Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 18

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 18
af betelátinu, verður næsta lítið úr því ógagni, sem neyzla þess er talin valda'. Af óútskýran- legri eðlisávísun hafa einmitt þjóðir Austur- Asíu uppgötvað þetta styrkjandi lyf sem varn- arlyf gegn því tjóni, sem fæða þeirra annars kynni að valda þeim. Helztu fæðutegundir þeirra skortir köfnunarefni, ef frá eru skilin brauðaldin og nokkrar baunategundir. Væri slíkrar fæðu einnar neytt til langframa, mundi afleiðingin verða alltof miklar tærandi sýrur í maganum og þeir sjúkdómar, sem þær mundu valda. Betelsafinn eyðir sýrum þessum og styrk- ir slímhúð magans, og það er hægt að ganga skilyrðislaust inn á það, að ekkert lyf, sem læknir gæti ráðlagt, mundi duga betur til þeirra hluta. Allir, sem þekkja og skilja lífsskilyrði þessara þjóða, eru nú orðið sannfærðir um það, að hófleg betelneyzla sé beinlínis gagnleg heilsu manna, þegar fullt tillit er tekið til hinnar ákaf- lega fábrotnu, óheppilegu og ónógu fæðu Ind- verja og loftslagsins, sem á margan hátt er skaðlegt." Eftir þessu að dæma ætti betel að vera ómet- anlegt, almennt læknislyf, uppfundið fyrir eðlis- ávísun gegn aldalöngum næringarskorti tvö hundruð milljóna manna. Það er merkileg skýr- greining á leyndardómi betelsins. Hún hefur vafalaust mikið til síns máls og varpar nokkru ljósi á eina hlið þessa margþætta vandamáls — en þó aðeins að vissu leyti. Löngun í nautnalyf getur ekki byggzt á efnislegri og líkamlegri þörf einni saman. Nautnin af betelátinu felst ekki aðeins í unaðinum af því, að hafa unnið bug á næringarefnaskorti. Auk þess eru mögu leikar á fæðuöflun þeirra þjóða, sem betels neyta, svo sem íbúa Austur-Afríku, Indónesim Síams, Indlands og hinna víðáttumiklu Suður hafseyja ákaflega mismunandi, og það er þeiiu síður en svo öllum sameiginlegt, að skortur se á köfnunarefni í fæðu þeirra. Enda þótt gerð yrði í raun og veru grund vallarbreyting á hinu einhliða mataræði Ind verja, mega menn vera vissir um, að engiuU Indverji léti sér til hugar koma að hætta v betelátið. En ef bætt væri úr köfnunarefnis skorti fæðu þeirra, væri eðlilegt að álykta sam kvæmt skoðunum Lewins, að ekki væri lengur fyrir hendi hin fyrri fíkni manna í betel. Samt nær það ekki nokkurri átt, því að enginn bet ^ neytandi sækist eftir þessu nautnalyfi sinu því einu, að næringarskorturinn knýi hann þess. Hin sterka löngun í þetta eiturlyf á rót slIia að rekja til veigameiri ástæðna, sem UgSJa , hinu andlega sviði. Þorstinn í eiturlyfið er ek^1 aðeins bundinn efnislegum og líkamlegum sa yrðum, og hann er ekki heldur aðeins undii umheiminum og umhverfinu kominn. Fíku1 manna í eiturlyf stafar ekki af efnislegurn ástæðum, heldur neytir maðurinn allra bragd^ sem honum eru handbærar í lífinu, til þesS , létta af sér oki neyðar og þjáninga — °S Se^ hann ekki skapað sér paradís á jörðu, reyu1 hann að búa sér til sína eigin paradís. Og un ^ ur sá, sem betelneytandinn veitir sér, getur Þ° varla kallazt því nafni. Rainer III, prins af Monaco, og kvik- myndaleikkonan Grace Kelly, sem fyrir nokkru voru gefin saman í hjónaband. Jan van de Voort í Rotterdam kom mjög seint heim eina nóttina, og við það tækifæri las konan hans yfir hausamótunum á honum enda- lausa romsu af ásökunum. Það fauk svo heiftarlega í Jan, að hann greip steikarapönnu og lamdi konu sína í höfuðið með henni, þangað til að hún var orðin nærri því óþekkjan- leg (þ. e. a. s. pannan). — Konan kærði Jan fyrir grimmd og mis- þyrmingar, og dómarinn kvað upp eftirfarandi úrskurð: Á hverjum þriðjudegi skal Jan færa konu sinni stóran blómvönd, og til þess að hann svíkist ekki um það, skal hann áður sýna hann í lögregluvarðst0 mn í lögregluvai^ ^ unni í sínum bæjarhluta. Skal e^ ur Jan inna þessa skyldu sina hendi i þrjá mánuði samfleyll- « á Því Franskur vínsali fann upp r snjallræði til hjónabandsrniðluU^ að líma myndir af þeim aðilum- ^ óskuðu að stofna til kunningssk&P^ með hjónaband fyrir augum, a vínflaskna þeirra, sem hann sC En þá var hann kærður af ros 1 ^ konu fyrir að- hafa límt myn henni á flösku með súru og sers lega ódýru vini. HEIMILISBLAÐIÐ 106

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.