Heimilisblaðið - 01.10.1939, Page 12
176
HEI.MILISBLAÐIÐ
NIIÍULÁS KÓPERNIK,
pólski stjörnufræðingurinn, var fæddur
í Thorn 19. feb. 1473 fám árum síðar en
sú borg væri innlimuð Póllandi; áður
var það prússnesk borg. Faðir hans var
borinn og barnfæddur í Kraká, en gerð-
ist heildsali og tók sér bólfestu í Thorn;
kona hans var kaupmaunsdóttir, og hét
fíarbel Watzelrode. Kopernik misti
snemma föður sinn, en Lúkas Watzel-
rode móðurbróður lians ól hann upp,
seinna biskup í Ermeland (eða Ilcrme-
land). Þaðan komu fyrrum binir ermsku
eða hermsku biskupar út hingað til Is-
lands á dögum Isleifs biskups Gissurar-
*onar (d. 1082). Að loknu skólanámi í
Thorn, fór hann til háskólans í Kraká
(1491) og nam þar stærðfræði 4 vetur, en
stundaði málaraiðn í lijáverkum, þegar
hann hafði þrjá um tvítugt, fór hann til
Bologna á Italíu og hlýddi þar á fyrirlestur
í stjörnufræði. því næst var hann nokkur
ár að námi í borginni Padóva; þar nam
hann læknisfræði, auk stærðfræði og
stjörnufræði og tók síðast doktorsstig í
læknisfræði árið 1499.
Um aldamótin 1500 er hann kominn til
Róm. Þar komst hann í hið mesta vin-
fengi við stjörnufræðinginn og reiknings-
meistarann Jóhannes MiiUer, sem nefndi
sig Regimontanus (þ. e. Königsberg=
Konungsberg) á latínu og kunnastur er
undir því nafni.
Regimontanus settist að í Niirnherg;
fyrir atbeina göfugs manns þar í borg,
studdi auðug borgarfrú Regimontanus
til að koma upp stjörnuturni og bjó hann
Þess vegna hljómar nú til okkar allra
aðvörun Jesú: »Gætið að, hvað þér heyrið«,
og' Páls: »Villist ekki, Guð lætur ekki, að
sér hæða« o. s. frv. (Gal. 6, 7—8).
Enn er nóg' rúm.
Sunnud. 29. okt. 1939.
Steingrímwr Benediktsson.
sjálfur yfir ágætum stjörnuskoðunartækj-
um er hann hafði að mestu fundið upp sjálf-
ur; með þeim tækjum gat hann fundið
margar skekkjur í hinum fornu stjörnu-
skrám. Hann var frábær stærðfræðingur.
Nú var Kópernik seztur að í Róm
og hjelt þar skóla og kendi þar stærðfræði
af svo mikilli snild að hann hlaut lof fyrir
og þótti snjallari en sjálfur Regismontanus.
Um þessar mundir hafði Kopernik
þegar gerzt kanoki eða kórsbróðir i Frau-
enburg og þar virðist hann hafa sezt að
árið 1503; fékkst hann þá eingöngu við
klerkleg störf og það, að veita fátækum
læknishjálp ókeypis. Yar hann.þá í þjón-
ustu Lúkasar biskups, móðurbróður síns.
En þótt hann hefði ófullkomin tæki, þá
stundaði liann samt sem áður námsgreinar
sínar. Enn er húsið í Allenstein við líði,
þar sem hann bjó; eru þar ristur í her-
bergisveggina, sem hann gerði, er hann
var að athuga gang stjarnanna yfir hádegis-
bauginn; þar er og leifar af vél, sem hann
smíðaði til að hefja nægilegt vatn úr á
nokkurri eins og nægði handa bænum
Frauenburg; gekk sú vél fyrir vatnsafli.
Getið er hans sem þjóðfulltrúa á ríkis-
þinginu í borginni Grodno.
En aðalhlutverk hans varð að leggja
fyrstur grundvöll hinna nýju stjörnu-
vísinda, með því að rannsaka og bera
saman þær niðurraðanir himintunglanna
(kerfi) sem liinir fornu stjörnufræðingar
liöfðu hugsað sér og leiða svo út úr þeim
kerfum eitt nýtt kerfi, sem væri hvort
tveggja 1 senn: einfalt og varanlegt.
Egiptar hinir fornu hugsuðu sér að
Merkúríus og Venus gengju kringum sól-
ina, en sólin sjálf, Mars, Júpiter og Sat-
urnus gengu í kringum jörðina.
Apolloníus frá Perga liugsaði sér sólina
miðstöð allra hreyfinga jarðstjarnanna, en
hugði þó jafnframt, að sólin og tunglið
gengju kringum jörðina.