Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 10

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 10
Minkurinn-hið skapvonda skrautdýr Eftir GEORGE FICHTER Dýr þetta, sem nýtur þess að vera í dálæti meðal fjármálamanna og kvenna, endurgeldur ekki þá elskusemi. Það hat- ar allt og alla — og er stöðugt búið til árásar. Dag nokkurn að vetri til fyrir u. þ. b. ári setti ég gildru skammt frá ársprænu og fylgdist með henni að staðaldri. Dögum saman kom ekkert í gildruna. En morgun einn, í þokuveðri, sá ég hvar brúnleitt dýr var komið í gildruna; og þeim morgni gleymi ég aldrei. Jarðvegurinn þar sem ég gekk var gljúpur, og þess vegna heyrði fanginn mig ekki nálgast. Dýrið sat í hnipri og nagaði einhvern hlut af miklum ákafa. Þegar nær kom sá ég, að þetta var minkur — og að hann var að naga fótinn á sjálfum sér til að losna. Skyndilega varð mér stigið ofan á trjá- grein. Minkurinn hnykkti höfðinu í átt til mín, og lítil augun blossuðu af reiði. Síðan rak hann upp skræk og þaut af stað eins langt og hlekkirnir náðu — fyrst í áttina til mín — en síðan á flótta í gagn- stæða átt. Hann var fullur kjarks og hugrekkis •og reiðubúinn að etja kappi við mig, sem var risavaxinn móts við hann sjálfan. Allt í einu fann ég til skammar. Mig langaði til að veita honum frelsi. Ég þrýsti á fjöðrina sem hélt gildru- kjöftunum saman. Minkurinn réðst þá harkalega á viðinn í gildrunni og læsti í hann tönnunum. Jafnvel eftir að gildran hafði opnazt og blóðugur fótur minksins var laus úr haldinu, hélt hann áfram hinni æstu árás sinni. En þegar honum var orðið ljóst, að hann var frjáls, tók hann að haltrast á brott. Hann nam þó staðar annað veifið og leit til mín logandi hatursaugum. Loks hvarf hann. Hin gengdarlausa lífshvöt minks þessa skapaði hjá mér djúpa virðingu fyrir öll- um lifandi verum, og ég hafði þegar lagt mína síðustu dýragildru. Af öllum dýrum merkurinnar er mink- urinn það dýrið, sem erfiðast er að um- gangast. Hann er jafnvel fjandsamlegur sínum nánustu í dýraríkinu — nema um fengitímann, sem er síðla vetrar, þegar hlána tekur í ríki náttúrunnar. Hinsvegar er ekki um að ræða tilfinningaríkt ástalíf af hans hálfu. Karldýrið og kvendýrið svala eðlisþörfum sínum í æsingi, sem allt líf þeirra einkennist af alla stund. Um hristi höfuðið. ,,Hún dó fyrir sex vikum, og ég sá það með eigin augum, að líkið var borið út úr húsinu. Og ekki var jarðar- förin hennar upp á marga fiska.“ Konan fitjaði upp á nefið. „Ekki einn einasti rósavöndur. Þér trúið því kannski ekki, herra minn, en það var ekki svo mikið sem eitt laufblað. Eins og það komu þó margir í heimsóknir til hennar á meðan hún lifði. En hvaða gagn hafa menn af dauðu kvenfólki?“ „En ég er að segja yður, að ég snæddi með henni á veitingahúsi í gærkvöldi!" Blake var nú orðinn náfölur í framan. „Hún var í ljósrauðum kjól og í svartri, síðri kápu með skinnkraga." Húsvarðarkonan leit á Blake og virti hann fyrir sér íhugul. Auðsjáanlega hélt hún, að hann væri drukkinn eða vitskertur. Blake sneri sér frá. Annað gat hann ekki gert. Þegar hann reikaði niður eftir langri grárri stórborgargötunni, strauk nístings- köld golan um vanga hans ... eins og hönd dáinnar stúlku. 10 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.