Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1939, Qupperneq 30

Heimilisblaðið - 01.08.1939, Qupperneq 30
162 HEIMILISBLAÐIÐ Kristur og mannleg þjáning. Mennirni.r ámæla. Guði fyrir það, að hann hefir skapað veröld, þar sem mætt getur synd og þjáning. En jafnframt því að vér hugleiðum, hversu það þjáiy oss a.ð lifa og starfa í slíkum heimi, skulum vér ekki gleyma því, hvað það þjáir Guð, og hefir þjáð lutnn. Ef Guð hefði skapað veröld, þar sem engir möguleikar voru fyrir synd og þjáningu, þá hefðu mennirnir ekki ver- ið valfrjáis.a.r verur, með hæfileika til að kjósa og hafna. Vér hefðum orðið leikbrúð- ur en ekki, persónulega.r verur, vélar en ekki manneskjur. Þess vegna valdi Guð hina stórkostlegu áhættu, að skapa siðferði- legar verur, með möguleika til ills og góðs. Og kærleikanum var ekki annaö ætlandi. Mannlegir foreldrar leiða börn inn í heim- inn, enda þó þa;u eigi það á hættu, að börn- in. villist í veröldinni og leiði sorg og þján- i,ng- yfir hjörtu þeirra, jafnvel sprengi þau. En engu að síður: foreldrarnir taka á sig þessa áhættu. Ástin getur ekki annað. Þannig hefir Guð tekið á sig- áhættuna að skapa veröldina, til þess, á sama augna- bliki, skyldi hjarta hans springa. Um þetta er kross Krists hið talandi vitni. Við aköp- unina, tók Guð á sig áhættuna, og á kross- inum viðurkenndi, hann það og tók á sig ábyrgðina.. Hann vildi taka á sig fali mannsættarinnar. Sköpunin átti að verða að endursköpun. Á bak við sársauka og' þ,jáni,ng mannlífsins slær voldugt og kær- leiksríkt hjarta. (Or bók Stanley Jones: Kristur og mann- leg þjáning). Uppeldi barna. Hreinshilm. Ef börnum verður eitthvað á, eru þau oft hrædd og hikandi við að segja sannleikann (sbr. söguna um öxina hans Georgs litla Washington og perutré föður hans). Foreldrar og fræðarar verða um fram allt að stappa stálinu í börnin •ad vera hreinskilin, og börnunum verður •a.ð skiljast það, að þeir, sem eru að ala þau upp, vilja þeim eingöngu það bezta. Menn verða ætíð að krefjast. þess að börn- in viðurkenni sérhverja yfirsjón og skilji í hverju hún liggur — en láta þau ekki komast upp með að fegra hana. með ósönn- um eða hálfum afsökunum (eins og Eva gerði með eplið). Og þegar börnin hafa við- urkennt. og skilið yfirsjónina, fljótræðið, vanmáttinn o. a. frv., ber að sýna þeim mildi, samúð og skilning og væga. refsingu. Smátt. og smátt má svo taka þéttara í - taumana. En það má heldur ekki kref jast meira af börnum, en efni standa til, að öðrum kosti verður afleiðingin sú, a.ð börn- in leita uppi aila hugsanlega felustaði og fíkjuviðarblöð, til þess að skýla. sér fyrir ósanngirni og hörku, og á þann hátt hafa næsta, mörg börn verið flæmd inn á hin- ar villugjörnu krókaleiðir lyginnar og óhreinskilninnar. Taktu barnið í faðm þér (eins og faðir litl’a. Georgs og faðir glataða sonarins, og vinur ræningjans á krossinum) þegar það játar hreinskilnislega yfirsjón sína. — Gleymdu, yfirsjónum þess, þegar það fer að þrá siðferðilega lífsvenjubreytingu, og hjálpaðu því til að verða gott barn, hrein- skilið og göfugt. Stirð í hnjánum. Eiginkona manns nokkurs, sem bjó í nánd við Stokkhólm, heyrði hann eitt sinn vera. að tala um þaðí, að aUt. sem þau ættu, yrði nú að selja á nauðungauppboði, af því að hann hefði gengið í ábyrgð fyrir allstórri fjárupphæð fyrir einn kunningja sinn, án hennar vitundar. Konan varð svo ofsareið, er hún heyrði þetta, að hún yfirgaf mann sinn og heim- ili og rauk af stað til Stokkhólms. Fyrir handleiðslu Drottins kom hún um kvöldið þangað, sem verið var að halda samkomu til styrktar og gleði fátæku fólki. Var hún þá bæði orðin sárhungruð og að fram komin af þreytu. Henni var tekiö þarna með kostum og kynjum, og þegar

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.