Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 33

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 33
sem gætu tjáð það sem honum var niðri fyrir, en fann engin. Hann stóð þarna í reiði sinni, með dýpstu tilfinningar sínar særðar og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Isabella gerði sér Ijóst uppnám hans og hugðist notfæra sér það. „Farðu samstundis út. Ég hef ekki boð- ið þér inn. Þú hefur leyft þér að ryðjast inn á mig. Hafði þér virkilega hugkvæmzt, að ég mundi giftast bóndakurfi eins og þér? Hví skyldi ég ekki daðra við þig? Þú ert þó ekki svo ógeðfeldur. En góði be.. .“ Augun ætluðu út úr höfðinu á Michael. Fingur hans strengdust, og hann var viti sínu fjær. Hann greip höndunum um háls Isabellu og æpti ógnandi: „Endurtaktu það sem þú sagðir, endur- taktu það og ég skal kyrkja þig. . ..“ Af örvæntingu reyndi ísabella að losa sig, og tókst, en dýrmæta perlufestin um háls henni slitnaði og hugmynd sló allt í einu niður í huga henni. Hún kallaði á hjálp, hástöfum meðan hendur Michaels hengu máttvana niður með síðunum. Hvaða góðviljuð máttarvöld höfðu komið í veg fyrir að hann gerðist morðingi? Hann hafði einmitt snúið baki við henni og ætlaði að ganga út þegar fólk þusti inn í herbergið. „Þjófur“, æpti ísabella, „hann ætlaði að stela perlufestinni minni. Sjáið!“ Hún benti á háls sér og perlurnar sem lágu dreifðar um gólfið. „Takið þorparann fast- an!“ Michael stóð viljalaus og hafðist ekki að. Nú var hann líka orðinn þjófur! Svo fullkomlega hafði þessi stúlka steypt hon- um í glötun. Veronika sem um daginn hafði unnið í eldhúsi hótelsins, hafði heyrt hávaðann og strax dottið Michael og ungfrú Amstetten í hug, kom nú að, og sá þegar farið var með Michael burt. „Hvað hefur hann eig- inlega gert?“ spurði hún með grátstafinn í kverkunum. „Hann ætlaði að ræna af konu,“ sagði einn gestanna, sem hafði komið daginn áður. „Það mundi Michael aldrei gera,“ sagði hún með leiftrandi augum. „Spyrjið ung- frúna, hvað Michael hafi verið að gera hjá henni. Spyrjið fljótt; annars spyr ég sjálf.“ „Vertu ekki að þessu Veronika, mér er sama um allt,“ sagði Michael og steinrunn- ið andlit hans sýndi að hann sagði satt. „Nei, Michael. Ég berst fyrir þig. Hugs- aðu um föður þinn. Það yrði hans bani ef hann frétti þetta.“ Isabella sá nú hvar Mergentheim kom frá herbergi sínu. Stolt og mikillát sneri hún sér nú að mönnunum sem héldu Michael og sagði: „Sleppið hon- um. Ég vil ekki vera völd að láti gamals manns.“ Sonur hóteleigandans kom nú að. „Hvað er hér eiginlega á seyði, Micha- el?“ spurði hann. „Ekkert!“ svaraði ísabella. „Það var bara ímyndun úr mér. Ég hélt að hann ætlaði að ræna mig.“ „Þar hlýtur yður að skjátlast. Ég þekki þennan pilt síðan ég var í barnaskóla. Heiðarlegri mann getur varla. Engu að síður ætla ég mér að grafast fyrir um hvað hæft er í þessu. Komdu með, Michael.“ „Ég afbið alla rannsókn og yfirgef hús- ið samstundis. Sjáið um að föður mínum verði sendur reikningurinn.“ „Eins og yður þóknast, ungfrú.“ Kram- er beygði sig háðslega. Michael leit á ísa- bellu í síðasta skipti. Hyldjúpt hatur var fólgið í þessu augnaráði. Það var gott að hún sá það ekki. Annars hefði víst farið um hana. En Veronika sá hann og það fór skjálfti um hana. Hún fann að eitthvað hræðilegt var í vændum. Franz Kramer fór með Michael inn á skrifstofu föður síns. „Jæja, segðu mér nú hvernig stóð eiginlega á þessu upp- þoti ?“ „Þú heyrðir það. Ég stal.“ „Segðu nú enga vitleysu, Michael. Eng- inn veit betur en ég að þú gætir það ekki. Mundu eftir skóladögum okkar. Það er þér að þakka að faðir minn barði mig ekki í einhverju reiðikastinu." „Ég veit að þú meinar vel, Franz. En spurðu mig ekki frekar. Ég get ekki sagt þér það. Og hótelið skal engan skaða hljóta. Faðir þinn væri því tæpast samþykkur að HEIMILISBLAÐIÐ 33

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.