Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 17

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 17
Alice, læknirinn, Monier og hitt vitnið, sem kynnt var sem hr. Leclerc, lögfræðing- ur í skrifstofu Moniers. „Jæja, mín kæra,“ sagði læknirinn dr. Paul við Alice. „Nú eru vinir þínir komn- ir.“ Svo sneri hann sér að Henry og sagði lágum hljóðum: „Mér þykir vænt um að geta sagt yður, hr. Bering, að ég þarf ekki að vera viðstaddur bónorðið. Sannleikur- inn er sá, að skjólstæðingur minn sá undir eins af einhverju dularfullu innsæi sínu, hvernig í öllu lá.“ „Komið nú, hr. Monier, og þér, hr. Le- clerc,“ sagði hann hátt, „og lítið á eggja- safn mitt eða bókasafnið, ef þið hafið meiri áhuga á því.“ Hann hélt uppi fjörugum samræðum við þá tvo og fór með þeim út úr herberginu. Henry og Alice voru ein eftir í dagstof- unni. Aliee stóð brosandi fyrir framan ar- ininn, og Henry einblíndi á hana og kom ekki upp nokkru orði. Loks tókst honum samt að hreyfa tunguna. „Þér vitið það þá?“ spurði hann. „Já, þér ætlið að biðja mín,“ sagði Alice rólega. „Og hverju svarið þér?“ spurði hann hikandi. „Þér verðið sjálfur að komast að því. Ég lofa því að minnsta kosti að bíta yður ekki af mér!“ Allt í einu leit hann á eitthvað fyrir of- an höfuð hennar. Hann starði á það með opnum munni, en ekkert orð kom fram á varir hans. Alice leit undrandi á hann. „Hvað er að Henry?“ hrópaði Alice. „Ó, hvað er þetta, vinur minn?“ Henry varð nú að taka skjótar ákvarð- anir. Hann hafði komið auga á það, sem hefði getað kollvarpað áætlunum hans. „Það var ekkert,“ stundi hann upp eins og hann kenndi til. „Það er bara handlegg- urinn. — Ég fékk byssukúlu í hann eins og þér kannski vitið.“ „Kúlu? Hvenær? Hvernig stóð á því? Leyfið mér að sjá.“ „Ekki núna! Mér líður strax betur. Ég er ekki alvarlega særður, og ég vildi ekki hafa hönd í fatla til þess að gera yður ekki órólega. Sárið er grunnt, en samt lá mér við yfirliði nú fyrir stuttu. Það stafar víst af því, að ég er í svo miklu uppnámi þessa stundina.“ Sannleikurinn var sá, að Henry hafði fullkomlega vald yfir sjálfum sér og sat nú hinn rólegasti í einum af hægindastól- um dr. Pauls. Við slíku var vart að búast, þegar Alice stóð rétt hjá honum, en hann hafði uppgötvað hljóðnema í herberginu. Arinhillan var úr eik og skreytt út- skurði, og hljóðneminn var falinn í kjaft- inum á ljónshöfði. Það var hreinasta til- viljun, að Henry kom auga á hann, af því. að ljósglampi féll á hann. Hefði hann ekki séð hann, mundi hann andartaki síðar hafa talað af sér og ljóstrað öllu upp. Hann var sannfærður um, að læknirinn sat nú með hlustunartæki á eyrunum, eftir að hafa dregið sig í hlé frá gestum sínum. Hann heyrði hvert orð, sem þau sögðu. „Jæja þá! Þetta með áformið um bón- orðið,“ tók Henry aftur til máls og brosti. „Þér vitið auðvitað, hvað það hefur í för með sér?“ „Já, auðvitað, ég læt mér alveg á sama standa um það ! Segið mér svo, hvort nokk- ur heiðvirð stúlka getur gengið lengra. Reynið nú að hefjast handa Henry.“ Henry hélt stöðugt aftur af sér, því að hann vissi, að hann hafði tvo áheyrendur. „Þér farið á mis við auðæfi yðar og fá- ið ekki nema tvö þúsund gineur, auk mín!“ sagði hann. „En þetta er eina björgunar- leiðin.“ „Og þess vegna ætlið þér að biðja mín?“ spurði hún og roðnaði. „Ef svo er, þá vil ég aldrei framar tala við yður.“ Henry andvarpaði, því að hann var auð- sjáanlega kominn út á hálan ís. „Nei, ég ætla að orða það þannig,“ hóf hann máls að nýju. „Ég bið yður að gift- ast mér, af því að ég elska yður, og ég get heldur ekki komið auga á neina leið, sem liggur út héðan. Ef þér játizt mér einung- is til að sleppa burt, þá skil ég það mæta vel. Ef þér gætuð einnig tekið fyrra at- riðið með til athugunar, þá gerðuð þér mig óskaplega hamingjusaman og mjög .... Ó, þetta er ekkert nema tómt mas í mér. Getið þér ekki hjálpað mér, Alice?“ Hún sagði ekkert, en svarið stóð skýrum stöfum í augum hennar, og Henry gat HEIMILISBLAÐIÐ 17

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.