Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 15
- Hinn 29. desember, klukk- an 11 um kvöldið, kom Dmitrí Kuldaroff skjalavörður . . . - Sjáið til, þarna heyrið þið, en haltu áfram, pabbi . . . . . . kom Dmitrí Kuldaroff skjalavörður út úr drykkjukrá, °g þar eð hann var allmikið nndir áhrifum áfengis . . . - Já, alveg rétt, það var ég °g Semjon Detrovitsj. Það er Sagt frá öllu, hverju smáatriði. En haltu áfram, haltu áfram! . . . allmikið undir áhrifum sfengis, skrikaði honum fótur rétt fyrir framan hest, sem sPenntur var fyrir sleða. Hest- nrinn fældist auðvitað og stökk afram, og sleðinn rann yfir manninn, sem hafði dottið. 1 sleðanum var, auk ökumanns- ins, Stefán Lukoff kaupmaður. Hesturinn hljóp burtu eins og fætur toguðu, þangað til dyra- verði einum tókst að ná hon- um. Kuldaroff var tekinn, þar sem hann lá meðvitundarlaus, °g fluttur á lögreglustöðina. Sent var eftir lækni og sá hann, nðKuldaroff hafði fengið þungt högg á hnakkann . . . - Já, já, það var sleðastöng- m, pabbi, en lestu áfram, lestu áfram! . . . sem stafaði af því, að sleðastöngin hafði slegizt í hann. Þetta var fært inn í bæk- Ur lögreglunnar, og meiddi maðurinn fékk læknishjálp . . . - Alveg rétt, alveg rétt! Þeir vættu á mér hnakkann með koldu vatni. Jæja, eruð þið bú- in að lesa það? Já, þarna sjáið bið! Nú kannast hver einasti maður í Rússlandi við mig. Komdu með blaðið! Komdu með blaðið! Misja fékk blaðið aftur, braut það vandlega saman og stakk því í vasann. - Hæ, húrra! Ég verð að hlaupa yfir um til Makaroffs og sýna honum það, og Ivann- itzkín og Natalíu og Anísmím og Vassilitsj — hæ, húrra, hæ, húrra!!! Og Misja þeyttist á dyr, ljómandi af sælu frægðarinnar. Kallað á leigubíl. Skoti einn fékk boð um að taka þátt í veizlu, en fór ekki, af því að hann vissi ekki, hvað orðið ,,Gratis , sem stóð á boðskortinu, þýddi. Dag- inn eftir fannst hann dauður með opna orðabók fyrir framan sig. [123] SkálloMátíðin var haldin sunnudaginn 18. júlí s.l. Veður var hið fegursta og fjölmennt á staðnum, um 1000 manns. Hátíðin hófst kl. 1. Kirkjuklukk- ur Skálholtskirkju hringdu til há- tíðarinnar, en lúðrasveit Reykja- víkur lék nokkur lög i kirkjugarð- inum. Hófst síðan messa, og gengu prestar hempuklæddir í kirkju og síðastir gengu þeir biskuparnir, herra Ásmundur Guðmundsson og herra Bjarni Jónsson. Voru þeir báðir í kórkápum. Söngkór Ólafs- vallakirkju annaðist sönginn. Með- hjálparinn, Einar Sigurfinnsson, las bæn. Biskupinn prédikaði, en vígslu- biskupinn þjónaði fyrir altari fyrir prédikun, en biskupinn eftir pré- dikun. Gjallarhornum var komið fyrir, svo allir gátu fylgzt með, sem úti voru, því lítill hluti af mannfjöld- anum komst inn í hina litlu kirkju, sem færð hafði verið af grunni sín- um lítið eitt út fyrir í garðinn, vegna uppgraftarins. Eftir messu varð hlé þar til kl. 3,30, þá lék lúðrasveitin nokkur lög, og síðan flutti prófessor Sigurbjörn Einarsson ávarp og bauð alla gesti velkomna á hinn sögufræga stað. Síðan flutti prófessor Richard Beck snjalla ræðu, og síðan skýrði forn- minjavörður, Kristján Eldjárn, fiá fornminjarannsóknunum í Skálholti, sem hann kvað enn vera á byrjunar- stigi, en haldið yrði áfram, og helzt þyrfti þeim að vera lokið í sumar, svo ekki tefðu þær fyrir byggingu nýrrar kirkju, sem reist mundi verða á grunni kirkju Brynjólfs biskups, þar sem víst mætti telja, að þar hefði byggð verið hin fyrsta kirkja, kirkja ísleifs biskups Gissurarsonar. Að lokum flutti séra Sigurður Pálsson, formaður Skálholtsdeildar Árnesinga, snjallt erindi,- og voru það lokaorð. 5000 króna gjöf barst frá bónda í Biskupstungum, sem ekki lét nafns síns getið. Konur frá Stokkseyri sáu um veit- ingarnar, og voru þær bæði góðar og vel framreiddar. Heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.