Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 20
var sagt andartaki seinna. „Því fyrr sem við fáum hana þeim mun betra, því að þá getum við fengið okkur matarbita. Ég er glorhungraður." „Ég verð að vera stuttorður,“ sagði Henry. „Ég geri ráð fyrir því, dr. Paul, að þér vitið til hvers sprauta er notuð?“ Læknirinn kinkaði kolli án þess að glata sjálfsstjórn sinni. „Þið eruð ekki morðingjar,“ sagði hann rólega. „Ég gæti lagt líf mitt að veði fyrir því, ef nauðsyn byði. Ég held þér getið ekkert gert, til þess að ég láti undan. Og það er svar mitt við hetjudáðum þessara herra. Alice verður lögráða á morgun. Ég hef votta að því, að hún hefur dvalizt hér síðan á þriðjudag, það gerir henni ómögu- legt að snúa aftur út í lífið sem heilbrigð. Þar sem hún hefur ekki verið fjórtán daga á burtu frá hælinu. Ég verð mér til blygð- unar að játa, að þér blekktuð mig með þessu áformi yðar um hjónaband, en þér komizt ekki framhjá þrem staðreyndum. Án þessara vottorða getið þér ekki gert kröfu til arfsins, og ekkert getur komið mér til að undirrita þau.“ „Enginn hefur það í huga að stytta yður aldur,“ svaraði Henry rólega og tók fram sprautu til innspýtingar. „En ég held eigi að síður, að þér skrifið undir og verðið þakklátur fyrir að fá það. Dauð- inn er ekki eina vopnið, sem dugar. Þér hafið sjálfur sýnt mér annað betra. Þessi sprauta hefur að geyma skammt af því sama eitri frá Suður-Ameríku, sem þér notuðuð á Alice. Þér vitið eins vel og ég, hve hryllilegar afleiðingar þess eru.“ Henry hallaði sér fram yfir borðið. „Hefur þú skilið það, þrjóturinn þinn, að hafir þú ekki undirritað þessi vottorð eftir þrjátíu sekúndur, þá verður þú á tíu mínútum, eða hve lengi sem þetta við- bjóðslega eitur þitt er að verka, einna lík- astur drafandi fábjána?" „Ef Henry skyldi gleyma að segja yður það,“ tók Monier fram í fyrir honum, „þá ætla ég að bæta við, að samkvæmt yðar eigin orðum, eins og Gaby hefur sagt okk- ur af þeim — þá eruð þér sá eini, sem þekkið móteitrið, og hætt er við, að þér eigið erfitt með að gera yður skiljanleg- an.“ „Ég get líka bætt því við,“ hélt Henry áfram, „að innihald þessarar sprautu er alveg ósvikið. Gaþy stal því fyrir mig, áð- ur en við flýðum. Lyktin af því minnir á hvítlauk og fjólurót. Er það ekki rétt?“ Læknirinn sýndi hvað mestan þrótt, þeg- ar alger ósigur blasti við honum. Hann leit á sprautuna, sem Monier hélt á, horfði rannsakandi á Henry til að sannfæra sig um, að honum væri alvara. Svo yppti hann öxlum. Hann var sigraður, en svip- brigði hans gáfu það samt á engan hátt til kynna. „Gerið svo vel að fá mér penna,“ sagði hann. „Ekki hefði einn af þúsundi komið auga á hljóðnemann. Og það bjargaði yð- ur, ef svik Gabyar eru ekki talin með. En ég er í vafa um, að þér hafið ávallt heppn- ina með yður sem nú, hr. Bering.“ Hann leit andartak á Henry með níst- andi hatursaugnaráði. „Kannski ekki það. Bezt er að spá ekki of miklu. Viljið þér skrifa undir, læknir?“ Dr. Paul skrifaði undir og Henry tók við vottorðunum og stakk þeim í vasann, um leið og Monier lét sína byssu niður í bakvasann. Svo sneri Henry sér að mann- inum, sem ekkert hafði látið á sér kræla, en gekk nú til þeirra og miðaði byssunni stöðugt á dr. Paul. „Má ég kynna fyrir yður þennan mann, dr. Paul?“ spurði Henry. „Þetta er Bar- reaux lögreglufulltrúi, sem hlýtur að hafa haft mikla ánægju af þeim afhjúpunum á sjálfum yður, sem þér hafið gert.“ í fyrsta sinn missti dr. Paul hið rósama yfirbragð sitt. Andlit hans afmyndaðist og rafgul augun tindruðu af reiði. Læknirinn studdist fram á borðið, en lyfti annarri hendi eins og af vana upp að nefbroddinum. „Þér valdið mér vonbrigðum, hr. Be- ring,“ sagði hann hálfkæfðri röddu. „Ég hélt, að þetta væri mál milli heiðurs- manna!“ Henry og Jean Monier skellihógu. En læknirinn setti tennurnar í innsiglishring- inn á vísifingri hægri handar. Lykt eins 20 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.