Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 3

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 3
HEIMILISBLADIÐ 45. árgangur, 5.-6. tölublaS — Reykjavík, maí—júní 1956 EYþÓR ERLENDSSON: Geysir og til vill er náttúran aldrei eins töfrandi °gUr og á björtum sumarmorgnum, eftir kyrr- ata aótt. Aldrei er loftið tærara en þá, né skin °tarinnar dásamlegra. Aldrei eru blómin feg- Uíri en einmitt þá, þegar daggarperlurnar glitra akrónum þeirra. Og aldrei hljómar söngur fugl- jafn fagurlega og þá, meðan svefnhöfgi Vlllr enn yfir byggðinni. Sunuudagsmorguninn 12. júlí síðastliðinn **• e- 1953) var einn af þessum fögru sumar- ^gnum, þegar náttúran er í tignarskrúða og ^lðlar börnum sínum ríflega af auðlegð sinni. Var þá staddur við Brúará, ofan til við , riltla, sem tengir saman Grímsnes og Biskups- j^SUr, til mikils hagræðis fyrir vegfarendur. akkan var aðeins rúmlega sjö, en mjólkur- utningsbíllinn, sem ég var raunverulega að ,lða eftir, var ekki væntanlegur fyrr en klukkan atta. svo að ég hafði nægan tíma til þess að ^efa gaum að umhverfinu og helztu einkennum US' Síðar um daginn er svo ætlun mín að p°ða tvö af mestu náttúrugersemum þessa ailds, Geysir og Gullfoss. Við faetur mér streymir Brúará með síjöfnum raða. Allt yfirborð hennar er skínandi bjart, 1 ^ °g spegill, sem endurkastar sólarljósinu. atldan við ána blasir Grímsnesið við, iðja- ®ra3n.t og blómlegt yfir að líta. Lítið, einstakt ell> sem Mosfell nefnist, rís þar upp af gróður- ^lu Undirlendinu og prýðir umhverfið. — I Wska getur að líta fjölmörg há og tíguleg id11) sem mynda víðfeðman hring umhverfis S^óðurfláka láglendisins. Kyrrð og friður rikir hvarvetna, nær og fjær. ^kert hljóð rýfur þögnina nema kliður fugl- atltla, sem hafast við þarna meðfram ánni. Það 6r faguaðarhreimur í röddum þeirra. Aðeins Gullfoss lómarnir tveir, sem virðast moka a vatnsfletin- um, eru þar undantekning. Þeir eru ekki eins og aðrir fuglar. Hið eina, sem til þeirra heyrist, eru ámátleg hljóð, er hljóma eins og uggvænleg neyðaróp í friðsælli morgunkyrrðinni. Eftir um það bil klukkustundar dvöl þarna við ána, sé ég hvar mjólkurflutningsbíllinn um- ræddi kemur upp Grímsnesveg og fer mikinn. Er hann brátt kominn þangað, sem ég er, og stanzar samstundis og ég gef honum viðeigandi merki. Það reynist auðvelt að fá far með bíln- um að Geysi, og verð ég þvi allshugar feginn. Reiðhjól, sem ég hef meðferðis, er látið á bíl- inn, og síðan er ekið af stað. Sækist nú ferðin greiðlega upp Biskupstungur, en ekki er haldið rakleitt að Geysi. Fyrst er farið austur yfir Tungufljót, þegar að brúnni kemur, síðan niður að Bræðratungu, og svo þaðan til baka upp byggðina austan Tungufljóts. Tekur ferðalag þetta að vonum drjúglangan tíma, því að stanz- að er móts við hvern bæ, til þess að taka mjólk. Loks er ekið aftur vestur yfir Tungufljótsbrú, og svo þaðan, sem leið liggur, að Geysi. Var klukkan um ellefu, þegar þangað kom. Þegar að Geysi kemur, er numið staðar við byggingu eina allmikla, sem stendur þar ör- skammt frá hverasvæðinu. Þessi bygging er heimili og íþróttaskóli Sigurðar Greipssonar, sem hann hefur starfrækt um langt árabil, af alkunnum dugnaði. Á sumrum eru þarna og framreiddar hvers konar veitingar fyrir skemmtiferðafólk. Mér varð nú fyrst fyrir að grennslast eftir því, hvort í ráði myndi vera að stuðla að Geysis-gosi þá um daginn, því að það var eðli- lega mitt mesta áhugamál. En til þess að öruggt sé að hverinn gjósi, verður að láta í hann all-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.