Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 30

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 30
gull. Eftir öllu að dæma eruð þér heldur ekki illa stæður. Þar að auki koma svo þessar tvö þúsnd gíneur Alicear. Loks get- ið þér búizt við því, að ég minnist yðar sérstaklega, þegar þér haldið brúðkaup yðar, ef allt fer eins og ráð er fyrir gert. Framtíðin er því bjartari en þér haldið.“ „Svo gæti litið út,“ viðurkenndi Henry. „Þér gangið þá að skilyrðinu?“ Henry varð að taka ákvörðun með and- artaksumhugsun, og hann ákvað að tefla á tæpasta vaðið. „Ég geng að því, þannig að það taki gildi klukkan ellefu á mánudagsmorgun 28. júní,“ sagði Henry, ,,ef við Alice erum þá bæði í þessari andstyggilegu gæzlu yð- ar, læknir.“ Læknirinn skellihló, eins og Henry hefði sagt einhverja fyndni. „Jæja, ekki eruð þér enn búinn að gefa upp alla von. Ágætt! Ég hef líka verið ungur einu sinni, og mér fellur vel við þá, sem ekki gefast upp fyrr en í síðustu lög. Þetta er þá samningur milli okkar.“ XV. Henry spurði, hvort hann gæti fengið að tala við Alice um kvöldið, en læknirinn neitaði því. „Þér verðið betri á morgun, þá getið þér heimsótt hana,“ sagði dr. Paul, og það varð Henry að láta sér lynda. Hann svaf ekkert um nóttina. Umhugs- unin um ósigurinn og örlög Alicear kvaldi hann. Hann sneri sér fram og aftur, og einu sinni stökk hann fram úr til að at- huga, hvort nokkur möguleiki væri á flótta. Svo var ekki. Hann skildi, að dr. Paul gat gert þennan samning þrátt fyrir fyrirvara Henrys, því að þau Alice væru jafnt á valdi hans á mánudaginn og þau voru það nú. Hann heyrði klukku slá fimm, en síðan hlaut hann að hafa gleymt sér, því að hann kom ekki aftur til sjálfs sín, fyrr en hann vaknaði við það, að Gaby stóð álút yfir honum og virti hann fyrir sér. „Komið nú!“ sagði hún, „Ég er með al- veg sérstakt lyf handa yður, sem gefur yður krafta að nýju. Ef þér hegðið yður vel, þá fáið þér að sjá þá, sem þér elskið, bráðum.“ Hún rétti Henry lyf jaglas með bláleitum vökva og hann drakk úr því. Það var hálf- gerður myglukeimur af því, en samt ekki eins vont og hann hafði búizt við. Svo fékk hann flóaða mjólk og svolítið kaffi og um tíuleytið var hann orðinn hress og endur- nærður. Stundu síðar var hann spenntui' í hjólastól. Þegar hann spurði, hvers vegna hann væri reirður svona niður, yppti Gaby öxlum og sagði: „Læknirinn skipaði svo fyrir.“ Hjúkrunarmaðurinn ýtti hjólastólnum eftir löngum gangi og niður breiðar tröpp- ur, og hann gerði það svo léttilega, uð Henry fann varla fyrir því. Fyrir neðan tröppurnar stóð dr. Paul fyrir framan raf- magnsofn í glæsilegu anddyri. Hann var að lesa í dagblaði, en lagði það frá sér, þegar Henry kom og brosti. „Jæja, þá sjáumst við hér. Já, þér getið farið, André. Þér fenguð yfirhöfn hans að láni hér um daginn,“ sagði hann um leið og hjúkrunarmaðurinn fór. Læknirinn sló á öxl Henrys og sagði: „Nú skulum við fara til ungfrú Kerlom en á undan lítum við á aðra mannveru. ætla að sýna yður eftirlíkinguna, sem eg ætlaði að nota, ef frummyndin væri horfm fyrir fullt og allt.“ Henry anzaði engu, en hugsaði því meirm Jean Monier hafði þá haft á réttu uð standa. Lækninum stóð alveg á sama, það vissi Henry. Henry var líka órór, Þ''1 að hann gat ekki gert sér grein fyrir þvl> í hverju hættan var fólgin. Sú falska Alice lá 1 rúmi sínu og virtis sofa. Það var stúlka með samt konar ald- litsdrætti og háralit og Alice. Þótt huu væri mjög lík þeirri réttu Alice, þá hefo* Henry aldrei látið blekkjast, og hann sagoi lækninum það opinskátt. „Nei, að sjálfsögðu, en þér verðið a muna, að þér sjáið hana við mjög slmm skilyrði. Hún er meðvitundarlaus og Þa° gerir nú mikinn mun, og svo er hún ómáluð. Þar að auki hefðum við ekki Þul að fást við neinn af yðar tagi, sem hefu1 haft gott tækifæri undanfarið til að ky1111 ast andlitsdráttum hennar í einstökuin m1 iðum. Ég held, að hún hefði eftir öllum a stæðum að dæma komizt í gegn. En við þurfum ekki að notast við hana, sem betu1' 206 HEIM ilisblað1®

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.