn; ihvers vegna hafið þið þá skrýtt mig svona snemma. Nú eyði ég tímanum, bara. til ónýtis. Komið þér yfir um með mér, Nikolaj; við skulum fá okkur í pípu«. En það vildi Andrea Margrét ekki heyra nefnt, því að þá mvndum við flytja tóbaks- lyktina með okkur aftur, inn í herbergin. Já, hún átti fullt í fangi með að gera föð- ur sinn rólegan. Þegar honum var bannað að reykja, fór hann að maula smátvíbökur, sem þar voru á diski, og bauð mér að boröa sér ti.l samlætis. »Nei, pabbi minn. Þetta máttu ómögu- lega gera. Hvað ætli að gestirnir segi, ef þeir sjá, að við erum byrjuð að borða, áður en þeir koma!« »Ja —- hvað á ég þá að taka til bragðs? Þarna sjáið þér, Nikolaj, hvernig farið er með mig. Það er hvergi flóafriður. Svona er að vera eiginmaður og húsbóndi. Nei, þér skuluð aldrei gifta yður -— ekki einu sinni önnu gömlu — þér munuð annars i.ðr- ast og það um seinan«. Til allrar lukku heyrðist nú til fyrsta vagnsins, og svo komu þeir, hver á fætur öðrum. Smámsaman fór stofan að fyllast af fólki, og allt var það mér ókunnugt. Ég kannaðist ekki við eitt. einasta andlit. En mér stóð þetta að mestu leyti á sama. Ég leit varla við kvenfólkinu. Ég ætlaði bara að dansa, við tvær — Emmu og Andreu Margréti. En við hvora þeirra átti ég að dansa fyrst. Það var sú hin mikla spurn- in.g, sem öll mín ókomna æfi átti að byggj- ast á. Því að nú hafði ég fastákveöið, að ég ætlaði statt og stöðugt að biðla til þeirr- ar, sem ég dansaði fyrst við. Ég hugsaði og hugsaði, ákvað og hætti við, játaði og neitaði; en eftir því sem ég hugsaði leng- ur, eftir því varð ég ruglaðri og ruglaðri. Þegar ég var ákveðinn í því að ganga til Andreu Margrétar, var eins og einhver innri rödd hvíslaði að mér; »Nei, þú skalt fara til Emmu«. Og þegar ég ætlaði að fara til Emmu, þá hvíslaði önnur rödd: >Nei, þú skalt fara tij Andreu Margrétar«. Andrea Margrét var önnum kafin viö að taka á móti gestunum. En allt í einu slanz- aði hún beint fyrir framan mig og sagði: »Hvað er að yður, Nikolaj? Þér eruð þó víst ekki veikur? Þér eruð svo laslegur«. »Þetta er bending forlaganna«, hugsaði. ég; og án þess að svara spurningum henn- ar, sagði ég: »Þér dansið líklega fyrsta dansinn við mig?«

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.