Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 27

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Side 27
‘nSju, sem hún virtist hafa öðlast í seinni tíð °& greifinn var svo hreykinn yfir. Hún hægði á sprettinum og lét hestinn fara oturhægt það sem eftir var heim. Hún varð íhuga þetta mál af alvöru og gaumgæfni. . Eftir fyrstu geðshræringuna, sem hún komst l> Varð hún róleg. Hún bar hvorki afbrýðissemi ne hatur í brjósti. Henni stóð nákvæmlega á Sama um Julien. Það var öllu lokið þeirra á ^li síðan komst upp um, að hann var barns- a^ir Rosalie. En að de Fourville greifafrú, v 1 n k o n a hennar, skyldi vera í týgjum við j^anrtinn hennar, það átti hún erfitt með að yiUrgefa. Allstaðar var ótryggð, lygi og flátt- , aPur. Stundum grætur maður ekki síður yfir alVonum en látnum ástvinum. ^.Hún reyndi samt að láta líta svo út, eins og Ul1 vissi ekkert. Hún kærði sig ekki um með- aamkun eða vináttu annarra. Héðan í frá ^andi hún aðeins elska Pál og foreldra sína, Urn aha aðra stóð henni hjartanlega á sama. ^ ^egar hún kom heim, vafði hún Pál að sér, ,ar hann upp í herbergi sitt og kyssti hann þar °tal kossa. 'Julien kom heim til miðdegisverðar. Hann var hress og kátur og elskulegur í viðmóti. >>Koma foreldrar þínir ekki?“ spurði hann. , Hún var honum þakklát fyrir þessa spurn- |agu. Það munaði minnstu, að hún fyrirgæfi . 0num, hvers hún hafði orðið áskynja í skóg- lnum. Hún þráði innilega að sjá þessar tvær ^annverur, sem hún elskaði af öllu hjarta, n^st Páli. Um kvöldið skrifaði hún þeim og a° þau að hraða komu sinni. _au tilkynntu komu sína þann tuttugasta Það var tæpur hálfur mánuður þangað til. br> tr- X. ■■aun beið foreldra sinna með vaxandi ó- £reyju. Auk þeirrar dótturlegu ástar, sem hún ar til þeirra, hafði hún af öðrum orsökum nudið hjá sér þrá til að leita athvarfs hjá þeim. un þráði að trúa þessum góðu og flekklausu Urn fyrir raunum sínum. , lærði hún að koma sjálf fram af flátt- . ap. Hún tók á móti greifafrúnni með brosi og utréttri hönd. En hjarta hennar var þjáð. Hún ^ rxrleit mennina og ótryggð þeirra. Daglega aru®* hneykslissögur héraðsins að eyrum henn- 'r?úneit hennar og vanþóknun óx dag frá degi. Hóttir Coutllards átti von á barni, og það ar haldið brúðkaup í skyndi. Munaðarlaus þjónustustúlka hjá Martins hafði hrasað. Óg ,,Óhreina-Malen“ fór ekki einförum. Það var aumkunarverður unglingur, sem ekki var fullra fimmtán ára. Stöðugt bárust manni til eyra nýjar hneyksl- issögur, og þær voru frá öllum stéttum þjóð- félagsins og af fólki á öllum aldri. Það var eins og vorið hefði æsandi áhrif á alla náttúruna. En Jenný, sem leitaði útrásar ástar sinnar í leiðslukenndum draumum, hafði óbeit á hold- legum fýsnum. Hún fylltist viðbjóði yfir af- leiðingunum af þessari dýrslegu eðlishvöt. Hún bar harm í hjarta. Henni fannst þetta stríða gegn eðlilegu náttúrulögmáli. Hún bar engan kala til Gilberte, af því að hún hafði tekið manninn hennar frá henni. Hún vor- kenndi henni þvert á móti, að vera sokkin nið- ur í þennan ógeðslega forarpytt. Dag þann, sem von var á foreldrum hennar, jók Julien á gremju hennar með léttúðugu tali. Hann fór að ræða um það á léttan og skemmtilegan hátt, hvernig bakarinn hefði komizt að því daginn áður, að konan hans hélt fram hjá honum með húsasmiði. Hann hafði komið að þeim í bakaríinu. ,,Það verður sannarlegt ástarbrauð, sem við fáum næsta dag,“ sagði Julien hlæjandi. Jenný fékk ólyst á brauðinu. Þau sáu póstvagninn nema staðar fyrir framan steinstéttina og geðþekkt andlit bar- ónsins sást fyrir innan rúðuna. Unga konan varð gripin ólýsanlegri geðshræringu. Hún fann ósegjanlega þörf hjá sér til þess að tjá innibyrgða ást sína. En hún varð sem steini lostin og lá við að- svifi, þegar hún kom auga á móður sína. Bar- ónsfrúin virtist hafa elzt um tíu ár á þessum eina vetri. Hinar stóru og skvapholda kinnar hennar voru eldrauðar. Augnaráðið var fjör- laust, og hún gat ekki lengur hreyft sig úr stað nema haldið væri undir báða handleggi hennar. Þungur andardráttur hennar var orð- inn sogkenndur og svo erfiður, að manni leið illa í návist hennar. Baróninn, sem umgekkst hana daglega, hafði ekki veitt því athygli, hve henni hafði farið aftur. Þegar hún var að kvarta yfir andþrengsl- um sínum og hve erfitt hún ætti með að hreyfa sig, sagði hann aðeins: ,,En góða mín, svona hefurðu alltaf verið.“ Þegar Jenný hafði fylgt þeim inn í herbergi 115 HEIMILISBL AÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.