Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1957, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.03.1957, Qupperneq 12
 Willy Corsari: Kona blinda mannsins — Það hefur gengið illa að finna þig, gamli vinur, sagði Eiríkur Dalan. Blindi maðurinn sneri andlitinu þangað, sem röddin kom frá. — Hefði ég vitað, að þú varst á lífi, sagði hann, mundi ég hafa látið þig fá heimilis- fangið mitt. En ég hef ekkert frá þér frétt árum saman, svo að ég hélt, að þú værir dáinn — einhversstaðar í Ameríku. Við lif- um mjög kyrrlátu lífi, hjónin. Aðeins móðir mín og nánustu vinir okkar heimsækja okk- ur stöku sinnum. — Er það ekki heldur kyrrlátt líf fyrir hina ungu konu þína? spurði gesturinn. — Hún vill sjálf hafa það þannig. Ég hef oft stungið upp á því, að við dveldum tíma af árinu í bænum, svo að hún gæti skemmt sér og verið með öðru fólki. En hún vill það ekki. Ástæðan er sú . . . Blindi maðurinn þagnaði, en hélt svo áfram máli sínu: — Jæja, ég þarf ekki að leyna neinu fyrir þér. Þú hefur ekki séð konu mína enn- þá. Hún er ófríð, mjög ófríð. Hún hefur sagt mér það sjálf. Eg hef aldrei séð hana. En ég blessa þau örlög, sem hafa bundið okkur saman. I veiðiför fyrir fimm árum varð ég fyrir slysi. Síðan hef ég verið blindur. Þá óskaði ég þess, að ég væri dauður. Ég hélt ekki, að ég mundi nokkurn tíma geta sætt mig við þessi grimmu örlög. En ástúðleg um- önnun, hjálp og vinátta konunnar, sem nú er eiginkona mín, gjörbreyttu lífi mínu. Hún hjúkraði mér á myrkustu dögum ævi minnar. Hún gaf mér trúna á lífið. Hún varð Ijós augna minna. En ég þorði ekki að tjá henni ást mína, ég vildi ekki binda hana mér — blindum manninum. Sá blindi þagnaði andartak og brosti. Síð- an hélt hann áfram: — Ég barðist við ást mína, enda þótt ég hefði orðið þess var, að henni þætti vænt um mig. Dag nokkurn sagði hún mér, að hún hefði farið út með frænda sínum. Ég fylltist afbrýðissemi og kom upp um mig. Þa sagði hún það, sem þurfti að segja! Hún kraup við stól minn, lagði höfuð sitt á hand- legg mér og hló og grét í einu, um leið og hún stundi upp: — Gagnvart mér þarftu aldrei að vera afbrýðissamur! Enginn sá maður, sem hefur fulla sjón, mun nokkurn tíma verða ástfanginn í mér. Það var eins og birti í kringum mig. — Ástin mín, sagði ég milli vonar og ótta- Ertu svona . . . — Ljót, sagði hún. Já, Guði sé lof, að þn sérð ekki hversu hræðilega ófríð ég er, ann- ars . . . — Þá fæ ég að eiga þig, stamaði ég utan við mig. Nú bið ég þig að verða konan mín! — Já, þannig er aðdragandinn að hjóna- bandi okkar, sagði blindi maðurinn að lok- um. Nú skilur þú sjálfsagt, að það líf, sem við lifum, skerða ekki á neinn hátt frelsi konu minnar. Vegna lífsóláns hennar höfum við orðið hamingjusöm. Uss . . . hún er að koma. Dyrnar opnuðust. Blindi maðurinn brosti blíðu, ástúðlegu brosi til konu sinnar. — Vina mín, sagði hann. Má ég kynna þi£ fyrir Eiríki Dalan, gömlum vini mínum. Eiríkur Dalan reis á fætur og hneigði sig djúpt fyrir konu hins blinda vinar síns. Hún var töfrandi fögur. 56 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.