Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1947, Blaðsíða 28

Heimilisblaðið - 01.09.1947, Blaðsíða 28
184 HEIMILISBLAÐIP því tilvalin til að auka á tortryggni liennar. En þar sem hún liafði lofað að þegja, ákvað hún að efna loforð sitt, en hún hafði ekki lofað að leita sér ekki óbeinna upplýsinga. Hún lét þess vegna setja liestana aftur fyrir vagninn og lagði af stað í heintsókn til nokk- urra kunningjakvenna sinna, eins og ekkert sérstakt væri um að vera. Sú, sem hún heimsótti fyrst, var gömul hirðmær, sem var mjög heyrnarsljó og því ntjög fáfróð um viðburði þessa heims. Heini- sóknin var þess vegna ákaflega stútt. Önnur í röðinni var Adína furstynja. Hún var hvorki heyrnarsljó né mállaus, en liún hafði ríka ástæðu til að þegja. Það hafði Gretsky greif- nyja enga hugmynd um, en einliver ósjálf- ráð grunsemd, byggð á langri lífsreynslu, kom henni til að halda eins konar yfirheyrslu yfir furstynjunni — en þó án þess að hún tæki eftir því. Ef til vill hugsaði greifynjan líka um það, að Rezof væri lífvarðarfor- ingi og hann væri bróðir liinnar fögru furst- ynju og ætti kannske einn eða fleiri vini, sem hefðu flækzt inn í þetta hneykslismál. En þar var enn ein ástæða til þess að fá furst- ynjuna til að leysa frá skjóðunjni. Fyrst ræddu þær um tízkuna, svo um dans- leik, sem aðallinn ætlaði að lialda í góð- gerðarsömum tilgangi. Því næst urn kirkju- ránið, og loks komst greifynjan með lagi að efninu . — Það er vonandi, að lögreglan verði heppn- ari í þetta sinn en í sambandi við hneykslis- málið í „Rauðhettunni“ fyrir inánuði síðan, þér munið. Furstynjan hristi höfuðið. — Okkar kæri Klineus hershöfðingi var óheppimi í því máli, hélt greifynjan áfram, sem ekki var ókunnugt um daður Adínu við hann. Það er kynlegt, að hann skyldi láta snúa svona á sig. Þeir komust ekki að neinu, að ég held. — Engu. — Að geta ekki fundið neinn hinna þriggja, það er í rauninni injög athyglisvert. Menn segja, að hann sé að verða hyskinn í starfi sínu. Er það satt? Adína gekk í gildruna. — En sú hugmvnd! hrópaði liún með helzt til miklu fjöri. Hann er starfsamari en nokkru sinni áður. —- Nú, fyrst svo er, því betra, sagði greit’ ynjan góðlátlega. Það er sagna þe6sa nllS' heppnaða ináls, að þetta hefur komizt á loft- — Hvað komizt á loft? Hvar er það sagt- Þarna niðri? Með „þarna niðri“ átti liún við vetrarhöllina. Greifynjan bandaði liendin111 neitandi, en Adína var móðguð. ■— Nei, það gagnar ekki, að þér neitið þvl' Allir vita, að þér eruð þögul sem gröfn1- Það er, sannast að segja, kynlegt uppátæk1 að segja slíkt um mann, þó að hontim hafi ekki tekizt vel með eitt einstakt mál. E° ef þér viljið lieyra mína skoðun um niálið’ greifafrú, þá er öll sagan um „Rauðhettu»a og það, sem þar gerðist, skammarlegasta skröksaga. — Það lialdið þér? — Ég er viss í minni sök. Ég hef sann- anir fyrir því, að hvorki þessi stúlkukind 111 faðir hennar liafa nokkru sinni verið til- Það er allt sainan uppspuni „hinna rauðu ’ til þess að gera árás á aðalinn og linekkja veldi hans. Faðirinn er leppur og dóttir lians brúða með gleraugu. — Nú, svo að þér haldið, að . . . — Að liinir seku hafi ekki fundizt, 3 því að enginn glæpur hafi verið framu111’ lauk Adína máli sínu. Þér sjáið, að aun1 ingja hershöfðinginn hefur töluverðar afsak anir. • f — Það er mér mikið gleðiefni, svaraði greI ynjan og stóð á fætur. Það eru enn inikh1 betri og líklegri sannanir fyrir þessu en þesS ar, sem þér nefnduð. — Og þær eru? spurði Adína ,um leið °r hún fylgdi gesti sínum til dyra. — Að hann sækist eftir hylli yðar, n1*® fagra, litla vinkona, og allir vita, að þér eru ekki sú, er tekur á móti hylli annarra en okkar tignustu og beztu manna. Þetta var sagt ineð svo yndislegu hrosi °£ með svo mikilli mýkt í röddinni, að Ad111,1 furstynja gleypti við því sem liinu sætastu liunangi. Þegar hún var orðin ein, sagði ku við sjálfa sig, að greifynjan hefði verið dóu*1 leg- _ . -g Á sömu stundu sagði Gretsky greifynja V1. sjálfa sig: — Það er áreiðanlegt, að hun ættingja eða vin, sem inn í málið er flæktur' Það er ekki hlaupið að því að gera vinuU1 yðar miska, furstynja, þér kunnið að verja þa'

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.