Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 8
mjög mikið til þess koma, að hvítur maður skyldi koma til hans í konukaupaför. Og ég gat ekki varizt þeirri hugsun, að slægvitri þrjóturinn hann Ogolo hefði tekið mig með sér, til þess að ná fyrir þá sök hag- stæðari samningum. Ujii, stúlkan, sem um var að ræða, kom aðeins rétt sem snöggvast á vettvang. Hún rétti okkur öllum tréílátið með áfenga drykknum, sem dverg- arnir þarna buðu öllum gest- um sínum. Ujii var á að gizka l tólf ára gömul, en álíka þrosk- uð og átján ára stúlka hjá okk- ur. Mér fannst hún að vísu ekki sérlega falleg, en það er auðvitað smekksatriði. — Nú hófust endalausir samningar. Ogolo sýndi föðurnum hvað eftir annað voðirnar, sem hann hafði fengið hjá mér — eða að minnsta kosti nokkrar þeirra; þær fallegustu hafði þessi litli refur auðvitað skilið eftir heima — og nokkra síg- arettupakka. Hann varð sífellt græðgislegri á svipinn, en rétt þegar hann var að ganga að tilboðinu, kom móðir stúlk- unnar á vettvang. Þegar hún heyrði tilboð höfðingjans, varð hún hin reiðasta. Hún vissi, hvað í húfi var, þegar samið var um fallegustu stúlkuna í þorpinu, og hún hafði hugsað sér að hafa sem allra mest upp úr henni, ekki hvað sízt, þegar höfðingi þorpsins var annars vegar. Hún talaði hátt og reiði- lega við mann sinn, og það varð til þess, að hinn ágæti höfðingi Ogolo varð sífellt hóg- værari. Loksins, þegar samn- ingarnir virtust ætla að enda með skrækjum einum og há- vaða, blandaði töframaðurinn öér í málið. Hann talaði fyrst við Ogolo og síðan við móður Ujii. Niðurstaðan varð sú, að Ogolo fór aftur heim í kofa sinn og sótti tvær fallegustu voðirnar í viðbót, einn sígar- ettupakka og auk þess lét hann reka heim til þeirra fjögur feit svín. Með því voru kaupin gerð. Allir aðilar voru hæstánægðir, nema höfuðaðilinn — Ujii. Hún, ,,söluvaran“ í þessum viðskiptum, varð nú hnuggin að fylgja húsbónda sínum til kofa hans. Hún tíndi saman fö^gur sínar og flutti úr kofa foreldra sinnayfir í kofa manns síns. Þegar hún kom þangað, varð hún strax að byrja að vinna, en brúðguminn reykti eina hamppípu til viðbótar með föðurnum og móðurinni, til þess að komast í tilhlýðilega stemningu. Ég hafði fylgzt með viðskiptunum og einnig reykt með þeim hamppípu. En Eno reykti fimm eða sex pípur af þessari áfengu jurt, og þegar við lögðum af stað heimleiðis, notfærði ég mér vímuástand hans, til þess að telja hann á að koma aftur með mér inn í frumskóginn. En þótt hann væri ekki allsgáður, var hann of slunginn til þess að fallast strax á uppástungur mínar. En þegar ég lofaði honum leikhús- kíki, sem ég hafði sýnt honum einhvern daginn, lofaði hann að hjálpa mér til að veiða gór- illaunga eftir nokkra daga. Ég veiði górillaunga. Nú leið vika, er ég varði í fílaveiðar, til þess að seðja svanga dvergana. En svo vakti Eno mig loks- ins árla morguns og sagði mér að ferðbúa mig. Það tók nú£ auðvitað ekki langan tíma, þvl að ég hafði hvorki haft frið nótt né nýtan dag fyrir um- hugsuninni um að veiða g°r' illaunga. Áður en við fórum úr þorpinu, framkvæmdi hann skringilega athöfn í blekkinga- skyni, því að hvorki Ogolo ne nokkur annar í þorpinu mátti vita, að við værum að fara a górillaveiðar. Hann safnaði öllum þorpS' búum saman og hóf síðan dans. sem var með þeim hætti, að ég varð að taka á öllu, sein ég átti til, svo að ég skellt* ekki upp úr. Hann hafði áður skreytt sig kostulega með hvit um lit, girt sig belti úr apa skottum og lagt um háls ser festi úr dýra- og ef til v1^ mannabeinum. Þegar hann hafði lokið dansinum, tilkynnti hann með miklum tilburðum. að hann og hvíti maðurinn ®tl uðu inn í frumskóginn, til ÞesS að búa til meðal. Loks, þegal sólin var komin allhátt á 1°^' gaf hann mér brottfararmerkr Aðstoðarmaður hans hafði þa laumað byssu minni inn 1 kjarrið. Síðan hélt hann með mér inn í skóginn, en þorPs búar horfðu á eftir honum með lotningu. Hann ætlaði að halú3 beint áfram, en ég tók í aPa skottabeltið á honum, ÞV1 a^ ég trúði því ekki, að við k®rn umst langt án þess að hafa með okkur nesti og tjald. ^n Eno sagði, að þess þyrftum v1^ ekki, því að einmitt núna vser’ górillaflokkur staddur í f®^u leit skammt frá þorpinu. G°r, illurnar flakka ekki nærri þvl eins víða um og negradverg arnir, sem kalla mætti tatara Afríku, því að ferðalöngun111 heimilxsblaðiP [116]

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.