Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1958, Síða 30

Heimilisblaðið - 01.03.1958, Síða 30
„Hann hefði átt að sækja mig. Ég hefði sannarlega fundið þá — og kálað þeim. En hann hefur auðvitað viljað gera út um þetta sjálfur til að geta komið til foringjans og sagt: Gjörðu svo vel og líttu á, hvað ég hef innt af hendi.“ „Þú getur gripið þá í kvöld,“ sagði Mang- ey. ,,En hvers vegna viltu endilega hafa hendur í hári þeirra?“ „Það kemur þér ekki við,“ þaggaði Gór- illan niður í honum. „Snautaðu bara aftur um borð í þennan skítadall og reyndu að grynnka eitthvað á svaðinu á þilfarinu.“ Að svo mæltu skauzt hann inn í bifreiðina og setti í gang. „Hvar átti ég að bíða? Við vegamótin?“ „Já, það sagði hann,“ anzaði Mangey. „Og þar á ég að sitja og góna út í loftið á meðan hann gerir upp við þá?“ Hann bölv- aði ferlega. „En þetta er honum um megn. Hann nær aldrei í þá. Það er hægt að nota hann til að bíða að hurðarbaki með skamm- byssu í hendinni, en annars ekki.“ Hann setti bifreiðina í gír með miklu há- reysti, og hún hristist af stað eftir ósléttum skógarveginum. ★ Um leið og hljóðið frá henni dó út, yfir- gáfu Mansel og Tómas felustað sinn. „Þá held ég, að þetta hafi verið auðvelt," sagði Mansel. „Þetta var ég búinn að segja. Og nú er bezt að þér farið aftur og grafið þann dauða.“ Þótt gildran hafi nú verið spennt og agn- inu komið fyrir, var engan veginn víst, að Shamer myndi nú bíta á. Það var ætlunin að ginna hann út í bátinn milli klukkan tíu og ellefu með Katrínu meðferðis. En Sham- er var tortrygginn að eðlisfari, og hann myndi fara að gruna margt, þegar hann sæi Júdas hvergi. Mansel og Tómas fylgdust með Mangey um borð og sáu hann hverfa niður undir þiljur. Þá kallaði Mansel alla saman og hvíslaði að þeim: „Ég veit ekki, hve Górillan mun bíða lengi við vegamótin, en ég veit, að hann hugsar sig tvisvar um, áður en hann ekur af stað og skilur Júdas eftir í hættu. Ég held því, að okkur sé óhætt að reikna með því, að hann verði þar, þangað til að fér all' til' að birta af degi. Þá mun hann aka heirn til foringja síns — allt hvað af tekur. En, hvað um það, við verðum að reyna að elta hann. Ég þori ekki að yfirgefa bát inn — ég treysti Mangey ekki úr fjarlseg Tómas verður að vera hér eftir hjá 111er’ Það er bezt, að þið Marteinn og Carsov faI ið á eftir Rolls Royce-bifreiðinni og bíði á einhverjum hentugum stað við R°uen veginn og eltið Górilluna um leið og hann ekur fram hjá. Þér hafið númer bifreiðariW1 ar, Carsov?“ Carsov hafði eftir númerið — en það val nokkuð, sem Tómas hafði ekki haft hugsun á að setja á sig. .. „Það er nú gott og blessað. Ef þið finn^ ákvörðunarstað hans, sem ég nú vona, el bezt, að Carsov yfirgefi bifreiðina og MaJ teinn taki við stjórn hennar. Carsov velb hvað hann á að gera. Marteinn ekur síðan bifreiðinni í burtu, leggur henni á einhvein góðan stað og læðist síðan hljóðlega á e^ir Carsov. Tíminn mun skera úr því, hvernig við náum sambandi við ykkur aftur. TómaS verður hérna við lendingarstaðinn mest an tímann. Hefur annars nokkur nokkra lögu?“ Það var nú ekki. , „Ágætt. Stingið þá af báðir tveir og stan ið ykkur nú vel.“ 'jr Carsov og Marteinn hurfu. Skömmu SJ , gekk Mansel undir þiljur til að hafa því, að Mangey lyki við það starf, sem hann hafði af heimsku sinni tekizt á hendur- Tómas varð einn eftir á þilfari þessa óhuín anlega farkosts. Tómas stóð sjálfan sig að því hvað e ri^ annað að einblína niður með árbakkanu1^ eins og hann væri að bíða eftir því, að nl dauði kæmi til baka þá leið, hvort sem var vegna þess, að hann var ringlaður atburðarásinni eða vegna þeirrar sögu> s ^ Mangey hafði sagt Górillunni um Júdas> ^ hann hefði læðzt af stað niður með fljót'n til að hafa upp á tveimur slæpingjum- Það var tunglskin og hugsanir Toma flögruðu til unnustunnar. Hann gramdist . ir glötuðu tækifæri — ef Júdas hefði e , verið myrtur — hefði hún verið frelsu kvöld. Hvar var hún? Hvernig leið henni.'' ;? Ha*01 74 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.