Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Page 38

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Page 38
Húsráð. Þurra gerafganga má nota sem blómaáburð. L'eysið gerið upp í vatni og vökvið blómin hóflega með upplausninni. —o— Ef egg brotnar í pottinum, meðan verið er að sjóða það, er gott að láta ónotaða eldspýtu niður í pott- inn. Brennisteinninn kemur í veg fyrir, að hvítan renni út úr egginu. Sé mikið vatn í pottinum, verður að láta fleiri en eina eldspýtu í hann. í litlum eggjum er rauðan hlut- fallslega stærri en í hinum stóru. Þar sem rauðan hefur miklu meira næringargildi en hvítan, borgar sig betur að kaupa smá egg heldur en stór. Ef sneiða þarf eggin niður heit, verða sneiðarnar fallegri, ef hnífur- inn er hitaður fyrst. Lauk er miklu auðveldara að af- hýða, ef fyrst er helt yfir hann sjóð- andi vatni. Hveitijafningi hættir ekki eins við að hlaupa í kekki, ef örlitlu salti er stráð í hann, um leið og byrjað er að hræra í honum. Fljótlegast er að sjóða sagógrjón með því að hella yfir þau köldu vatni, þegar þau hafa soðið í 5 mín- útur. Þannig er einnig hægt að stytta suðutíma hrísgrjónagrautar- 1 ins. Þá skal aðeins hella út á grjón- in helmingnum af mjólkinni, láta sjóða í 5 mínútur og hella svo sam- an við afganginum af mjólkinni. Sé þannig farið að, þurfa grjónin ekki nema 20 mínútna suðu. alls. Ef hrísgrjónagrauturinn skyldi brenna við, er hægt að eyða bruna- bragðinu með því að sjóða sneið af hráum lauk í honum, en þó að- eins augnablik. Ava Gardner. Hér er mynd af amerísku kvik- myndaleikkonunni, Ava Gardner. — Hún veit, hvernig hún á að sitja fyrir til þess að vekja athygli karl- mannanna. Sé silfurborðbúnaður með mikl- um skreytingum og flúri, er bezt að fægja hann með sítrónu, sem difið hefur verið niður í ösku. Brúnu kalksteinsblettunum undir vatnskrönum í baðkerum og hand- laugum er bezt að ná af með edik- sýru. Hvítum baugum er bezt að ná af póleruðum húsgögnum með því að strá á þá vindla eða vindlingaösku og núa þá síðan með rökum klút. Hafi gljáinn farið af póleruðum húsgögnum vegna kulda eða raka, er bezt að strjúka þau með mjúk- um klút, vættum í tréspíritus. Eftir hálftíma má pólera þau. Á þann hátt má fá fallegan gljáa á þau aftur. Póleruð húsgögn er bezt að fægja með dálitlu af ediki og síðan með olífuolíu. F jallgöngumenn. ísak hafði opnað nýja verZ ^grn þorpinu. Viðskiptin gengu í bezt, og einn morguninn stóð 5 ^ búðardyrunum og horfði hníp'n á fáförula götuna. , .rll- Lítil stúlka kom þá fyrir hnS ið og nam hikandi staðar fyr'* r an hann með bögglaðan Pun í hendinni. Bros færðist jafns yfir andlitið á ísak. ,an. „Heyrðu," sagði litla stu ^ „Skuldar hún mamma Þer pund?“ .ver „Já,“ sagði ísak. „En e á þig, væna mín?“ HEIMILISBL AÐIÐ 126

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.