Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Qupperneq 5

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Qupperneq 5
frá þeim tíma var farið að nota hverskyns efni úr jurtum í meðulin í æ ríkara mæli. En jafn gætinn og hippókratíkerinn var 1 lyfjanotkun, gat honum einatt fundizt fn’áðnauðsynlegt að nota skurðarhnífinn. Ekki var þó ráðizt í stórar skurðaðgerðir, sökum óttans við blóðrennslið, sem menn höfðu þá ekki tök á að stöðva. En þar sem ekki var hætta á miklum blóðmissi, var hnífurinn notaður óspart. Þannig tókst ágætlega að lækna höfuðkúpubrot, hol- nabba í endaþarmi, lækna gyllinæð og skera upp við aðskotahlutum í barka. Einkum tókst mönnum furðu vel að lækna bein- br°t 0g liðhlaup; þekking þeirra á við- b^ögðum mannslíkamans hafði nefnilega ^ukizt vegna iðkana íþróttanna. En í raun- lnni má segja, að það sé furða, hversu Snjallir skurðlæknar hippókratíkerarnir Urðu, þegar tekið er tillit til þess, hve lítið Peir vissu um alla innri byggingu manns- ukamans. Lífeðlisfræðin var í rauninni eugin. Þekking á vöðva- og beinabyggingu Var miklu meiri. Þeir vissu þannig í aðal- utriðum hvernig beinagrindin var og gerð ujartans; sömuleiðis nokkuð um helztu æð- ar. °g blóðfarvegi. í meðferð sára lærðu beir eitthvað, og auk þess rannsökuðu þeir apðar skepnur all-nákvæmlega. Aftur á jUóti er ekki vitað til þess, að þeir hafi r.ufið mannslík, sem nú á dögum hefur Unkla læknisfræðilega þýðingu; slíkt hefði Kki getað samrýmzt grískum hugsunar- «aatti í þá daga. . Hippókratísku læknarnir álitu verknað ^11111 uátengdan skyldunni. Hin örlagaríku Urif Sem þekkingarskortur og ágirnd geta art í læknislistinni fremur en jafnvel í Uokkurri annarri starfsgrein, reyndu þeir » k°ma í veg fyrir með margskonar sið- ^rðilegum boðorðum, sem koma gleggst og gurst fram í hinum hippókratíska læknis- 1 • Hann er á margan hátt mjög svipaður eim ejg; sem iæ]jnar Verða enn í dag að •U’ja, áður en þeir fá læknisréttindi. Þessi gamli eiðstafur hljóðar þannig: sver við Appolló lækni, Eskuláp, við eilbrigðina, við Panakea og alla guði og k Jur> er séu mér vitni, að ég mun kapp- j°sta að halda þennan eið og skuldbind- ^u> eftir því sem mér endast hæfileikar og dómgreind til: Kennara minn í þessum fræðum gengst ég undir að virða til jafns við foreldra mína; deila með honum brauði mínu og fé, ef hann er í fjárþröng; líta á venzlamenn hans sem bræður mína og kenna þeim fræði mín endurgjaldslaust, ef þeir óska að nema þau; láta forskriftir, munnlegar leiðbeiningar og hvers konar til- sögn aðeins í té sonum mínum, sonum kenn- ara míns og samningsbundnum nemendum, er unnið hafa lækniseið, og engum öðrum. Ég heiti því að beita læknisaðgerðum til líknar sjúkum, eftir því sem ég hef vit og getu til, en aldrei í því skyni að valda miska eða tjóni. — Ekki mun ég heldur byrla neinum eitur, þó að þess sé farið á leit við mig, né blása mönnum í brjóst að fremja slíkar misgerðir. Sömuleiðis mun ég forðast að fá konu í hendur nokkur þau tæki, er valdið gætu fósturláti. Ég vil vera hreinn og vammlaus í líferni mínu og starfi. Ég mun ekki beita hnífi við stein- sóttarsjúklinga, heldur láta það eftir kunn- áttumönnum í þeirri grein. Hvar sem mig ber að garði mun ég kosta kapps um að líkna sjúkum og varast að valda mönnum viljandi óheillum eður tjóni og sérstaklega forðast að misbjóða líkömum karla eða kvenna, hvort heldur eru frjálsborin eða ánauðug. Að hverju svo sem ég kann að' vera sjónar- eða heyrnarvottur í starfi mínu eða utan þess í viðskiptum mínum við menn og ekki má vera heyrum kunnugt, þá mun ég aldrei ljósta því upp, heldur gæta fyllstu þagmælsku og trúnaðar. Ef ég held þennan eið trúlega og rýf hann aldrei, megi ég þá ævinlega öðlast góðan orðstír og njóta almennrar virðingar vegna líf- ernis míns og listar minnar, en gerist ég eiðrofi og griðníðingur, megi þá hið gagn- stæða verða hlutskipti mitt. - Úr bréfum Horatzar - Þess meira sem vér vitum, þess betur finnum vér hvað vér vitum lítið. Vertu fljótur til að þegja, en seinn til að tala. Ræðan er silfurgildi, en þögnin er gull- væg. Milisblaðið 181

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.