Heimilisblaðið - 01.10.1939, Blaðsíða 2
166
HEIMILISBLAÐIÐ
Skuggsjó.
Byron.
Lengi hefir verið vaii á því, hvprt það var
í raun og veru lík Byrons lávarðar, sem ensk
freigáta, flutti heim frá Hellas, fyrir 15. árum,
og var þá grafið í Hucknall í Nottinghamshire.
Sóknarpresturinn, séra Barber, hafði ákveðið að
rannsaka þetta.
Og nú er það orðið.
Séra Barber hafði fengið leyfi 'núverandi Byr-
ons lávarðar og innanrlkis-ráðuneytisins, til þess
að opna grafhýsi œttarinnar í jarðhúsi kirkjunn-
ar, í blýkistu fundust þar síðustu leyfar Byrons.
Líkið var smurt, og presturinn gat þekkt and-
litsdrætti Byrons, eftir myndum frá h,ans tímum.
Frá Batavía
á eyjunni Java, er sagt frá afreki miklu, sem
maður vann, er hann bjargaði konu sinni frá
að verða etin af krókódílum. Þessi geigvænlegi
atburður skeði í Kapas, þar sem Evrópukonur
baðai sig, þrátt fyrir strangar aðvaranir.
Stuttu e'ftir að kona þessi kom út í vatnið, var
hún dregin niður i það af krókódíl, sem hafði
gripið hana. Maður hennar hafði samt tekið eft-
ir þessu hræðilega ástandi h,ennar, og kastaði sér
alklæddur I vatnið og kafaði niður á eftir krókó-
dílnum. Honum heppnaðist að hræða krókódílinn,
svo að hann sleppti bráð sinni, Og hjónin koni-
ust bæði heil á húfi til lands..
Reikistjarnan Marz.
Vegna þess að reikistjarnan Marz var nær jörð-
inni, en hún hefir verið i 15 ár, notuðu nokkrir
útvarpssérfræðingar tækifærið, til þess að seyda
skeyti til reikistjörnunnar frá Baldwin í Lou-
isiana. Tilraunin var gerð með kerfi sameigin-
legra útsendinga frá heilum hóp útvarpsstöðva.
Margir stjörnufræðingar voru, viðstaddir.
útvarpsstarfsmaður sagði Reutersfréttastof-
unni, að merkið mundi þurfa 3 mínútur, til þess
að komast til Marz og jafn langan tíma til að
endurkastast. Svo var beðið í 61 j mínútu, en
skeytið kom ekki til baka.
Vindhkassi sem bókaskápur.
Fyrir skömmu síðan var haldin sýning í Lon-
don á minnstu bókum heimsins. Tuttugu og níu
bækur í dýrmætu skrautbandi gátu auðveldlega
fengið rúm i einum vindlakassa. Meðal þessara
bóka var eintak af Galileo, sem er talin minnsta
bók á ítölsku. Hún er lo XL úr tommu.
Enn undraverðara var eintak af Kóraninum,
sem er handri,tað og fannst á sínum tíma í Bagdad.
Þessi áttstrenda bók, sem er skrifuð með ind-
versku bleki og er með letri, sem vel er hægt
að lesa, þótt bókin sé svo lítil, að auðvelt er að
hylja hana með enskum hálfkrónupeningi,
Meðal stærstu bókanna í þessu safni, er biblía,
sem er 1 ýó tm á hæð, og þar næst kemur »Hinn
guðdómlegi sjónleikur«, Nýja test.amenti, sem
er svo lítið, að stærð þess er fimmti partur úr
fertommu, hefir svo greinilegt letur, að unnt er
að lesa titilinn án þess að hafa stækkunargler.
Bréf Lúthers á uppboði.
í Berlín h,afa mjög sjaldgæf bréf verið seld á
uppboði. Tvö af þeim eftir Lúther. Þau voru skrif-
uð nokkrum árunr fyrir siðabót til öldungs í Augs-
burg. Eigandi þei.rra var frá Sudetalandi. Hann
fékk samtals 7100 mörk fyrir bréfin. Á uppboð-
inu var llka selt eitt bréf til Kristjáns III. frá
nánasta samstarfsmanni Lúthers, Melancton. Það
komst upp í 600 mörk. Síðasta bréf Melanctor.s
skrifað fánr dögum fyrir dauða hans, var selx
fyrir 910 nrörk.
Merkilegur tvíbwri.
Á Covenry sjúkrahúsi befir verið gerður nrerki-
legri uppskurður, en aænri, virðast til. Ung móðir
konr þangað með 6 vikna, gamla dóttur, senr auð-
sjáanlega var veik. Hún var lögð undir rannsókn,
því ónrögulegt var að gefa nokkra. sjúkdónrslýs-
ingu. Við röntgensrannsókn heppnaðist að sjá,
hvað að lrenni var. Röntgensgeislarnir sýndu, a,o
innan í litlu stúlkunni var tvíburasystir, sem
þurfti að ná brott.
Litla stúlkan lifir, en systirin dó, þótt hún
væri lifandi áður en uppskurðurinn var gerður.
1 enskmrr læknavrsindunr verður að leita til 1814,
til þess að finna nokkuð svipað þessu.
Hvirfilbylur tcemir stöðuvatn.
i nánd við borgina Kalvaria í Li.thauen bar það
við fyrir skömnru, að hvirfilbylur tæmdi stöðu-
vatn í nánd við bæinn og fyllti aftur með sandi
og nrold. Ekkert svipað hefir skeð i nranna nrinn-
unr i Lithauen.
Yfirborð Kaspíhafsins
hefir lækkað svo, mjög, að það hefir vakið ótta
bæði 1 Iran og Rússlandi. Kaspihafið er stærsta
vatn heinrs og fær mest af vatnsnragni, sinu frá
Volgu. Á síðustu árum hafa Rússar- notað vatnið
úr Volgu svo nrjög til áveita og franrræslu, að
það hefir valdið breytingunr á yfirborði Kaspí-
hafsins. Bæði hin merka oliuhöfn Sovétríkjanna,
og iranska höfnin Pa.khevi, senr nreiri hluti allra
verzlunarviðskipta Irans fer um, eru x mikilli
hættu fyrir þvi að þorna algerlega upp.