Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 22

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 22
Þessi fagra Indiánastúlka er i raun og veru franska leikkon- an Marie Versini, sem hefur lokið við leik sinn í mynd- inni „Winctan", sem er gerð eftir sögu þýzka rithöfundarins Karls May. Myndin er tekin í Júgóslavíu. Marie Versini leik- ur í myndinni höfðingjadóttur af apache-ættstofninum, sem deyr af ást, sem hún ber til hvíts manns (Lex Barker). Stella Zelcher var þrettán ára, hún stóð og var að skoða um- slög utan af hljómplötum og lesa nöfn söngvaranna á þeim. Hún sagði við sjálfa sig: Hvers vegna stendur ekki nafnið mitt utan á plötunum? Og það leið ekki á löngu þar til hún fékk að syngja inn á hljómplötu, og lagið hét einmitt: „Hvers vegna ekki ég?“ Það varð svo vinsælt, að nú er Stella litla uppáhald franskra ungllnga. Franska kvikmyndastjarnan Martine Carol, sem er kunn fyrir áhuga sinn á öllu sem kemur frá Tahiti, sést hér dansa polynesiskan dans, Tamoure, við hátíðahald í Nissa. Saroya, fyrrverandi drottning í Persíu, er ætíö umkringd ljós- myndurum hvar sem hún kemur, og ekki sizt nú eftir að hún hefur gert heyrin kunn- ugt, að hún ætli að ganga í hjónaband með þýzka leikar- anum Maximilian Schell. Sa- roya fullyrðir, að hún sé ham- ingjusamasta kona heims og fyrst nú hafi líf hennar til- gang. Hún hefur fengið leyfi keisarans, en missir jafnframt mánaðarlegan lífeyri að upp- hæð 160.000,00 krónur. — Um þessar mundir er hún að leika í Ítalíu í kvikmyndinni Katrín mikla. Hin fagra franska kvikmynda- leikkona Michele Mercier, sem leikur í ítölskum kvikmyndum, heldur jólin á heimili sinu í Róm. Hér er hún að skreyta jólatréð sitt. í Róm er Michele kölluð „hin franska Lollobrig- ida“ vegna þess hve mjög hún líkist hínni ítölsku kvikmynda- stjörnu. 22 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.