Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1945, Side 6

Heimilisblaðið - 01.03.1945, Side 6
f 46 Rykhreinsarinn. Þad mun varla líða ýkjalangt þangað til húsmæðurnar eiga að fagna verulega bættri aðstöðu í bar- áttunni við rykið. Ameríkumenn hafa að undanförnu unnið að til- raunum með ýmsar gerðir af ryk- hreinsurum og orðið vel ágengt. Eitt þessara nýju tækja er áþekkt venjulegu útvarpsviðtæki. Þegar rafstraum hefur verið hleypt á það, sogar það á skömmum tíma allt loft herbergisins gegnum sig og skilar því aftur algerlega ryklausu. Einnig getur það sótthreinsað and- rúmsloft herbergisins, ef það er sér- staklcga gert til þess. Jafnvel get- ur það skilað loftinu með ákveðnu raka- og hitastigi, sé það sett í sam- band við miðstöð. Engin fyrirheit hafa verið gefin um það enn, hvenær þessi tæki kunni að verða boðin almenningi til afnota. En gera má ráð fyrir, að það dragist nokkuð enn. Skrúfulausa flugvélin. Fyrir stuttu síðan var frá því skýrt í fréttum, að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu tekið í notkun tvær nýjar tegundir skrúfu- lausra orustuflugvéla. Nefna Bretar sína tegund Meteor, en Bandaríkja- menn sína Sliooting Star. Flugvél- ar þessar eru knúnar áfram með loftstraum og er orkugjafi þeirra ákaflega einfaldur, miðað við mót- or í venjulegri flugvél. Þær eru miklu léttari en aðrar flugvélar og lausar við þá galla, sem draga úr hraða venjulegra flugvéla. Eru þær því miklu hraðfleygari og á marg- an hátt þægilegri í vöfum. Flug- vélategundir þær, sem að ofan voru nefndar, geta farið í leiðangra til staða í 800 km. fjarlægð ■ frá bækistöð.sinni og flogið í 12000 m. hæð. Fiugvél þessi á sér sinn aðdrag- anda eins og aðrar nýjungar. Þjóð- verjar gerðu tilraunir með hana snenuna á stríðsárunum og smíð- uðu slíkar flugvélar. Þeir eru þó ekki upphafsmennirnir. Það var HEIMILISBLAÐIÖ SKUGGSJÁ ..... NÝJUNGAR í VÍSINDUM OG TÆKNI 0. ' ítalskur verkfræðingur, Campini, sem fyrstur manna smíðaði loft- knúna flugvól. Flugvél, sem hann smíðaði, flaug í tíu mínútur yfir Forlanini flugvellinum hjá Mílanó í ágúst 1940. Árið eftir var annarri slíkri flugvél af endurbættri gerð flogið frá Mílanó til Róm. Sama ár var smíðuð fyrsta loftknúna flug- vélin í Bretlandi, en Bretar höfðu árum saman unnið íneð mikilli leynd að smíði slíkra flugvéla. Við þessa nýju gerð flugvéla eru miklar vonir tengdar, og er álitið, að hún marki ákaflega þýðingar- mikil tímamót í þróun flugtækn- innar. Penicillín enn. Frá London berast fregnir um það, að enn á ný hafi verið náð mikilsverðum árangri í tilraunum ineð undralyfið penicillín og fram- leiðslu á því. Það hefur sem sé verið fundin aðferð til að fram- leiða lyf þetta í pillurn og gefa sjúklingum það þannig inn. Hing- að til hefur aðeins verið unnt að gefa það inn með því að dæla því í líkama sjúklingsins. En notkun þess og geymsla hefur verið all- verulegum vandkvæðum bundin, eins og frá var skýrt í síðasta blaði. Er því liér um að ræða mikils- vert nýmæli, sem lengi hefur verið stefnt að. — Uppgötvun þessi var gerð í Lederle verksmiðjunum. „Framtí'Sarbíllinn“. Það er ahnenn skoðun, að bílar muni mjög breyta um svip og alla gerð að styrjöldinni lokinni, enda þarf ekki að draga í efa, að svo muni verða. Ber margt til þess. Margvíslegar nýjar uppgötvanir liafa verið gerðar, ekki sízt að þvl er snertir notkun alls konar gervi- efna, sem munu reynast einkar handhæg til þessarar framleiðslu. Þannig verður í lófa lagið að liafa bílana miklum mun léttari en áð- ur, t. d. með notkun „plast“-efn8 í stað ýmissa þyngri efna. En eft- ir því sem bíllinn er léttari slitn- ar hann minna, og allur reksturs- kostnaður verður lægri. Hins veg- ar er það skoðun manna, að stefnt muni verða að því að hafa bílanu sem rúmbezta, en ekki að því u® framleiða sem fyrirferðarminnsta bíla. Kunnur amerískur verkfræðing- ur, William B. Stouts að nafni, sein er yfirmaður rannsóknardeildar Consolidated-Wultee flugvélaverk- smiðjanna í Bandaríkjunum, telur> að flugvélaverksmiðjurnar í Banda- ríkjunuin muni verða fyrstar til liefja framleiðslu á „framtíðarbíl11' um“. Rökstyður hann þá skoðun sína einkuni með tvennu: að frani- leiðendur bifreiða standi flugvél8' smiðunum langt að baki að því er snertir framleiðslutækni og rann- sóknir á framtíðarinöguleikuni 1 þessum efnum; ennfremur með þ'1’ að bílaverksmiðjurnar eigi alls kon- ar vélar og tæki til bifreiðafrani' leiðslu í „gömlum“ stíl, sem k°sU milljónir dollara; þurfi að endur nýja öll þessi tæki og verja til ÞesS stórfé, áður en hægt sé að hefjast handa um framleiðslu gerbreyttra bifreiðategunda. Stouts gerir mikið úr því, 1"e bílaiðnaðurinn sé langt á eftir flu® vélaiðnaðinum, og er ekki ólíklefd að svo sé. Hann segir að flugvél11 iðnaðurinn smíði betri lireyfla flugvélar, betri grindur, hitunar tæki, loftræstingartæki og hlj° deyfara en bílasmiðirnir í bila sína' Fyrir hverja 1000 dollara, sem bd8

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.