Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 18

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 18
ekki misskilið það. Hann þrýsti henni að sér, og nú varð hæfilega löng þögn. Loks sagði Henry: „Segið mér, hvernig þér viss- uð um áform mitt?“ Hún hristi höfuðið og brosti íbyggin á svip. „Það get ég ekki,“ sagði hún. „Ég held ég viti það ekki sjálf. Ég gat mér bara til um það... Ertu viss um, að við getum gift okkur í kvöld?“ „Að sjálfsögðu aðeins ef læknirinn hef- ur staðið við sinn hluta samkomulagsins og látið lýsa því yfir, að þú sért andlega heil heilsu.“ „Það er í lagi. Hann útfyllti eyðublöð- in, áður en þú komst.“ „Ég neyðist víst til að trúa þér, en samt er það nú varla hægt eftir þessari fábjána- legu framkomu þinni að dæma!“ „Nú skaltu gæta þín!“ svaraði hún. „Þar sem ég er nú andlega við fulla heilsu, get- urðu hætt á, að ég skipti skyndilega skapi, ef svo ber undir.“ Stundarkorni síðar kom dr. Paul aftur, og framkoma hans bar það með sér, að samtal þeirra hafði eytt allri tortryggni læknisins. XVIII. Jean Monier hallaði sér fram á borðið og ýtti við hendi Henrys. Því næst hvíslaði hann einhverju að honum. „Hamingjan góða!“ hrópaði Henry eins og viðutan og einblíndi á dr. Paul. „Mér þykir fyrir því, læknir,“ sagði hann, „en ég hef alveg gleymt pökkunum. Þeir eru í farangursgeymslu bílsins.“ „Pakkarnir,“ endurtók dr. Paul. „Já, það eru nokkrir smáhlutir, sem ég keypti núna síðdegis. Nokkrar gjafir handa Alice og nýr kjóll.“ „En hvað það er dásamlegt!“ hrópaði Alice upp yfir sig og brosti. „Þótt þú sért gleyminn, þá held ég þú verðir ágætis eiginmaður!“ Dr. Paul brosti breitt og játaði, að svo gæti farið. Svo hringdi hann og sendi Brest eftir pökkunum. Þegar hugað var að inni- haldi þeirra, ljómuðu augu Alicear. Hún sneri sér að forsjármanni sínum, fyrrum óvini og ofsóknarmanni, dr. Paul, og 18 spurði: „Má ég fara inn fyrir og fara í kjólinn ?“ „Sjálfsagt, vina mín, sjálfsagt," svar- aði hann og var ekkert nema elskulegheit- in. „Það er leiðinlegt, að Gaby er hér ekki til að hjálpa þér, en kannski getur ráðs- konan hjálpað þér.“ Hann hringdi aftur, og Alice gekk út á eftir stórvaxinni konu. Andlit hennar var eins og höggvið í stein og handleggirn- ir langir og beinaberir. í dyrunum sneri Alica sér við og brosti til Henrys, og lækn- irinn kinkaði kolli til þeirra ánægður á svip. Henry mælti: „Meðan ég man, er heilbrigðisvottorð Alicar í fullkomnu lagi og hefur hún verið útskrifuð af hælinu?“ „Auðvitað,“ svaraði hann og benti á innri vasann á jakkanum. „Ekkert vantar á vottorðin nema undirskrift mína til þess að öllum formsatriðum sé fullnægt. Um leið og þið gangið í hjónabandið, skrifa ég undir. Því heiti ég yður.“ „Þökk fyrir,“ sagði Henry og varð aft- ur eins og hugsi. Svo virtist sem læknir- inn ætlaði ekki að stofna sér í hættu í neinu atriði. „Hér eru nægilega margir vottar,“ sagði læknirinn og kinkaði kolli til Moniers og Leclercs. „Ég hef hringt til borgarstjór- ans í Virey og beðið hann að vera tilbú- inn klukkan sjö.“ Þrem mínútum síðar leit læknirinn aft- ur á Henry og sagði: „En hvað Alice er lengi að þessu. Ég er blátt áfram farinn að verða hræddur um, að hún hafi skipt um skoðun í staðinn fyrir kjól.“ „Það yrði meira hneykslið,“ sagði Henry beizkjulega. „Ertu enn með hringinn, Jean?“ „Ég er með þá alla, sex talsins,“ svaraði hann og var grafalvarlegur. „Sex?“ spurði dr. Paul. „Hvers vegna eru svona margir til vara?“ Hann fékk aldrei svar, því að í sama bili gall við hvellt bílflaut. Sekúndu síðar heyrðist það aftur. Þá urðu örlagaríkir atburðir. „Hr. Leclerc" gekk hægt að einu út- göngudyrum herbergisins með byssu í hendinni. Monier dró svipað vopn upp úr vasanum. Henry stóð upp og horfðist í HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.