Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Page 4

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Page 4
mikið af blautsápu, eins og kunnugt er. Ég var svo heppinn að hitta Sigurð Greipsson að máli þegar í stað og fá hjá honum öruggar fregnir um þetta atriði. Og fréttirnar, sem ég fékk, voru hinar ákjósanlegustu, því að Sigurður sagði að allmargt skemmtiferðafólk væri vænt- anlegt að Geysi innan skamms tíma og að til stæði að láta hverinn gjósa. Eftir þessar góðu fréttir, tek ég að svipast þarna nánar um og beina athyglinni að hinum ýmsu náttúrueinkennum staðarins. Verður mér þá fyrst reikað þangað, sem hinn frægi goshver — Geysir — er, því að hann var jafnan efstur í huga mínum. Allmargir hverir aðrir en Geysir eru þarna á víð og dreif, og eru sumir þeirra næsta ein- kennilegir útlits og raunar frægir, eins og t. d. Strokkur. Hann var fyrrum mikill goshver, en er nú löngu hættur að gjósa og blundar í eilífð- arkyrrð við fætur vegfarandans. Geysir var nyrzti hverinn, sem ég sá á hvera- svæði þessu. Hann er auðkennilegur vegna kísilbungu mikillar, eða keilu, sem hann er sjálf- ur miðdepillinn í. Hefur bunga þessi myndazt þannig, að kisill úr vatni hversins hefur um langan aldur hlaðizt upp umhverfis hverpipuna' unz núverandi ásigkomulagi var náð. Og eDl1 stækkar bunga þessi árlega af sömu ástseðUIU — Reynt hefur verið að áætla aldur Geysis ine tilliti til þykktar alls kísilsins og ýmissa ja rð- lagseinkenna þar um kring, og hafa fræðimeuD á þann hátt komizt að þeirri niðurstöðu, ^ hverinn muni aðeins vera fárra alda garnalb _ jafnvel talið líklegt, að hann hafi myndazt sambandi við jarðskjálfta þá hina miklu, seD1 Oddverja-annáll getur um, að dunið hafi y suðurhluta landsins árið 1294. Enda þótt ráðgátan um aldur Geysis se heillandi viðfangsefni, hefur þó sú spurniní’ hver sé hin raunverulega orsök sjálfra gosanuS’ verið enn áleitnari í huga fjölmargra fi06*-®1 manna. Hafa eðlilega ýmsar mismunandi sK anir verið látnar í Ijós, til skýringar á Þ®sS. fyrirbrigði, og enn munu menn eigi á eitt sátti í þeim efnum. — Flestir munu þó aðhyHaS^ ” kenningu dr. Trausta Einarssonar, að S0^ stafi af yfirhitun vatnsins yfir suðumark, a , en suðan komi upp. Nákvæmar hitamæliní?ar, Geysi hafa sýnt, að slíkar hitasveiflur eiga ser er einmitt stað um miðbik hverpípunnar, sein um tuttugu metrar á dýpt. Skýring Trausta e því sú, að þetta yfirhitaða vatn fari skyndile^ að sjóða, mjög ofsalega, og komi þannig 8° inu af stað. Þegar ég kom fyrst að Geysi, var va tnið1 se° honum kyrrt á yfirborði, og svo langt, sem varð niður í hverinn, var þar enga hreyn ^ að sjá. Skál sú, sem er umhverfis op hverP1^ unnar, var barmafull af vatni, og sló a annarlegum bláma, sem gaf hvernum ei: nhverrl dulrænan svip, svo að hann var að útliti elg| ólíkur afar miklu auga, er starir sífellt u* óráðið himindjúpið. — Þannig kom hann mer fyrir sjónir, við fyrstu sýn, þessi ókrýndi k° ungur allra goshvera. - Ég þóttist nú vita, að dálítil bið myndi ver , á því, að sápa yrði látin í hverinn, og kom til hugar að verja þeim tíma til þess að -j mér upp í svonefnt Laugafell, sem er alm1 hæð vestan til við Geysi. Er hæð þessi ^° j auðveld uppgöngu og tók það mig aðeins tírIia korn að ganga á hæsta hluta hennar. Af Laugafelli er útsýni frítt og sá ég Þa HEIMILISBLAÐIÐ 92-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.