Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Page 6

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Page 6
að til við komum í Dalatangaröst. Þó urðu öldurnar aldrei mjög stórvaxnar, en ákaf- lega óhreinar, öldukambarnir voru þunn- ir, blágrænir og hálf-gegnsæir. Þegar þær líta svipað út, vantar ekki mikið á, að þær brjóti, enda féll við og við stöku brot umhverfis okkur. Upp við landið var ströndin öll og sjórinn meðfram landinu í einu hvítu löðri. Boðarnir brutu stöðugt og það þvoði yfir klappirnar fram af Dala- tangavitanum. Gekk ég fljótlega úr skugga um, að ekki væru tiltök að lenda heima hjá okkur. Þá var ekki um annað að gera en að reyna að komast fyrir tangann yfir röstina og inn til Mjóafjarðar. Ekki var fýsilegt að snúa aftur, því að þá höfðum við fallið á móti, enda sýndi það sig síðar, að það hefði orðið bráður bani okkar. 1 röstinni fór stór mótorskúta framhjá okkur. Hún ruggaði mikið, og sjórinn foss- aði út af þilfarinu á henni, og við og við tók hún sjó að framan. Gegnir það mikilli furðu, að litla skelin okkar skyldi fljóta, þegar gekk yfir svo stór skip. En þessi sýn — meðal annars — opnaði augu mín fyrir því, hvernig ástæður okkar voru í rauninni. Ég skildi það smám saman, að ef við lentum í einhverju brotinu, þá var úti um okkur. Ég réri stöðugt. Báturinn fór ýmist upp á vatnsbungurnar og stakk stefninu í bárufaldana eða hann rann niður af þeim og hún veltist áfram fyrir aftan okkur. Jóhann varð að ausa við og við. Þannig héldum við áfram og brotin umhverfis okkur urðu bæði þéttari og stærri. Mér virðist „hulinn verndarkraftur" hafa ráð- ið því, að við flutum ennþá. Ekki var það nema tæpa stund, sem við ■vorum í röstinni. Sjóarnir og brotin fóru smám saman minnkandi, en þá hvessti allt í einu, og stóð vindurinn af landi. Á ótrú- lega skömmum tíma var komið stórviðri. Við gátum ekki siglt, því stýrishausinn höfðum við brotið um daginn, enda var fullhvasst til þess. Það gekk nægilega mik- ið, þrátt fyrir það, en ekki máttum við róa nema á kulborðið. Jafnfranit rokinu helltist öskugrá krapahríðin yfir okkur. Okkur fannst hún lemjast gegn um renn- vot fötin. Þegar við vorum komnir úr röstinni, gekk okkur bæði vel og fljótt. Raunar skvettist dálítið yfir okkur, en það voru ekki nema smámunir, og eftir það er við náðum Mjóafjarðarmynninu, varð sjólaust með öllu, en mjög hvasst. Klukkan fimm um morguninn, réttum sólarhring eftir það er við lögðum af stað að heiman, vorum við komnir inn á trygga höfn. Og þegar ég hugsa til þessarar sjó- ferðar, dylst mér ekki, að við vorum um stund við „landamæri lífs og dauða“, en slíkt eru hversdagslegir atburðir meðal þeirra, sem berjast fyrir tilveru sinni við strendur þessa lands. Sigurður Helgason. Á skurðum Tokio-borgar má daglega sjá timburfleytara, sem hafa náð mikilli leikni í að fleyta trjábolum til birgða- stöðvanna. Á myndinni sést einn fleytari, sem hefur tekið farþega á herðar sér. 6 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.