Heimilisblaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 3
CLARENCE W. HALL:
t>að scm Bali kcnndi mcr
-----------------------------------------------------------------------------------------------
Eyjan Bali eða Litla-Java er örskammt austur af Java, aðeins fjögra km breitt sund á
milli þeirra. Hún er 5400 ferkílómetrar að flatarmáli og íbúarnir eru 1.8 milljón. Um miðbikið
og norðan til er hún hálend og eldgígaröð eftir henni endilangri frá austri til vesturs. Aðal-
láglendið er sunnan til á eyjunni, bæði vel ræktað og þéttbýlt. íbúarnir eru Malajar, náskyld-
ir Javabúmn og líkir þeim að flestu, þó ekki að trúarbrögðum. Balibúar eru Brahmatrúar og
skiptast í erfðastéttir, eins og tíðkast meðal Indverja, en flestir aðrir Malajar á þessum slóðum
eru Múhameðstrúar.
Fram yfir síðasta stríð skiptist Bali í furstadæmi, þar sem innbornir furstar, Rajar, fóru
með æðstu völd undir yfirstjórn Hollendinga.
„I NAFNI sumra staða er svo heillandi
hljómur, að ef við hvíslum þau hægt og
hljóðlega, þá er eins og andi lampans sé
allt í einu kominn, tilbúinn að uppfylla
allar óskir okkar. Jafnvel aðeins það að
sjá þau á prenti nægir til þess, að við finn-
um þann undraverða töframátt, sem fylgir
þeim,“ segir enski rithöfundurinn H. M.
Tomlison.
Hjá mér og mörgum fleirum hefur ein-
niitt nafnið Bali þennan töframátt í sér
fólginn. Frá því á árunum 1930—40, að
landið var opnað og útlendingum gefið
frjálst að fara þangað að vild, hefur þessi
dásemda staður, þar sem enginn á ann-
ríkt og alls staðar andar friði og kyrrð,
verið eftirlæti ferðamannanna, sem þang-
að hafa komið.
Það er ekki fyrst og fremst náttúrufeg-
urðin á Bali, sem heillar mig, heldur þetta
Nú telst eyjan til Indónesiskalyðveldisins.
órannsakanlega andrúmsloft friðar, tillits-
semi og tárhreinnar lífsgleði, sem leikur
um eyjuna. Okkur Vesturlandabúunum,
sárþjáðum og taugabiluðum af sífelldum
eltingaleik við ekki neitt, verður fljótlega
sannkölluð nautn að njóta þess, og okkur
fer að dreyma þann sæla draum, að ef til
vill gætum við tileinkað okkur þennan
unaðsanda, sem svífur þarna yfir vötn-
unum. — En hvernig má það ske?
Ég reyndi að spyrja Anak Agung, Pandji
Tisna. - Anak Agung þýðir „mikli drottn-
ari“, en síðan árið 1950, að Pandji Tisna
eftirlét yngri bróður sínum bæði höll sína
og tignarheitið raja Bulelangfylkis og sett-
ist að í smáþorpi einu hefur hann ekki
drottnað yfir neinum nema þá sjálfum
sér — sínum eigin anda, frjálsbornum og
fagurheiðum, og lifað sama lífi og hver
annar venjulegur maður.